Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 36
Uúpitiiidrkartir
INNI
ÚTI
BÍLSKÚRS
SVALA
HURÐIR
ShtHi- 'Útikurlir H □. VILHJÁLMSBDN
RÁNARBÖTU 12 SÍMI19669
ir henni, ljóshærð, smágerð með
sigurbros á vör. Luke þurfti ekki
að eiga mynd af henni, hún var
svo Ijóslifandi, hugsaði Alison.
— Alison, sagði Luke, — ertu
ekki hamingjusöm? Hvað er að
þér?
— Ef til vill er ekki rétt af
okkur að búa hér .... ég meina
í húsinu hennar Barböru.
— Hamingjan sanna, sagði
hann reiðilega. — Og allt vegna
þessa atviks með klukkuna! Fyr-
irgefðu mér. Það er bara svodd-
an fjárans vesen ef hún fer ekki
í gang. Ég hélt aldrei að þú vær-
ir svona barnaleg.
— Hversvegna kvæntistu mér,
Luke? Vegna þess að þú varst
einmana?
— Nei! Þú hagar þér eins og
krakki. Þú ert ekkert betri en
Val. Ég kvæntist þér vegna þess
að ég elska þig. Ef það er ekki
nóg, þá bið ég þig að fyrirgefa.
Ég elskaði Barböru líka, og mér
er ómögulegt að afmá þá stað-
reynd til að þóknast þér.
— Ég kæri mig heldur ekk-
ert um það, sagði hún þrjózku-
lega. Þetta er hlægileg deila. Hún
hugsaði, með skelfingu, að þetta
héldi áfram að breikka bilið á
milli þeirra, þangað til það yrði
óbrúanleg gjá. Það vantaði eit.t-
hvað, sem gat komið pendúlnum
í hjónabandi þeirra til að ganga
rólega.
Ruth hringdi nokkrum dögum
síðar. — Kaffiboðið stendur enn-
þá, sagði hún glaðlega við Ali-
son.
— Þakka þér fyrir, má ég
koma á morgun ....
Hún var búin að sauma kjól-
inn, og var mjög ánægð með
hann. Val átti tæplega orð til að
láta í ljós ánægju sína, og Ali-
son fann fyrir einhverri ónota-
kennd.
Um morguninn nam hún stað-
ar við litla búð, sem var nálægt
biómabúð Ruthar.
Úrsmiðurinn, sem átti búðina,
var smávaxinn, snyrtilegur
Svisslendingur. Alison rétti hon-
um armbandsúrið sitt. Ég held
það þurfi að hreinsa það. Það
hefur ekki gengið síðan í gær.
Hann athugaði úrið vandlega.
— Hreinsa það? — já, þér getið
fengið það eft'r hálfan mánuð.
Hann rétti henni númerið og
skrifaði hjá sér nafn hennar og
heimilisfang. — Hvernig er
klukkan? sagði hann á klaufa-
legri og hátíðlegri ensku. — Það
var fyrri frú Jennings, fyrir fjór-
um árum. Ég man.
— Hún gengur ennþá, sagði
Alison.
— Það gleður mig, það eru
ekki lengur búnar til svona
klukkur. Og hún, ó já, ég man
hve glöð hún var, rétt eins og
krakki. Ég fór sjálfur með hana
heim til hennar og kom henni
fyrir á veggnum. Hún sagði að
húsið lifnaði við þetta, henni
fannst svo gaman að telja slög-
in....
— Já, sagði Alison og stakk
miðanum í töskuna sína. —
Þakka yður fyrir, ég kem eftir
hálfan mánuð
Ruth beið hennar með ilm-
andi kaffi. Það var notalegt í
litla herberginu. — Við höfum
ekki svo mikið að gera eins og
er, og ég er fegin því. Ég get
skilið Dilly eftir eina um stund.
Þú kannast við blómabúð Mart-
ins á torginu. Hann er að hætta,
og ég er að hugsa um að kaupa
verzlunina.
— Þú ert sannarlega vinnu-
glöð, sagði Alison.
— Já, sagði Ruth, — mér er
þetta í blóð borið. Ég hefði
aldrei gert nokkurn mann ham-
ingjusaman í hjónabandi, ég er
alltof ráðrík og of sjálfstæð. Ég
er ekkert lík Barböru
Alison kreppti fingurna utan
um bollann. — Luke hitti hana
hér? Var það ekki?
— Jú, sagði Ruth. — Það var
rómantízkt eins og í ævintýri.
Hún var feimin og vildi heldur
vinna hér inni, heldur en að
standa í búðinni. En svo fékk
ég flensu, svo hún varð að vera
í búðinni. Luke kom og keypti
rósir, er við áttum að senda móð-
ur hans. Barbara ruglaði pöntun-
um og frú Jennings fékk potta-
plöntu. Sem betur fór hafði
gamla konan kimnigáfu, en Luke
varð fjúkandi vondur, og kom
til að kvarta, og segja Barböru
hvaða álit hann hefði á henni.
Það endaði með því að hann
bauð henni út að borða.
Einhvernveginn féll þetta ekki
inn í rammann hjá Alison
feimin, — ruglar pöntunum.
Barbara var fallegur and:, svo
sterkur persónuleiki að ekki var
auðvelt að gleyma henni, þau
minntust hennar vegna þess að
hún vafði alla hluti í töfraljóma.
Alison sagði skyndilega: — Ég
fór með úrið mitt til viðgerðar.
Úrsmiðurinn fór strax að segja
mér frá klukkunni hennar Bar-
böru. Hversvegna hélt, Barbara
svona mikið upp á þessa klukku?
— Hvað er það sem þú í raun-
Verkir, þreyta í baki ?
DOSI beltin hafa eytt
þrautum margra.
Reynið þau.
EMEDIA H.F
LAUFÁSVEGI 12 - 16510
36 VIKAN 47-tbl-