Vikan - 19.12.1968, Qupperneq 50
PIRA-SYSTEM
HIN FRÁBÆRA NÝJA
HILLUSAMSTÆÐA ER í SENN
HAGKVÆM OG ÓDÝR
Það er ekki margt, sem hefur lækkað
í verði að undanförnu. Það hafa PIRA
hillusamstæðurnar gert sökum hagræð-
ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nefn-
ið til hvers þér þurfið hillur og PIRA
er svarið. Odýrustu bókahillur, sem völ
er á, hillur og borð í barnaherbergi, í
vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið.
Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli
borðstofu og stofu með PIRA-vegg.
Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA
hillusamstæður geta staðið upp við vegg,
eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf-
ur eða naglar til að skemma veggina.
Notið veggrýmið og aukið notagildi
íbúðarinnar. PIRA hillusamstæðumar
eru iáusn nútímans.
HÚS OG SKIP hf.
Ánnúla 5 — Sími 84415—84416.
ÞÉR SPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MEÐ ÞVÍ AÐ
GERAST ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
VIKAN ÉR IIEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINA R OG EFNI FVRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O.FL., O.FL.
Vinsamlegast sendiS mér Vikuna í áskrift
4 TOLUBLOÐ Kr. 170.00. Hveii blað á kr. 42.50.
3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvert blað á kr. 36.58.
6 MÁNUÐIR ■ 26 tölubl. - Kr. 900.00. Hvert blað á kr. 34.62.
Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1. febrúar —
1. maí — 1. ógúst — 1. nóvember.
Skrifið, hringið eða komið.
NAFN
HEIMILI
PÓSTSTÖÐ
VIKAN
SKIPH0LTI 33
PÓSTHÓLF 533
REYKJAVÍK
SÍMAR:
36720 - 35320
n
i
i
i
j
stjörnu, sem blikaði enn beint
yfir gistihúsinu. En það var ekki
stjarnan sem hann sá, heldur stór
og saklaus barnsaugu.
,,Leo,“ sagði hann. Það var Leo,
sem brosti til hans; hinn endur-
borni Leo, sem lá í jötu með
gullna Davíðsstjörnu í höndum.
Antonius gekk út i kalda og
bjarta nóttina. Enn einu sinni
leit hann upp til himins. Stjarn-
an var svo skær og virtist vera
svo nærri, að honum fannst hann
gæti tekið hana og handleikið
eins og barnið Davíðsstjörnuna.
Honum hafði tekizt að sigrast á
sorginni og einmanaleikanum.
Hann var nú hugrakkari og sterk-
ari en nokkru sinni fyrr.
Maríus lá enn við bálið. Vín-
kúturinn var tómur. Hann reis
á fætur, þegar hann sá til manna-
ferða. Hann var óstyrkur á fótum
eftir víndrykkjuna. En honum
létti, þegar hann sá, að vinur
hans var kominn aftur heill á
húfi.
„Svo að þú ert kominn aftur,“
sagði hann. „Ég var farinn að
halda, að við yrðum að fara að
leita að þér. Hvar í ósköpunum
hefurðu verið, Antonius? Þú hef-
ur drukkið. Ég sé það á göngu-
laginu.“
„Nei.“
„Þú ert eitthvað svo einkenni-
legur í framan,“ sagði Maríus og
kíkti framan í vin sinn og var
nærri oltinn um koll. Antonius
rétti honum höndina og studdi
hann.
„Hvar hefurðu verið?“ spurði
Maríus enn.
„Ég var að halda hátíðlega fæð-
ingu lítils Gyðingabarns."
„Hvaða endemis blaður er
þetta í þér! Ég fer að halda, að
þú hafir misst vitið."
„Barn fæddist og var lagt í
jötu, af því að það var ekkert
rúm fyrir það í gistihúsinu."
Þeir gengu í áttina að herbúð-
unum. Antonius sagði annars
hugar á leiðinni:
„Ég veit ekki hvað verðum um
þetta barn. Það mun eflaust lifa
og deyja, eins og við verðum öll
að gera. En þetta var mjög
óvenjulegt barn. Það grét ekki.
Heyrirðu hvað ég segi, Maríus?
Það grét ekki.“
Marius svaraði hæðnisrómi:
„Það er naumast að þú gerir
veður út af nýfæddu barni, Hvað
hét það?“
„Ég veit það ekki. Ef til vill —
Leo.“
„Ef þetta hefði nú verið eitl-
hvert stórmenni, sem var að fæð-
ast, þá mundi ég skilja þig. En
þetta var ekki annað en einn
Gyðingakrakkinn í viðbót. Það
er allt og sumt.“
Barnsaugu, sem bjuggu yfir
vizku veraldar. Nýr heimur,
annar heimur, þar sem rúm yrði
fyrir alla í gistihúsinu.
„Já,“ sagði Antonius. „Það er
allt og sumt.“
Síðan gengu þeir inn í tjaldið.
50 VIKAN 50-tbl-