Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 2
911MUCK er spori framar.
Singer saumavélin Golden Panoramic
er fulikomnasta vélin á markaðnum.
Hún vinnur sjálfkrafa allt fra
þræðingu upp í 8 gerðir hnappagata.
Singer Golden Panoramic gefur.
nýja gullna möguleika.
Mcðal annarra kosta: hallandi nál, írjáls armur,
lárétt spóla fyrir framan nálina, sjálfvirkttr nálarþræðari,
ósýnilcgur faldsaumur, tcygjanlcgur
faldsaumur, kcðjuspor, „ovcrlokspor", tvcir ganghraðar,
5 ára ábyrgð, 6 tíina kcnnsla innifalin.
Ath. Allir sem eiga gamla saumavél, merkið skiptir
ekki máli, geta nú fengið hana metna sem greiðslu
við kaup á nýrri saumavél frá Singer.
Gamla vélin er e.t.v. meira virði en þér haldið.
Singer sala og kynning í Rcykjavík er hjá:
Rafbúð SÍS, Ármúla 3, Liverpool, Laugavegi.
Gefjun Iðunn, Austurstræti.
Utan Reykjavíkur:
Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Húnvetninga,
Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Eyfirðinga,
Kaupfélag Þingeyinga, Kaupfélag Héraðsbúa,
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, Kaupfélag Skaftfellinga,
Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Suðurnesja.
Kaupfélag Rangæinga.
komið og kynnist gullnu tækifæri.
IFULLRI
Ókurteisi og rosti
Eins og ævinlega er ungt fólk
samtímans snöggtum verra
því, sem gerðist á tíð fólks-
ins, sem nú er fullorðið að
árafjölda. Öllum er þó ljóst,
að varla er hugsanlegt að
þetta sé satt, ungt fólk verð-
ur ævinlega í einhverju frá-
brugðið kynslóðinni á undan,
þegar hún var ung, eða ein-
faldlega hitt, að menn eru
fljótir að gleyma því sem af-
laga fór en muna hið góða.
Eitt er það þó, sem ungu
kynslóðinni nú til dags má
örugglega núa um nasir með
réttu. Það er tillitsleysi og
ókurteisi. Það þarf ekki að
umgangast ungt fólk mikið,
til að sjá hve mjög því er
ábótavant um almenna kunn-
áttu í framkomu. Það talar
hranalega og ósvífnislega við
bláókunnuga og brennt er
fyrir, að það kunni að heilsa
eða kveðja með handabandi
eða þakka fyrir sig á sama
hátt — ef það þakkar fyrir
sig.
Á sama hátt fer það iðu-
lega um með mikilli háreysti,
jafnvel þótt á almennum
svefntíma sé, það ryðst á
mannamótum og í verzlun-
um, verði því fyrirgefningar-
beiðni af munni er það hef-
ur hrundið einhverjum eða
troðið um tær, er það frem-
ur í skipunartóni en iðrunar.
Glósur um náungann á göt-
unni og sá ósiður að senda
tóninn er meira en daglegt
brauð.
Þetta kemur undarlega fyr-
ir sjónir, því þegar nánari
kynni verða við þetta unga
fólk, kemur gjarnan í ljós, að
það er góðgjarnt og vill í
rauninni engum illt gera. —-
Hvað er þetta þá? Er tíðar-
andinn sá, að vera skuli há-
vaðasamur, rostafullur og
töff?
Vonandi fer sem mig grun-
ar, að þetta fólk þoli sínum
börnum síðar meir ekki sams
konar framkomu og næsta
kynslóð verði siðfágaðri og
kurteisari.
S. H.
2 VIKAN 50' tbl