Vikan


Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 7

Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 7
 Hvernig finnst þér, Póst- ur góður? Tertubotnarnir eru notaðir sem svínafóð- ur! Finnst þér þetta ekki táknrænt? Með beztu kveðjum. A. F. P. Við skiptum okkur ekki af pólitík og' viljum þess vegna ekkert um það segja, hvort sagan er táknræn eða ekki. En hún er góð engu að síður, það skal fúslega játað. OF UNG Kæri Póstur! ]§g er ein af vinkonum þínum og er þrettán ára. Ég þakka þér fyrir allt gamalt og gott, en fyrst og fremst Sögu Forsyteættar- innar og Sögu Bítlanna. Ég er alltaf að spyrja mömmu mína og Huldu frænku, hvað ég þurfi að vera gömul til að geta orð- ið flugfreyja og í hvaða skóla ég þurfi að fara áð- ur en ég komist í flug- freyjuskólann. Reyndu nú að svara þessu fyrir mig, góði Póst- ur, og það sem allra fyrst. Með fyrirfram þökk. G. R. Okkur minnir, að 18 ár sé lágmarkið, en alla vega liggur ekkert á. Þú ert cnn of ung. Þú þarft að liafa góða kunnáttu í helztu tungumálum og einnig staðgóða almenna mennt- un. Þér er því óhætt að halda áfram skólanámi þínu enn um hríð. AM í STAÐ AB? Kæri Póstur! Þú lætur þér ekkert mannlegt vera óviðkom- andi og þess vegna hripa ég þér nokkrar línur. Nú eru jólabækurnar sem óð- ast að flæða á markaðinn, og er ekki nema gott eitt um það að segja. Reyndar er manni alveg nóg boðið síðustu mánuði fyrir jólin. Þá er ekki nokkur leið að fylgjast með öllum þeim sæg af bókum, sem koma út. Það þyrfti að vinna að því öllum árum að dreifa óókaútgáfunni á allt árið, en kannski er það hægara ort en gert. Bókafélögin, sérstaklega V ^ Almenna bókafélagið, fór vel af stað og virtist ætla að gefa út góðar bækur í hverjum mánuði allt árið, sn demba þeim ekki út öllum í einu. Þeir stóðu sig allsæmilega framan af, en mér finnst þróun mála hjá þeim öll á hinn verri veg. Það er af og frá að bækur komi reglulega í hverjum mánuði frá þeim eins og lofað var, og meiripartur- inn af þessum bókum hjá þeim eru eintómar mynda- bækur, flestar prentaðar erlendis. Það má kannski segja að svona myndabæk- ur eigi einhvern rétt á sér, en ósköp finnst mér þær hvimleiðar, og að gefa út heilan hestburð af þessu á hverju ári finnst mér ekki ná nokkurri átt. Ef svo fer sem horfir væri réttast að breyta nafni félagsins og kalla það hér eftir AM (Almenna myndabókafor- lagið). Með þökk fyrir birting- una. Virðingarfyllst, Bókabéus. Myndabækur AB eru fróðlegar og vandaðar að allri gerð. Auk þess virð- ast þær njóta hylli félags- manna. En satt er það, Bókabéus, að hvimleiðar geta þær orðið og mega alls ekki sitja í fyrirrúmi fyrir góðum, innlendum bókmenntum. SJÓNVARPSDRAUGUR Kæri Póstur! Mig langar til að leggja fyrir þig deiluefni okkar hjónanna. Við erum svo óheppin að það er leiðin- legur „draugur* sýknt og heilagt að flækjast á skerminum á sjónvarpinu okkar. Er ekki hægt að ráða bót á svona löguðu, eða er það satt, sem kon- an mín heldur fram, að hér sé um alþjóðlegt vandamál að ræða, sem ekki hafi enn tekizt að leysa? Ég missi allt álit á tækni nútímans, ef ekki er hægt að kveða niður þennan ,sj ónvarpsdraug“. Takk fyrir. Helgi. Því miður: Frúin virðist liala rétt fyrir sér, eins og aær alltaf, eða er ekki svo? ^ J 45. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.