Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 29

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 29
Buxurnar hans voru gegndrepa af blóði, sem vall úr sórum og skurð- um alls staðar ó líkama hans. And- litið gerði ekki betur en að minna á andlit, munnurinn og nefið, hvort- tveggja afskræmt og brotið, vinstri kinnin opin svo skein í beinið og blóðið streymdi úr sórinu. Á hægri kinninni voru marblettir og skrám- ur. Hann riðaði þar sem hann stóð, en hann var ekki búinn að vera. Hann var hættulegri en nokkuð, sem ég hafði óður staðið andspænis og skelfilegri. Ég hef engar tálhug- myndir um slagsmál og þau eru nokkuð, sem ég er lélegur f. Ég hafði slegizt nokkrum sinnum sem drengur, einu sinni sem unglingur, en aldrei sem fullorðinn. í því til- liti er ég í engu frábrugðinn mönn- um af mínu tagi um alla Ameríku, ég er hluti af hópi manna, ósam- kvæmum sjálfum sér, sem skemmt- ir sér einkum við að horfa á einn eða annan skerm þar sem menn berja hvern annan til óbóta — en samt er andstyggð þeirra á slags- málum meiri en hjá nokkurri ann- arri þjóð í heiminum. Ef til vill skelfumst við okkar beztu hæfileika mest, og okkur þykir sárt að vita, hve mjúkhentir við erum. Sumir okkar fara dult með þetta, en ég hef aldrei gert það og ég viður- kenni hreinskilningslega, að sú at- höfn að reka krepptan og viðkvæm- an hnefann af afli á viðkvæmt og auðsæranlegt líffæri annarrar mann- legrar veru, er ósæmandi þegar bezt lætur og skepnulegt, þegar verst lætur. Ég var hræddur, veikur, lamaður af skelfingu, dæmdur, en samt stóð ég frammi fyrir Shlakmann. — Camber, öskraði hann. — Camber, skítugi, djöfuls tíkarsonur, hvar ertu? Ég gekk fram úr káetunni. Fyrir aftan Shlakmann þrýsti Alísa sér að borðrtokknum í myrkrinu, en ekki nógu miklu, tunglskinið var nógu bjart til að ég sæi ávallt andlit henn- ar og bjarma í kringum hárið, en ég sá ekki svipinn. Ur andliti hennar hefði ef til vill mátt lesa: — Þú ert einn núna, Johnny. Guð hjálpi þér. Nú kemur það. Nú kom það. Hræðslan var að hverfa mér. — Horfðu á mig, Camber, sagði hann og glotti ógeðslega. — Horfðu á mig, helvítis kvikindið þittl Ég hef unnið fyrir lyklinum, komdu með hann. Ég bað til guðs um eitt: að rödd mín væri hrein og stöðug, þegar ég sagði: — Það er enginn lykill, Shlak- mann. — Helvitis kvikindið þitl! Komdu með lykilinn! — Shlakmann, öskraði ég. Það er enginn lykill! Ekki hér! Hvergi! Það- er-enginn-lykill! — Þú sagðir, að krakkinn væri með hann! — Ég laug — ég laug, Shlak- mann! — Djöfuls hundurinn! Farðu frá mér, Camber! Ég ætla inn og rífa krakkann í sundur. Ég skal rífa hann í sundur bein fyrir bein, og finna lykilinn! — Nei! — Vertu ekki fyrir mér, Camber. Ég kastaði mér á hann, en hann ýtti mér til hliðar með öðrum al- blóðugum hramminum. Um leið og hann laut til að fara inn um káetu- dyrnar, nóði ég fótfestunni, sneri mér við og stökk upp á bakið á honum. Ég læsti handleggjunum utan um misþyrmt andlit'ð á honum og tókst að ná fótfestu með öðrum fætinum á dyrastafnum. Svo spyrnti ég í. Shlakmann barðist við að halda jafnvæginu með mig á bak- inu,- svo rann hann í sínu eigin blóði, missti fótanna og féll aftur á bak á þilfarið með mig undir. Ég fann augað verða fyrir vísifingri mínum og ég boraði honum inn af öllu afli. Ég var ekki lengur til hvað snerti gáfnafar, rökhyggju, skelf- ingu eða varfærni. Ég fann aðeins til einnar kenndar — bræði. Ég myndi deyja, en ég ætlaði að selja líf mitt dýrt. Shlakmann öskraði, þegar ég stakk fingrinum inn í augað á hon- um. Hann sló höndunum aftur fyrir sig til þess að sópa mér af sér, og ég skellti tönnunum um tvo fingur, beit eins og dýr bítur, og ég fann fingurna gliðna og blóðið vella of- an í hálsinn á mér. Hann kastaði mér af sér eins og maður kastar af sér rottu ( sorpræsi og ég rann í gegnum blóðið á þil- farinu, þar til ég nam staðar á sóf- anum, sem lá á bakinu. Onnur hönd mín snerti eitthvað hart og kalt. Það voru hnúajárn Angie, og án skýrrar hugsunar eða ákvörðunar, renndi ég fingrunum inn í þau. Ég reis upp á fjóra fætur og hóst- aði út úr mér blóði Shlakmanns. Shlakmann stóð fyrir framan káetu- dyrnar og hélt höndunum fyrir aug- anu ,sem ég hafði eyðilagt. Aftur og aftur rak hann upp sársauka- öskur, og svo, þegar hann sá mig, kastaði hann sér á mig. Ég vissi, að það að standa upp á móti honum var sama og að deyja, að eina von mín var í því fólgin að fella hann aftur. Ég spyrnti í sófann og kastaði mér með höfuð og herð- ar á fæturna á honum. Hann féll yfir mig og hlunkaðist endilangur I skarðið milli borðstokksins og sóf- ans. Brot úr sekúndu barðist hann u-i t'l að losa sig — jafnvel hið of- urmannlega þrek hans var farið að slappast af blóðmissi og sársauka. Það var þetta sekúndubrot, sem b;argaði mér. Ég kastaði mér á hann aftur, kreppti vinstri hand- legginn utan um hökuna á honum og tók að lemja hausinn á honum með hnúajárninu á hægri hendi af öllu afli. Hann vóg sig upp á fæturna, ón þess að skeyta sjáanlega nokkuð um höggin, sem ég lét rigna á hon- um, seildist aftur fyrir mig og klór- aði mig aftur. Ég féll illa, lenti með höfuðið á þilfarinu, lá þar andar- tak — en svo laut Shlakmann yfir mig, greip um hálsinn á mér með báðum höndum og sveiflaði mér upp. Eitt andtartak hékk ég þarna í hrömmum Shlakmanns, án þess að nó andanum, og nálgaðist hina dimmu og botnlausu gjá; þessi sköpulagslausa blóðkássa, sem hafði verið andlitið á honum, var rétt við andlitið á mér og starði á mig. Svo sleppti hann mér, og ég féll aftur á þilfarið. Alísa sagði mér seinna, að á þeirri stundu hefði hún æpt, en ég heyrði ekki til hennar. Ég minntist þess ekki að hafa heyrt neitt, séð neitt, nema andlit Shlakmanns fast við mitt. Það næsta, sem ég vissi, var að ég lá á þilfarinu og starði upp á Shlakmann, sem riðaði fram og aftur — þar til hann lyppaðist saman eins og beinin í fótunum á honum hefðu orðið að hlaupi. Hann féll á fjóra fætur rétt hjá mér, og þar tautaði hann með erfiðismun- um: — Láttu mig hafa lykilinn, djöf- uls hundurinn! Eða að minnsta kosti var það þetta, sem ég held að hann hafi verið að reyna að segja, og það var það síðasta, sem fór honum um munn. Hann stirðnaði upp, reyndi að rísa á fætur og svo féll hann endilangur á grúfu. Ég skreið til hans og reyndi að snúa honum við en ég hafði ekki afl til þess. Ég þreifaði á úlnliðin- um á honum I leit að æðaslætti, en fann engan. Blóð hans var hætt að streyma og hann var dauður. Enn hef ég martröð um Shlak- mann, og ég býst við, að ég haldi áfram að hafa martröð um hann, þar til ég dey. I sumum af þessum draumum verð ég að slást við hann aftur, en það er enginn endir á þeim slagsmálum. Það er vegna þess, að ég veit, að það var ekki ég, sem stöðvaði Shlakmann; ég yfirbugaði hann ekki og ég drap hann ekki. Þetta var eins og allt annað, sem við að- höfðumst þennan dag,- ég einfald- lega frestaði því óumflýjanlega, en að þessu sinni var heppnin með okkur. Það var Angie, sem drap Shiakmann. Shlakmann blæddi út. 12: ENGIÐ Ég reis á fætur og stóð yfir Shlak- mann. Alísa kom út úr káetunni, ég hafði ekki séð hana fara þangað inn né heldur koma upp á þilfar- ið, en nú kom hún út úr káetunni með barnið í örmunum og barnið grúfði andlitið að brjósti Alísu. Lenny kom á eftir henni, en hún steig til hliðar og tók sér stöðu við borðstokkinn. Hún leit á mig, síðan á líkin tvö á þilfarinu — og svo aftur á mig. — Þeir eru dauðir — báðir, sagði ég þreytulega. Alísa horfði á mig. Það var allt í lagi með mig, svo langt sem það náði, ég var töluvert marinn og næsta dag fann ég mjög mikið til I öðrum handleggnum, en það var ekki verra en það. Að sumu leyti var alit í lagi með mig og að öðru leyti ekki allt ! lagi. Ég hafði ekki séð Alísu koma upp Framhald á bls. 41 r'--------—----------------------------N FRAMHALDSSAGAN 13. HLUTI EFTiR E. V. CUNNINGHAM V______________________________________y 47. tbi. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.