Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 30
Ronson HARÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN JÖLAGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Persóna er þú hefur áhuga á að kynnast virðist ekki hafa þörf fyrir félagsskap þinn. Maður nokk- ur veldur þér vandræðum á skemmtistað. Notaðu frístundirnar til útiveru. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Samningar gerðir til langs tíma munu færa þér mestan ágóða. Ósætt milli þín og starfsfélaga veld- ur þér miklum erfiðleikum. Helgin er vel fallin til stuttra heimsókna. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Það verður meira um að vera næstu daga en und- anfarið. Þú ákveður af mikilli skyndingu að binda fé þitt í litlu fyrirtæki. Þú hefur gest í nokkra daga. Krabbamerkið (22. júní — 23. júll): Hætt er á að þú verðir fyrir vonbrigðum með störf þín. Láttu ekki æfingu og vana verða til þess að þú fylgist ekki nægilega vel með. Ferðalag í verzl- unarerindum á næstunni. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Það mun verða óvenju skemmtilegt og margt um að vera hjá þeim sem fæddir eru milli 30. júlí og 7. ágúst. Vegna hrekkja annarra nýturðu þín ekki sem skyldi. Leikhús eða bíóferð væri vel við hæfi. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Hristu af þér deyfðina með því að atast í einhverju sem kemur blóðinu á hreyfingu. Athafnaleysi og leti samræmist ekki eðli þínu. Þú verður fyrir áhrifum frá eldri manni. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Farðu að öllu varlega. Þú þarft að taka ákvörðun sem veldur þér erfiðleikum og áhyggjum hvernig sem þú leggur málin niður. Eyddu frístundunum heimavið, það á bezt við sem stendur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú veltir mikið fyrir þér íjármálum, en ekkert nýtt kemur fram sem neinu máli skiptir. Vertu ekki of ýtinn hvorki heima eða heiman; vinsæld- irnar þoia það ekki. ** Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Það mun reyna á þolinmæði og skapstyrk þinn þessa dagana. Reyndu þess vegna að fara rólega og taka flest með í reikninginn, þótt mikið liggi á. Þú færð mikilvægar fréttir. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Gefðu ekki vissan aðila upp á bátinn, þótt ekki blási byrlega fyrir ykkur. Leggðu allt kapp á að leysa verkefni þín sem bezt af hendi, tíminn sem það tekur skiptir ekki öllu máli. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú stendur þig vel á prófi daglegs lífs. Þú gerist meðlimur í félagsskap, sem þú hefur lengi haft í huga að kynnast. Heilladagur er föstudagur. í Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Reyndu að halda málstað þínum í ákveðnu máli, ef þess er nokkur kostur. Tíminn nýtist illa vegna þess hve þú hefur mörg járn í eldinum. Fjárráðin eru ekki í sem beztu lagi. 30 VIKAN 47 tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.