Vikan


Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 34

Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 34
kveðin í því að gera ekkert veð- ur út af þessu. Luke stóð í dyragættinni og sagði rólega: — Það er bezt fyrir þig að flýta þér að hafa fata- skipti, Val, Ruth frænka þín get- ur komið á hverri stundu. — Þú myndir örugglega vilja að við gleymdum mömmu, er það ekki? sagði Val í ásökunar- tón, og beindi orðum sínum að Alison. — Val láttu ekki eins og kjáni, sagði Alison, en Val gekk hratt framhjá henni og flýtti sér upp stigann. Alison horfði á Luke. — Elskan mín, Val er aðeins fjórtán ára, sagði Luke rólega, — það er ekki hár aldur. Hún er viðkvæm fyrir öllu sem snerti Barböru, eins og þessu með rós- irnar.... —• Og klukkuna, — og bjöll- urnar, — og lampann! sagði Ali- son snöggt. Það kom stkrýtinn svipur á Luke, og Alison var dálítið skelk- uð, það var eins og hann lokaðist í einhverjum heimi, sem hún hafði ekki aðgang að. Henni létti þegar hún heyrði í dyrabjöllunni. Ruth stóð í dyrunum, velklædd eins og venjulega, í hunangsgul- um kjól. Ruth hafði þægilega fram- komu; hún var ein af þeim, sem allsstaðar féllu inn í umhverfið. Val var innilega glöð yfir því að hitta hana. Þau gengu öll inn í borðstofuna, og Ruth dáðist að, skreytingunni hjá Alison, og sagði glaðlega: — Ég leita til þín þegar ég þarf að fá sérstaklega fallega gluggaskreytingu. Ef þig vantar einhverntíma vinnu, þá skaltu koma til mín, Alison. Hún meinti þetta sýnilega, og Alison var henni þakklát. Val sagði snögglega: — Þetta eru rósir af runnanum hennar mömmu, hún skar aldrei rós af honum, nema til að setja í kúl- una undir lampanum. — Ég held það sé meira en nóg af rósum eftir, það þarf ekki rós í lampann, nema aðra hvora viku. Hún lagði sig fram til að snúa samtalinu að einhverju öðru. Þegar hún fór sagði hún við Ali- son: — Komdu og drekktu hjá mér kaffi einhvern daginn, í kompuna bak við búðina. Það var mjög heitt daginn sem Alison sneið kjólinn sinn og byrjaði að sauma. Luke gaf henni rafmagnssaumavélina í morgun- gjöf, og hún hafði verið mjög glöð, og hafði ánægju af því að sauma fötin sín. Val kom inn og horfði á hana. — Ég skal sauma kjól fyrir þig, sagði Alison. — ég að segja þér eitt, þú ættir að teikna hann sjálf, þá yrði það Val Jennings model. — Ég get fengið kjól hjá Henderson, sagð.i Val. — En það er miklu meira gaman að gera þetta sjálf, og líka ódýrara. Átti mamma þín ekki saumavél? Andlitið á Val varð eins og blóm sem lokar sér. — Nei, sagði hún, — henni þótti ekki gaman að sauma, og það þykir mér ekki heldur. Hún flýtti sér út úr herberg- inu, eins og Alison hefði með vilja reynt að særa hana. Alison beit á vörina og reyndi að minna sjálfa sig á það að hún væri að- eins barn. Svo hugsaði hún með sér að örugglega yrðu fleiri ljón á veginum. En hún hafði ekki búizt við því að Luke væri svona barnalegur líka, en það skeði samt þegar klukkan í anddyrinu stöðvaðist einn daginn. Það skeði á laugardagskvöldi. Val var úti og Alison og Luke voru að búa sig til að heimsækja kunningja sína. Alison var á leið upp stig- ann, þegar pendúllinn hreyfðist ekki. Luke var vanur að vinda klukkuna upp á hverju föstu- dagskvöldi, hann hlaut að hafa gleymt því. Koparlykillinn lá í kassabotninum. Alison opnaði varlega glerhurðina, tók lykil- inn. Það var aðeins klukkutími síðan klukkan stanzaði, ann- ars hefði Luke örugglega tekið eftir því. Hún var að vinda klukkuna upp, þegar Luke kom niður stigann og flýtti sér til hennar. — Farðu varlega Alison, sagði hann og var nokkuð hvass í bragði. — Ef þú haggar henni um hársbreidd, þá fer hún í fýlu, og ef hún stanzar, þá er ekki fyr- ir fjandann að koma henni af stað aftur! — Og það yrði auðvitað reið- arslag, Alison iðraðist eftir orð sín um leið og hún var búin að sleppa þeim. Luke svaraði ekki. Hann gekk vandlega frá klukkunni, rétti hana aðeins til á veggnum, setti pendúlinn í gang og virti fyrir sér með ánægjusvip að klukkunni skyldi þóknast að hreyfa sig. Alison flýtti sér upp stigann. Luke kom inn í svefnherbergið andartaki síðar. — Þú hefðir átt að segja mér þetta, sagði hann, — ég hefði þá undið klukkuna upp sjálfur. Við gerðum það allt- af á föstudögum, ég skil ekkert í að ég skildi gleyma þessu í gærkvöldi. — Fyrirgefðu, sagði hún stutt- aralega. Hann kom til hennar og kyssti hana aftan á hálsinn. — Hvað er að þér, elskan mín? Þú ert eitt- hvað svo viðkvæm þessa dagana. Hún svaraði ekki. Ég er eins og gestur, hugsaði hún. Við gerð- um þetta alltaf.... Það voru þessir smámunir sem eyðilögðu tilveruna fyrir henni. Hún hafði það á tilfinningunni að Barbara væri alltaf einhversstaðar á eft- 34 VIKAN 47- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.