Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 40

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 40
Forsætisráðherrann sagði líka að í ráði væri að koma upp skipasmíða- stöð á vegum ríkisins, og Onassis tók vel í það að hjálpa til við upp- byggingu Grikklands. Hann sendi svo tilboð til þeirrar nefndar sem hafði með þessi mál að gera, en þegar hann bjóst við ákveðnum svörum, voru þau yfirleitt dregin á langinn. Það var greinilegt að hann átti einhvern keppinaut, og fljótlega komst hann að því að það var svili hans, Stavros Niarchos, sem hann var ekki neitt sérstaklega hrifinn af, en Niarchos var kunnug- ur grísku konungsfjölskyldunni. For- sætisráðherrann gerði loksins boð fyrir Onassis og spurðit — Segið mér, í guðanna bænum, hvers- vegna getið þið Niarchos ekki kom- ið ykkur saman um þetta? Karamanlis var einn af þeim fáu sem ekki vissi hvað Onassis hafði þó nýverið sagt um samband þeirra svilanna-. — I viðskiptum langar okkur mest af öllu að snúa hvorn annan úr hálsliðnum, en í einka- llfinu sitjum við saman til borðs og erum þægir, vegna eiginkvenna okkar. Systurnar létu það eng- in áhrif hafa á einkalíf sitt þótt bændur þeirra væru ekki á einu máli. Þegar Onassis sagði Karamanlis að þeir gætu ekki unnið saman, sagði forsætisráðherrann í örvænt- ingu sinni: — Láttu hann þá taka við öðru hvoru. — Jæja, sagði Onassis, tregur þó, — þá tek ég við flugfélaginu og Niarchos getur snúið sér að skipa- smíðum. Og þannig varð það. Þegar Onassis tók við gríska rík- isflugfélaginu átti það eina vél af gerðinni CD-4 og sex vélar af gerð- inni DC-3. Eina utanlandsflug þess- ara véla var til París og London einu sinni I viku. Félagið var í mik- illi þörf fyrir örugga stjórn Onass- is, ekki síður en peninga hans. Hann breytti heiti félagsins og ka11- aði það „Olympic Airways", og svo myndaði hann nýtt félag, sem hann lagði 15 milljónir dollara í. Svo lagði hann sig allan fram til að kynna sér starfsemi flugfélaga. Þetta átti við hann. Hann sagði að flugfélögin og Monte Carlo væru eftirlætissýsla sín. En þótt flugfélagið væri aðeins lítill hluti af hinum geysimiklu fyr- irtækjum hans, vildi hann hjálpa Grikklandi eftir beztu getu 23. janúar árið 1957 var Onass- is staddur í London og var að tala við ritara sinn í Monaco, þegar hann heyrði fallbyssuskot, sem til- kynntu fæðingu barns af furstaætt- inni. Hann heyrði að skotin voru tuttugu og eitt og þá vissi hann að það var stúlka. Þrátt fyrir orðróm um ósamkomu- lag milli Onassis og Rainiers fursta, þá var samkomulagið gott á milli þeirra um þessar mundir, og On- assis gerði mikið veður út af hinni nýfæddu Carolinu prinsessu. Það var líka talað um annað ósamkomulag, þeir sem bezt þótt- ust vita á Rivierunni, héldu því fram að ekki væri allt með felldu í sambúðinni milli Ari og Tinu. Næsta sumar sigldi „Christina" til Feneyja og varpaði akkerum á Canal Grande. Samkvæmislífið var þar í fullum gangi og Ari og Tina voru boðin í samkvæmi, sem Castel- barco greifafrú hélt til heiðurs söng- konunni Mariu Callas. Ari sagði síð- ar að hann hefði alltaf verið hrif- inn af söngkonunni og fylgzt vel með ferli hennar. Sérstaklega var hann hrifinn af því hvernig hún hafaði sjálf rutt sér braut. Samfund- ir þeirra áttu eftir að verða afdrifa- ríkir. Aristoteles Onassis hneigði sig djúpt og kyssti á hönd söngkon- unnar, og hann var sýnilega mjög hrifinn. Maria Callas var fædd. í New York af grískum foreldrum. Hún var þarna á tindi frægðar sinn- ar. Hún var líka ítalskur ríkisborg- ari gegnum hjónaband sitt og Batt- ista Meneghini, sem var kaupsýslu- maður og mikið eldri en hún. Hún var því, eins og Onassis, heims- borgari, en með djúpar rætur í grískri mold. Onassis bauð madame Callas og manni hennar um borð í Christina, og Callas tók boðinu. Þegar „Christina" kom aftur til Monte Carlo voru þar hátíðahöld í tilefni af því að furstahjónunum hafði fæðzt sonur, sem skírður var Albert. Onassis heyrði að gamall kunningi hans, Randolph Churchill væri í bænum, bauð hann honum, ásamt föður hans, Winston Chur- chill um borð í snekkjuna. Það kom á daginn að þeir Onassis og Chur- chill gamli áttu mörg sameiginleg áhugamál. Churchi11 kunni vel við Onassis og bauð honum að heim- sækja sig. Þetta var upphaf þess að þeir voru nær daglega saman, en svo varð hinn 83 ára gamli stjórnmálamaður veikur svo að hann varð að hafa hægt um sig. Flugfélagið Olympic Airways hóf nú nýja ferðaáætlun á leiðunum Aþena-Zúrich-Frankfurt. Eftir blaða- mannafund skrifaði einn blaða- mannanna: „Herra Onassis kaupir gríska himininn"! • Nokkru síðar kom Onassis fram í viðtali í BBC, í tiiefni af því að mikið hafði verið gagnrýnt að hann skráði skip sín undir fánum ýmissa þjóða: — Fólk heldur að það sé vegna skattanna sem ég skrái skip mín í Panama og Liberiu, en það er aðallega til þess að hafa frjáls- ræði yfir gjaldeyri, sem ég geri það, það er þægilegra, þegar taká þarf skjótar ákvarðanir. Þegar Onassis kom aftur til Suð- uf-Frakklands um sumarið 1958, þá kom hann því þannig fyrir að Greta Garbo og Churchill hittust. Þau borðuðu saman í Nizza og það mátti segja að fulltrúar stjórnmála, fegurðar og auðæfa væru þar sam- an komnir. Þetta ár var Onassis í Monte Carlo um jólin, en Tina var hjá systur sinni, sem átti von á barni, í New York. Þegar það fréttist að þau hjónin hefðu ekki verið saman á gamlárskvöld, var farið að pískra Hafið Þér revit Ef ekki þá reynið BADEDAS í næsta bað. * Er mest selda bað- efni og hárshampo Evrópu í dag. BADEDAS inniheld- ur 5 tegundir fjör- efna - heilnæmt fyrir húðina - hressir yður og eyk- ur vellíðan. badedas Heildsölubirgðir: H. A. TULINIUS, heildverzlun. 40 VIKAN 47-tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.