Vikan - 19.12.1968, Page 20
Efst: Onassis og Jackie við brúðkaupið. Myndirnar tvær lengst til hægri eru einnig þaðan; á
þeirri neðri talar Jackie við dóttur Onassisar af fyrra hjónabandi. Til vinstri á þeirri mynd er
Pólýkarpos erkimandríti, sem gaf hjónaefnin saman. Hann er vitaskuld grísk-orþódox eins og
brúðguminn, en Jackie rómversk-kaþólsk. Hafa forustumenn þeirra trúarbragða því gefið til
kynna, fyrir hönd sinnar kirkju, að hjónaband þetta sé ómark og ekki betra en hver annar synd-
samlegur lifnaður, fyrst blessun Rómarkirkjunnar hafi ekki komið til. — Myndin hér að ofan er frá
því að Jackie var gestur um borð í lystisnekkju Onassisar fyrrmeir, þá forsetafrú Bandaríkjanna.
Að ofan til vinstri er hann ásamt systur Jackiear, prinsessunni Radziwill. Hann vildi heldur
drottningu Ameríku.
20 VIKAN 50-tbl-