Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 13
til þær eru gegnum bakaðar og
stökkar.
Berlínarkransar.
2 egg, 50 gr sykur, 200 gr hveiti,
125 gr smjör, grófur sykur.
Annað eggið er harðsoðið, kælt
og rauðan tekin úr, söxuð smátt
og hrærð saman við hina eggja-
rauðuna. Sykurinn hrærður vel þar
saman við. Hveitinu og smjörinu,
sem áður er hrært, blandað 1 smátt
og smátt. Hnoðað. Mótað í mjóar
lengjur, sem skornar eru í ca. 15
cm langa búta og sett saman í
hringi. Áður en hringirnir eru
bakaöir eru þeir smurðir með
eggjahvítu (sem áður er hrærð
með i/2 matsk. af vatni) og difið
í mulinn sykur.
Sænskar smákökur
(Flarn).
75 gr brætt smjörlíki, 1\'2 dl syk-
ur, 1 egg, 1 matsk. liveiti, 3 dl
haframjöl.
Smjörlíkið er brætt og hellt yfir
haframjölið. Eggin eru þeytt með
sykrinum. Hveiti og haframjöli
blandað saman við. Látið með te-
sk. á smurða plötu og mótað með
skeiðinni í þunnar, kringlóttar
kökur líkt og kramarhús. Bakaðar
í meðalheitum ofni, ljósgulbrúnar,
losaðar af plötunni og beygðar á
sívalningi.
Hnetukökur (40 stk.).
60 gr smjör eða smjörlíki, 34 dl
sykur, 2 dl hveiti, \'2 tesk. lyfti-
duft, 14 tesk. kanell, 100 gr val-
linetur.
Smjörlíkið er hrært með sykrin-
um. Helmingurinn af hnetukjörn-
unum eru saxaðir smátt og hrærðir
saman við ásamt kanel, hveiti og
lyftidufti. Mótað í litlar kúlur, \2
eða 1/4 hnetukjarni látinn á hverja
þeirra (ath. að þrýsta þeim vel
niður í deigið). Bakað við ca. 200
gráður.
súkkat, 11/2 tesk. engifer, 3 dl
hveiti, 1 tesk. lyftiduft.
Smjörlíki, sykur og eggjarauða
hrært vel saman. Ávöxtunum og
hveitinu, sem áður er sigtað með
engifer og lyftidufti, hrært og
hnoðað saman við. Mótað í lengj-
ur, sem skornar eru í ca. 4 cm
langa bita, penslaðir með eggi og
difið í blöndu af muldum sykri
með söxuðum, óhýddum möndlum.
Ath. að hafa kökurnar ekki of
þétt á plötunni og bakið þær við
góðan hita.
Kókoskökur (ca. 45 stk.).
1 egg, 3 eggjahvítur, Zy2 dl syk-
ur, 200 gr kókósmjöl. Ávaxtamauk.
Bezt er að hita deigið í emeler-
uðum eða eldföstum potti. Egginu,
hvitunum, sykri og kókósmjöli
blandað saman í pott og hitað við
hægan hita, hrært í, þar til kókós-
mjölið verður lint og deigið
þykknar.
Sett með tveim teskeiðum á vel
smurða, hveitistráða plötu. — I
miðju hverrar köku er búin til
lítil hola og fyllt með sultu. (Ath.
að hafa sultuna ekki of mikla).
Bakaðar við ca. 200 gráður.
Sprautukökur (50 kökur).
200 gr smjörlíki (tæplega), 1 dl
púðursykur l>í. dl majsenamjöl,
2*,2—3 dl hveiti, 2 tcsk. vanilju-
sykur.
Smjörlíkið er hrært með sykrin-
um. Majsenamjöli, hveiti og van-
iljusykri blandað saman. hrært
smátt og smátt i. Kælt. Sprautað
á vel smurða plötu í strimla. Fal-
legt er að setja koctailber, sem
áður er skorið í mjóar skífur, á
miðju hverrar köku. Bakað við
250 gráðu hita. Ef kökurnar vilja
renna út, er dálitlu hveiti hnoðað
upp í deigið.
Hunangskökur.
100 gr smjörlíki, 100 gr sykur, 1
matsk. hunang, y2 egg, 40 gr
möndlur, 3 dl hveiti, \'2 tesk.
natron.
Deigið er hrært á venjulegan
hátt. Smátt söxuðum möndlum
blandað í síðast. Hnoðað í sívaln-
inga, meðal þykka. Kælt. Skorið í
sneiðar og bakað við meðalhita.
(Kökurnar líkjast spesium að lög-
un).
Kornflakeslcökur.
2 dl hveiti, \'2 tesk. matarsódi, \%
tesk. salt, 100 gr smjörlíki, 1 dl
sykur og 1 dl púðursykur, 1 egg,
1 tesk. vaniljusykur, 2 dl korn-
flakes, 2 dl haframjöl, 1 dl kók-
ósmjöl.
Hveitið er sáldrað með matar-
sóda og salti. Smjörlíkið er hrært
með sykrinum, egginu og vanillju-
sykrinum. Þar í er blandað hveit-
inu, kókósmjölinu, haframjölinu
og kornflakesinu. Mótað í litl-
ar, flatar kúlur (ca. 30 stk.) sem
eru bakaðar við ca. 225 gráður í
10—12 mín. Hjúpsúkkulaði er
brætt í vatnsbaði. Látið með te-
skeið á miðju hverrar köku ásamt
hálfri möndlu.
Góð sykurbrauðskaka.
4 egg, 2 dl sykur, Hi dl hveitl,
1 dl kartöflumjöl, 1 tesk. Iyftiduft.
Eggin eru þeytt vel með sykrin-
um, hveiti, kartöflumjöl og lyfti-
duft er sáldrað saman og blandað
varlega saman við. Bakað í vel
smurðu móti. (Gott er að strá
brauðmylnsu eða hveiti í mótið, þá
festist kakan síður við). Hitinn er
hæfilegur 200—225 gráður. Kakan
er bökuð, þegar hún er vel lyft og
fallega gulbrún. Deigið er einnig
hægt að baka í 2—3 mótum. Gott
í margs konar rjómatertur.
Sykurbrauðskaka með
heilhveiti.
3 egg, 1\'2 bolli sykur, V/2 bolli
heilhveiti, 1\'2 matsk. hveiti, V/z
tesk. lyftiduft, 2\'2 matsk. sjóðandi
vatn. Rifið hýði af hálfri sítrónu.
Búið til og bakað á sama hátt
og áðurnefnd sykurbrauðskaka.
Heit ískaka.
Sykurbrauðsbotn er látinn á fat,
gott er að bleyta hann með ávaxta-
safa eða víni. í kring og ofan á er
raðað ávöxtum, ananas, perum eða
ferskjum. í staðinn fyrir ávexti er
Ávaxtastengur
100 gr smjör eða smjörlíki, 1 dl
sykur, 1 eggjarauða, 50 gr saxað-
ir, sultaðir ávextir eða 50 gr sax-
aðar rúsínur, appelsínuhýði og
einnig gott að láta gott ávaxta-
mauk, t. d. apríkósumauk. Það er
hægt að hafa hvaða tegund af ís
sem er á kökuna, annað hvort er
hann frystur í kökumótinu eða í
bitum, sem þá er raðað yfir. Það
fer eftir stærð kökunnar hvað
margar eggjahvítur þarf að ætla.
en nauðsynlegt er að þær hylji
hana.
Hvíturnar eru þeyttar mjög vel.
Flórsykur sáldraður og blandað
varlega saman við. Ætla má %
matsk. af flórsykri á móti hverri
hvítu. Smurt yfir kökuna og hún
látin í vel heitan ofn í 3—5 mín.
Þá á hvítan að vera farin að stífna.
Ath. að setja ísinn og hvíturnar
ekki yfir kökuna fyrr en rétt áð-
ur en hún er borin fram og baka
hana um það bil sem setzt er að
borðum. Kakan bakist á fati sem
þolir hita, t. d. stálfati.
Rjómaterta
með mokkakremi.
Sykurbrauðsdeig.
Mokkakrem.
150 gr smjör, 50 gr flórsykur, 1
eggjahvíta, 2 tesk. kaffiduft, 1—2
matsk. kakaó.
Smjörið er hrært lint. Eggjahvít-
ur og sykur er þeytt saman í skál
yfir gufu þar til það er létt og far-
ið að þykkna. Tekið af hitanum
og þeytt þar til það er kalt. (Ágætt
er að þeyta það í hrærivél). Þá
er smjöri, kakaói og kaffi blandað
varlega saman við. Kökubotnarnir
eru lagðir saman með kreminu.
Rjóminn er stífþeyttur og spraut-
að eða settur með skeið yfir kök-
una. Skreytt með niðursoðnum
perum, sem áður eru skornar í
skífur, og grófrifnu súkkulaði.
Rjómaterta, með hnetum
eða ávöxtum.
Saman við sykurbrauðsdeigið er
blandað smátt söxuðum hnetum og
\'2 tesk. af kanel. — Bakað í 2—3
botna, sem eru lagðir saman með
rjóma. Kakan er skreytt með
47. tbi. VIKAN 13