Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 7
erfingja). Mér fannst ég
búa á háalofti heima hjá
foreldrum mínum (loftið
er ekki manngengt) og
átti dreng og stúlku, sem
voru svipuð á stærð og
bæði í eins peysum, annað
í bleikri en hitt í blárri
(alveg eins og ég var að
prjóna).
MEÐ GULT BLÖM
í HNAPPAGATINU
Heil sértu Vika og til
hamingju með 30 ára af-
mælið þitt!
Fyrir stuttu dreymdi
mig draum, sem mér þykir
afar einkennilegur, þ. e.
miðað við aðra drauma,
sem mig hefur dreymt. Ég
óska þess að heyra álit
þitt á draumnum, sem er
á þessa leið:
Ég hélt á mjög falleg-
um, litlum blómvendi,
sem gerður var úr ýms-
um fallegum blómum, en
þau voru öll gul.
Ég virti vöndinn vel
fyrir mér. Þá kom til mín
ungur maður, sem ég
þekkti mjög vel einu sinni.
Hann sleit eitt blómið úr
vendinum og stakk því í
hnappagatið á jakkanum
sínum.
Lengri varð draumurinn
ekki.
Með fyrirfram þökk
fyrir ráðninguna.
Dísa í draumalandi.
Gult blóm í draumi
táknar yfirleitt öfund og
illdeilur, en þrátt fyrir það
ráðum við draum þinn
þannig: Þessi ungi maður
ber enn hlýjan hug til þín
og þú til hans. Þið eruð
bæði vansæl og óham-
ingjusöm, síðan slitnaði
upp úr sambandi ykkar.
Hvort þið hittizt aftur
verður hins vegar ekki
ráðið af þessum draumi að
okkar áliti.
AÐ DETTA NIÐUR
STIGA
Mig dreymdi fyrir
nokkrum árum draum,
sem mig hefur lengi lang-
að til að biðja um ráðn-
ingu á.
Mér fannst vera stríð
hér á landi og maðurinn
minn vera að heiman. (Ég
átti von á barni og var að
prjóna dálítið sérkenni-
lega peysu á tilvonandi
Allt í einu detta bæði
börnin niður stigann af
loftinu og annan stiga enn
þá lengra niður. Um leið
verð ég föst í opinu efst.
Það líður góð stund. Þá
kallar mamma mín:
„Þau hafa ekkert meitt
sig!“
Þá losna ég um leið.
Síðan hlaupum við öll og
höldum saman höndum,
maðurinn minn og ég og
börnin á milli okkar. Sól-
in var svo sterk og heit og
grasið allt í kring sterk-
grænt. Við hlupum svo
hratt, að fæturnir snertu
ekki jörðina. Mér fannst
alveg eins og við værum
öll komin til himna.
Með fyrirfram þökk.
B. S.
Þessi draumur er tví-
mælalaust fyrir erfiðleik-
um. sem þú hefur miklar
áhyggjur af. En þér tekst
að sigrast á þeim og síðasti
hluti draumsins getur ekki
táknað annað en bjarta
daga og hamingjuríka.
HRINGUR
OG TJÖRN
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja
þig um að ráða fyrir mig
draum, sem mig dreymdi
nýlega. Mér er hann svo
minnisstæður, að ég hugsa
varla um annað.
Hann byrjaði þannig, að
mér fannst ég standa á
ganginum í skólanum, sem
ég er í. Mér fannst bekkj-
arsystur mínar koma
gangandi eftir ganginum
til mín. Mér fannst ég
vera með breiðan trúlof-
unarhring á hægri hendi
og annan hring fyrir fram-
an hann, sem var með
skjannahvítri perlu. Mér
fannst stelpurnar vera að
skoða hringinn. Þær tóku
hann af mér og þá sá ég,
að það var mynstur á hon-
um. Látlausasta og falleg-
asta mynstrið fannst mér
snúa upp, en það ljótara
Framhald á bls. 28.
SJALFVIRK
ÞVOTTAVéL
5 KG.
SJALFVIRK
ÞVOTTAVÉL
4 KG.
KÆLISKAPAR fimm stærðir
afborgunarskilmalar
Snorrabraut 44 - ReykjavíK
Pósthólf 119 - Símar 16242 - 15470
—
so. tbi. vikAN 7