Vikan - 19.12.1968, Blaðsíða 49
SKCTAUT TIL
AÐ HENGJA
UPP
Þessi munstur má klippa i
pappa, pappír, málmpappír eða
annað, skreyta síðan með perl-
um og öðru smáskrauti, svo sem
pallíettum og glitdufti, jólatrés-
skrauti. Munstrin eru hálf, eins og þið sjáið,
svo að leggja þarf efnið tvöfalt, sé það þunnt,
annars snúa munstrinu við og teikna á hinn
helminginn. Veljið pípuhreinsara í réttri lengd,
til þess að halda skrautinu beinu, en þræðið
perlur á þá hluta hans, sem sjást, eftir að
pappinn hefur verið lagður á hann, en pípu-
hreínsarinn er límdur á bakhlið munstursins,
sem haft er tvöfalt, eigi það að hanga, þann-
ig að báðar hliðar séu eins. Festið jólatrés-
kúlu eða stóra perlu á endann, en beygið
hann að ofan og hnýtið stífu silkibandi þar
á og gerið úr því lykkju, svo að hægt sé að
hengja þetta ,upp.
Hér báSum megin
eru skemmtilegir
jólapaklcar, en auk
myndarinnar er
Umt á þá skraut.
Á svaninn, sem
klipptur er út á
pakkann hér t. v.
er t. d. límt perlu-
auga og fjaörir, en
kötturinn er meö
litla perlufesti.
Hér nœst t. v. er íariS
með appelsínu eins og
þegar negulnöglum er
stungið um hana alla,
til að gefa góða lykt og
skemmtilegt útlit. Á
þessari mynd eru það
litlir grenikvistar, sem
þekja hana og síðan er
hún hengd upp í silki-
bc nd. Næsta mynd sýnir
hvernig gera má jóla-
skraut úr valhnetum
með því að bronsa þær.
fKERTI í GLÖSUIV8
Fallegt borðskraut fæst með þvi að bræða hvíta kertaafganga í potti ofan í öðrum potti,
þar sem vatnið sýður. Þegar vaxið er bráðið, eru kveikirnir teknir úr. Bætið vaxlitum, eíns
og börn nota til að lita með, í vaxið, þann lit, sem óskað er eftir, og blandið vel. Hellið í
ábætisglös og látið kólna, en ekki stífna alveg. Setjið lítið kerti i miðju hvers glass og
hellið meira vaxi kringum það, ef þarf. Þegar vaxið er stíft, er hvítt kerti rifið á rifjúrni,
þannig að það líti út eins og snjór eða ábætisskraut.