Vikan


Vikan - 19.12.1968, Side 32

Vikan - 19.12.1968, Side 32
RONSON KVEIKJARAR Vanti yöur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hvorfisgata 89, Reykjavík. STJÓRNUSPÁ* * Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert vel fyrir kallaður og afkastar miklu. Þér veitist tækifæri til að vekja áhuga á tómstunda- gamni þínu. Gættu varúðar í viðskiptum. Útgjöld þín eru nokkuð hærri en þú áætlar. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Draumur þinn um ferðalag rennur út í sandinn. Þú gerir nýja sparnaðaráætlun, en gakktu ekki of nærri þér. Taktu lífinu með eins mikilli ró og þér er unnt. Þú ættir að fara í bíó. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): í tveim málum, sem lengi hafa hvílt á þér, eygirðu nú farsæla lausn. Haltu vel gefin loforð. Þú hefur ýtt undir ákveðnar athafnir en vilt svo hvergi koma nærri er á reynir. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Það getur verið varhugavert að skemmta sér mjög mikið þessa vikuna. Þú verður beittur brögðum og reynt að leika á þig. Þú eignast fádæma góða bók. Vonbrigði í einkalífinu. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Starfsfélagi þinn er svo útkjálkalegur að reyna að uppnefna alla, reyndu að koma vitinu fyrir hann. Þú ler.dir í skemmtilegu ævintýri um helgina. Farðu ekki laumulega með fyrirætlanirnar. & Bogmannsmerkið (23. nóvember —■ 21. des.): Þér hættir til að framkvæma um leið og þú hugs- ar, en vertu sérleg# varkár, einmitt nú. Vertu ekki á ferli seint um kvöld. Þriðjudagurinn reynir mik- ið á afkastagetu þína. Happatala er þrír. % Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þig vantar lífsfyllingu. Snúðu við blaðinu og gefðu þér tíma til hvíldar og einnig til þess er þig langar að gera. Þú hefur miklar áhyggjur af nánum vini. Þú lendir í vandræðalegum kringumstæðum. j£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú leggur hart að þér til að þóknast öðrum en upp- skeran svarar ekki erfiðinu. Sýndu sjálfstæði þitt í verki og snúðu við blaðinu. Öfund starfsfélaga þíns kemur sér óþægilega. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Taktu ófyrirsjáanlegar tafir með í reikninginn; sér- staklega ef þú hyggur ó ferðalag. Komdu verkum þínum þannig fyrir að þú þurfir ekki að vinna að þeim á kvöldin. Heimsóttu engan óboðinn. Vatnsbéramerkið (21. janúar — 19. febrúar): Framkvæmdir sem stuðla að heill heimilis þíns eru undir hagstæðum áhrifum. Þér er trúað fyrir leynd- armáli sem gerir þér erfitt fyrir. Réttur tfmi til að endurgjalda bréfaskriftir. Mti* Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september); Leggðu ekki of hart að þér; eins og er. líður þér ágætlega og tímarnir eru ekki vel fallnir til við- skipta. Vegna framkvæmda umhverfis þig verð- urðu fyrir nokkrum óþægindum. Erlendar fréttir. | Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vinkona þín hefur orðið fyrir óhappi og er í þínu valdi að bæta um fyrir henni. Þú ert önnum kaf- inn við að fegra umhverfi þitt. Leiðinlegar deilur rísa upp á vinnustað.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.