Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 17

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 17
i : * Hvar söngur ómar, setztu glaður; það syngur enginn vondur maður. Hugmyndina að því verki seg- ist Egner hafa fengið þegar hann var staddur í ríki einu í Evrópu sem hann nefndi ekki á nafn, en þar var ástandið ekki ósvipað ástandinu í Brösubæ, bæn- um í leikritinu: harðbannaður hvers konar mannfagnaður á al- mannafæri. Egner vill undir- strika að glaðværð og gott skap leiði til mannúðar og umburðar- lyndis; ólundin sé hins vegar móðir hins sem verra er, ómann- úðlegra boða og banna og of- sókna gegn því sem gott er og mannbætandi. Fullyrt er að börn séu kröfu- hörð og gagnrýnin, jafnvel mið- að við annað fólk. Þetta á einn- ig við börn sem leikhúsgesti. Þess vegna er þeim, sem fást við að semja barnaleikrit, hollast að kasta ekki til þess höndunum. Þess utan hvílir á þeim engin smávegis ábyrgð; þeir eiga jú þátt í mótun barnasálnanna og veitir víst ekki af að framlag þeirra sé jákvætt til mótvægis við hitt og þetta miður þokka- legt, sem krakkarnir meðtaka gegnum sjónvarpið. Af núlifandi höfundum hefur fáum tekizt þetta betur en Thor- birni Egner; hann er af kunn- áttumönnum um leiklist talinn fremstur barnaleikskálda Evr- ópu og þótt víðar sé leitað. Verk hans hafa verið þýdd á mörg tungumál og sviðsett víða um lönd, á Spáni, Ítalíu, Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu, Póllandi, Rúss- landi og annars staðar. Egner var upphaflega auglýs- ingateiknari, en réðist síðan til norska útvarpsins og vann við barnatímann þar. Upp úr því fór hann að skrifa sögur og þætti fyrir börn, þar á meðal Karíus og Baktus, sem margir kannast við. Síkátir Söngvarar eru þriðja sviðsverk hans hér. Hin tvö eru Kardimommubærinn, sem setti Framhald á bls. 45. «■ VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.