Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 5
r.
mommu. Maður hugsar
ekki um foreldra sína á
þann hátt, eða hvað finnst
þér?
Nú er svo komið, að
strákurinn minn heimsæk-
ir mig næstum aldrei, og
hringir miklu sjaldnar til
mín en áður. Ég er hér um
bil viss um, að það er bara
út af foreldrum mínum. —
Kæri Póstur, gefðu mér nú
gott ráð.
Stína.
Enginn maður er frjáls,
sem á sér fjölskyldu, stend-
ur einhvers staðar. En það
er laukrétt athugað hjá
þér, að börn eiga að taka
foreldrum sínum eins og
þeir eru, en hugsa ekki
um, hvort þeir séu leiðin-
legir eða skemmtilegir.
Þeir eru foreldrar manns,
hvað sem öllu líður, og ná-
tengdari manni en nokkr-
ar aðrar manneskjur. Okk-
ur finnst hegðun stráksins
þíns svolítið einkennileg.
Ef honum er annt um þig
í raun og veru, þá spáum
við því, að hann sætti sig
við foreldra þína smátt og
smátt.
AÐ VERÐA RITHÖFUNDUR
Kæri Póstur!
Það sem mig langar til
að spyrja þig um er svo-
lítið einkennilegt. Mig hef-
ur lengi langað til að
skrifa þér, en ég hef aldr-
ei þorað það, fyrr en núna.
Kannski er spurningin svo
heimskuleg, að hún er ekki
svaraverð, en ég læt hana
samt gossa: Mig langar til
að verða rithöfundur. —
Hvaða menntun er heppi-
legust til þess starfs? Er
hægt að læra að verða rit-
höfundur erlendis? Fyrir-
gefðu vélritunina. Ég er
ekki búinn að læra al-
mennilega á ritvél ennþá.
Með von um svar fljótt.
Einn 13 ára.
f Ameríku geta menn
lært hvað sem er, meira að
segja líka að verða rithöf-
undar. Þar er hægt að taka
háskólagráöu í ritmennsku,
að því er sagt er. En menn
eru ekki orðnir rithöfund-
ar, þótt þeir hafi krækt
sér í slíkt próf. Til þess
þarf guðsgáfu og óhemju-
mikla vinnu og þjálfun,
sem fæst einna helzt með
lífsreynslu og lestri góðra
bóka.
ALLT NEMA EKKI
NORÐURLÖNDIN
Elsku, hjartans, bezta
Vika!
v_______________________-
Þú ert nú alltaf svo ynd-
islega skilningsgóð og
hjálpfús. Nú er þetta ekk-
ert vandamál, sem ég ætla
að biðja þig að leysa, held-
ur eru það upplýsingar,
sem mig langar til að fá.
Ég veit, að þú ert engin
upplýsingaþjónusta, eins
og margir virðast halda.
En af því að ég hef nú les-
ið Póstinn undanfarin þrjú
ár og séð allt það mögu-
lega og ómögulega, sem
fólk skrifar þér um og bið-
ur þig að leysa, þá ætla ég
að vera svo djörf að biðja
þig að birta fyrir mig heiti
og heimilisfang blaða í
Englandi, Þýzkalandi,
Bandaríkjunum eða hvar
sem er í heiminum (nema
á Norðurlöndunum). Þessi
blöð þurfa að vera með
því marki brennd, að þau
birti óskir um pennavini.
Ég veit, að það á ekki vel
við að segja „heimilisföng“
blaða, en það er eina orð-
ið sem ég man eftir í svip-
inn um aðsetur einhvers,
nema adressa, en það held
ég að sé ekki góð íslenzka.
Elsku, góða Vika! Gerðu
þetta fyrir mig eins fljótt
og þú mögulega getur, og
segðu mér líka hvort það
kostar eitthvað að senda
nafnið sitt til birtingar í
slíkum blöðum.
Ein pennaglöð.
Við tökum ofan fyrir
virðingu þinni gagnvart
móðurmálinu, en höfum
hins vegar áhyggjur af
andúð þinni á frændum
vorum á Norðurlöndunum.
Okkur er kunnugt um, að
í Þýzkalandi starfar klúbb-
ur, sem hefur eingöngu
með bréfasviðskipti og
pennavini að gera. Þetta er
alþjóðlegur klúbbur og
hefur á boðstólum penna-
vini frá hundrað löndum,
svo að þú ættir að fá úr
nógu að moða, ef þú skrif
ar honum. Nafn hans og
lieimilisfang er svohljóð-
andi: Correspondence Club
Hermes, Berlin 11, Box 17,
Germany.
HOOVER
Heimsbekkt vörumerki
Hoover þvottavélar 8 gerSir
Hoover kæliskópar 5 gerSir
Hoover ryksugur 8 gerðir
Hoover bónvélar 2 gerSir
Hoover rafmagnsofnar 3 gerSir
Hoover straujórn 3 gerSir
Hoover uppþvottavélar
Hoover hórþurrkur
Hoover hrærivélar
Hoover teppaburstar
Hoover eldavélahimnar
Hoover vörurnar fóst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavik,
sími 14376.
EinkaumboS:
MAGNÚS KJARAN
UmboSs- & heildverzlun
50. tbi. yiKAN 5