Vikan


Vikan - 19.12.1968, Qupperneq 10

Vikan - 19.12.1968, Qupperneq 10
þessu ágæta lagi, sem Aretha Franklin hefur sungið undir heitinu „Think“. Þeir félagarnir hefðu að minni hyggju mátt liugsa málið aðeins betur, þegar þeir völdu þetta lag. Megingallinn er sá, að það hentar alls ekki annars ágætri rödd Jónasar Jónassonar. Undirleikurinn er kraftmikill og vel útfærður, tn það er bara ekki nóg. Texti þessa lags er kapí- tuli út af fyrir sig. Til allrar lukku er textaframburðurinn slíkur, að ekki eitt einasta orð skilst, að einni setningu und- anskilinni, en hún er ekki prenthæf, — og nú þykist ég vita, að vinur minn, Þorsteinn Eggertsson, sem gert hefur textann, glotti út í aðra, þegar hann les þetta! Svo er að lokum að geta lagsins „And- vaka“, sem er skráð sameign Karls og Arnar Sigurbjörnssonar, gítarleikara hljómsveitarinnar. Þeir félagarnir eiga sannarlega skilið að fá blóm í hnappa- götin fyrir þetta hugnæma og sérlega fallega lag. Ujjpbygging þessa lags er í sama andanum og músik Gibb bræðr- Framhald á bls. 28. Þannig- sá Kristinn Benediktsson Flowers í gegnum myndavél sína, þegar þeir félagarnir héldu hátíðlegt eins árs afmæli hljómsveit- arinnar fyrir skömmu. þættinum „Hér gala gaukar“. Útsetning Flowers er hin ágætasta og sama má segja um söng Jónasar Jónassonar. Samt sný ég ekki aftur með það, að mér finnst hann syngja glettilega líkt og Rúnar sjálfur! Þegar laginu lýkur tekur við við- auki frá Flowers, þar sem þeir rugla með hljóðfærin. Einu sinni sem oftar sagði Karl Sig- hvatsson mér, að hann gæti ekki samið lög. Það væri bara alls ekki á hans línu. Þegar hann sagði þetta, var hann að pota í Hammond-orgel sjónvarpsins; sagðist vera að „rugla eitthvað“, eins og hann orðaði það. Þetta „rugl“ Karls er nú komið á hljómplötu — og sómir sér meira að segja hið bezta! Þessi fyrsta tónsmíð Karls, sem kemur fyrir almenn- ingseyru, heitir „Rlómið“, og er það heiti við hæfi. Þetta er rómantískt lag, það er ljóðræn og angurvær stemning yfir því, uppbyggingin einföld en útsetn- ingin hins vegar blæbrigðarík. Tónninn í flautu Jónasar er að vísu nokkuð mátt- leysislegur og verður lagið fyrir vikið ekki alveg eins áheyrilegt og skyldi. Þetta lag mundi sóma sér vel i búningi fyrir stóra sveit strengja og horna. Hlið nr. tvö á plötunni hefst með miklum hljóðum og stórbrotnum forleik að laginu „Slappaðu af“. Raunar er for- leikurinn og lokaspretturinn hið bezta í RÚNAR RG KARL EIGA RESIU LÚGIN V _______________/ NVJAR HUÖMPlOTUR '{mmwr Allir munu vera á einu máli um, að vel hafi til tekizt. hjá Flowers ineð fyrstu hljómplötu þeirra. Það gustar svo sann- arlega af þeim sveinum á plötunni, og yfir lögunum er persónulegur stíll, sér- kennilegur og viðfelldinn. Þá er það til hagsbóta, að upptaka plötunnar hefur tekizt með miklum ágætum. Beztu lög jilötunnar eru lag Rúnars Gunnarssonar, „GIugginn“, og lag Karls Sighvatsssonar, „Blómið“. „Glugginn“ er að vísu ekki alveg nýtt lag. Höfundur- inn söng það sjálfur fyrir svo sem ári í 10 VIKAN 50- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.