Vikan


Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 22

Vikan - 14.11.1968, Blaðsíða 22
Ambrose ráfaði til baka eftir bergmálandi húsinu. Svo fór hann niður í eldhúsið. Jafnvel ísskápurinn hafði verið fjar- lægður. Hann var svangur. Hann yrði að þvo sér, raka sig og fara út á veitingahús. — Var ætlazt til að hann byggi hér algjörlega upp á eigin spýt- ur, annaðist öll heimilisstörf og eldaði ofan í sjálfan sig? — Það var ekki sanngjarnt. Það var beinlínis svívirðilegta ósanngjarnt. Draumur Roberts? Hver hafði gert hann möguleg- an? Hver hafði þrælað hér dag eftir dag, langt fram á nætur, svo Robert gæti auðgazt? Hver hafði legið í verðbréfabraskinu fyrir Robert; reiknað út hinn flókna verðbréfamarkað; þaul- rannsakað fjármáladálka blað- anna og lært utanbókar bókina, Hvernig þú getur gert þig að milljónera og eins með fjar- skiptisambandi, endurskipulagt allt Blossomfyrirtækið með milligöngu Harriet og fært auð, frið og ró inn á heimili Blossom? Hver annar en Ambrose Tuttle? Og þetta voru laun hans. Hann var yfirgefinn. Ambrose settist fýlulega á rúmbríkina. Harriet var komin hálfa leið yfir heiminn. Hann skildi að hún varð að leika hlut- verk hinnar trygglyndu konu — en hvað um hinn trygglynda elskhuga? Komandi daga gat Ambrose fylgzt með ferðum Blossom hjónanna. Blöðin skrifuðu mikið um hana, sömuleiðis voru þau í sjónvarpinu. Sumir fjármála- menn réðust á þessa mannkær- leikastefnu Roberts, en aðrir hrósuðu henn: á hvert reipi. Það voru þeir sem vonuðust til að geta komið undir sig fótunum og grætt á vanþróuðu löndunum. Á hveri um viðkomustað Roberts hélt hann efnislega sömu ræðuna, með nokkrum minni háttar breytingum, eftir því, sem bezt átti við áheyrendur á hverjum stað. — Ég er ekki hingað kominn til að selja vöru mína í landi ykkar. Ne:. Ég ætla að gefa ykk- ur hana, bjóða hana fram. Það er mitt — tillag. Ég trúi því statt og stöðugt — já það má segja það þannig: Munið þið hvað sagt var á hinum vondu dögum nýlendustefnunnar? „Menningin kemur í kjölfar fánans.“ Nei, herrar mínir, ég held að rás við- burðanna hafi sýnt allt annan sannleik. Ég trúi því af öllu hjarta að menningin komi í kjöl- far brjóstahaldaranna. Sérhver maður og sérhver kona verður að v'nna á sinn hátt að því að bæta mannkynið. Allt mannkyn- ið. Þetta, herrar mínir er mín aðferð. Og þegar hann var í sjónvarpinu var hann sýndur halda á brjóstahaldara með flagg viðkomandi þjóðar í bakgrunni og allt blakti í golunni. í sunnu- dagsblöðunum voru myndir af svartri stúlku, gulri stúlku og múlattakerlingu með þessa nýju brjóstahaldara — og þetta var álitið nógu menningarlegt til að birtast á menningarsíðum dag- blaðanna, en ekki á kvennasíð- unum. — Vegna þess, hélt Robert áfram, — að án tillits til kyn- þáttar, litarrafts, trúar — eða stærðar, — byrjar virðuleiki konunnar með brjóstahaldaran- um. Harriet skrifaði Ambrose í flýti með næstum ólæsilegri rit- hönd. Hún hafði algjörlega látið hrífast af þessum nýja, þrótt- mikla Robert. Það var engin leið að segja til um hvar hann léti staðar numið, ef hann léti nokkru sinni staðar numið. Nú hafði hann fengið óstöðvandi köllun til að fara til Kína. Sex hundruð milljónir — allar að bíða eftir honum, — hrópa á hann. Ambrose þjáðist. Ambrose vaknaði um miðja nótt og hugs- aði um Harriet og verra en það: minningin um hana hélt fyrir honum vöku á daginn líka. Hún varö að koma aftur. Hún gat ekki haldið áfram að æða svona um heiminn. Hafði Robert blindað hana svo að hún hafði misst alla dómgreind og vitund- ina um sína persónulegu ábyrgð? Hún hafði sínar skuldbinding- ar við að standa. Það varð að minna hana á það. Ambrose tók þungbæra á- kvörðun. Það var nógu slæmt að þurfa að rápa um göturnar og gera innkaupin sjálfur. Hug- myndin um að ferðast til ann- arra landa var skelfileg, en ef hann vildi ná Harriet aftur varð hann að gera það. Hann dró upp töflu um áætlun þeirra, bar hana saman við frétt- irnar, sem bárust og dró línu á kortið. Hann flaug til Macao. Skipulagning hans var eins góð og hún hafði verið meðan hann var að fást við verðbréfa- markaðinn. Hann kom tveim klukkustundum á eftir Robert og Harriet og þrem klukkustundum áður en þau áttu að fara aftur. Meðan Robert var upptekinn við að flytja ræðu sína og reyna að hrífa ráðherra fólksins, lét Ambrose til skarar skríða. Harriet rak upp op, þegar hann stóð allt í einu frammi fyrir henni með yfirskegg, sem auðveldlega gat orðið að nýrri dellu í hinum fjarlægari Austur- löndum. Ambrose eyddi engum tíma í ónýtt fjas. — Er hann orðinn snarvitlaus? — Nei, sagði Harriet. — Þegar hann útskýrir þetta í smáatrið- um sjá allir hvað þetta er skyn- samlegt. Það er ekkert líklegra en að þetta verði heiminum til góðs. — Hvað gagnar það mannin- um, sagði Ambrose beisklega, — þótt hann sigri allan heiminn, ef hann tapar ríkinu sínu? Harriet leit á hann, svo leit hún undan. Þetta var í fyrsta sinn, sem hann hafði séð hana taugaóstyrka og orðvana. Þegar hún að lokum fann eitthvað til að segja vissi hann að það var eitthvað óþægilegt í vændum. Og það var rétt: Ég, ég er hrædd um að það fari einhvernveginn þannig fyr- ir okkur, vinur. Að við munum tapa — ja, tapa hvort öðru. Og risinu. Öllu. Um leið og hin mikla alþjóðlega samkoma er á enda. — Alþjóðlega samkoma? — í Eastbourne. Harriet kyngdi munnvatni sínu í flýti og bunaði út úr sér: — Strax eftir hana förum við til Genf og setjumst að hjá aðalstöðvunum þar. — Genf? Harriet, ástin mín, þú getur ekki búið í Genf. Hef- urðu nokkru sinni séð myndir frá þeim stað? 22 VIKAN 45- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.