Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 2

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 2
 b<e °(J er merkið í snjóhjólhorðum Útsölustaðir: Kaupfélögin víða um land. í Reykjavík: Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Gíslasonar Laugavegi 171 og Stöðuveiting Oft verður leikmanni á að hrista höfuðið, þegar fréttist af einhverri embættisveiting- unni. Það vill brenna við, að þcim sem til hliðar standa, þyki embættisveitingar ekki ævinlega réttlátar og furði sig á því, eftir hvaða reglum er farið. Þess er skemmst að minn- ast, er maður var hrakinn úr því embætti, sem hann hafði gegnt sem settur með sóma i fjöldamörg ár. Hans í stað var tekinn annar, sem hafði lengri starfsaldur. Af þessu varð ekki svo lítið hark, og þótt ekki sé talað um þetta á hverjum degi lengur, er langt frá, að það sé gleymt. Það er líka bölvað, að em- bættisveiting verði til þess til dæmis, að koma af stað orðrómi um, að sá sem stöð- una fékk, hafi fengið hana í launaskyni fyrir að koma við- komandi landsföður á fram- færi sem listamanni. En þann- ig getur farið, þegar utanað- komandi maður er settur í stöðu sem hann hefur enga þekkingu á, og þarf að læra allt frá grunni, en fullfærum umsækjendum innan stofnun- arinnar er ekki sinnt. Skemmst er að minnast skipun fréttastofustjóra. Þar átti í hlut maður, sem er alls góðs maklegur, en hann var í fyrstu tekinn fram yfir an- an umsækjanda, Margréti Indriðadóttur, sem í áratugi hafði starfað við fréttastofuna og unnið sér hylli og virðingu fyrir það starf, bæði út á við og inn á við, var enda sett umsvifalaust í það embætti, er Jón Magnússon féll frá. En þegar sá, sem skipaður hafði verið, sá, hvernig málin voru í pottinn búin, var hann svo vel gerður að afþakka stöð- una, svo Margrét fékk hana að lolcum, maklega. Hefði átt að fá hana strax. Almenningur er næm smá- sjá. Ef landsfeður ætla að láta bera virðingu fyrir sér, verða þeir að gæta sín svo vel, að ekki sjáist í þeirri sm'ásjá meinsemd, sem skaði álit þeirra. S.H. 2 VIKAN 47-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.