Vikan - 02.04.1969, Page 11
Roger Moore og staðgcngill hans, Kenncth Norris. Þeir cru mjög áþekkir
íljótt á litið, ckki mjög líkir í andliti, cn vöxturinn er sá sami og hreyf-
ingarnar.
HflNH MIHHUB
flFBtKIN FYRIB
DYRLINGINN
ÞEGAR DÝRLLNGURiNN EKUR Á OFSA-
HRAÐA, KLtFRAR UPP SNARBRÖTT FJÖLL
EÐA STEKKUR OFAN AF HÚSÞÖKUM, -
ÞÁ ER EKKÍ ROGER MOORE ÞAR AÐ
VERKI, HELDUR STAÐGENGILL HANS,
KENNETH NORRIS...
Hinir fjölmörgu aðdáendur Dýr-
lingsins hafa eflaust oft setið við
sjónvarpstækin sín fullir aðdá-
unar á því, hversu djarfur og
öruggur bílstjóri hann er, hvað
hann er duglegur að klifra í
bröttum fjöllum, að ekki sé
minnzt á fífldirfsku hans, þegar
hann hoppar niður af húsþökum.
En það er aUs ekki Roger
Moore, sem vinnur ÖU þessi af-
reksverk, eins og algengt er í
kvikmyndum, heldur annar mað-
ur, sem líkist honum á margan
hátt. Þessi maður heitir Kenn-
eth Norris og er mjög líkur
Roger Moore hvað snertir vaxt-
arlag og hreyfingar.
Þeir eru svo áþekkir fljótt á
litið, sérstaklega baksvipurinn,
að eitt sinn kom eiginkona Rog-
er Moore, ítalska leikkonan Lisa
Mattiolli, í kvikmyndaverið, þar
sem verið var að taka upp nýj-
an þátt um Dýrlinginn, rauk að
Kenneth Norris og áttaði sig
ekki á því, að hún hafði farið
mannavillt, fyrr en hann sneri
sér við og brosti.
Kenneth Norris er 33 ára gam-
all og hefur verið staðgengill
Roger Moore í þrjú ár. Þegar
hann tók hlutverkið að sér, varð
hann að vinna eið að því að
koma hvergi fram og láta ekkert
á sér bera. Hann mátti ekki eiga
viðtöl við blaðamenn og myndir
af honum máttu hvergi birtast.
Framleiðendur myndanna um
DýrUnginn áUtu, að það gæti
skaðað áUt og vinsældir Roger
Moore, ef það vitnaðist, að hann
léti annan mann vinna öll erfið-
ustu verkin fyrir sig.
„Roger Moore gerir aUt sjálf-
ur“ var hvað eftir annað lýst yf-
ir á blaðamannafundum. Á með-
an var Kenneth vandlega falinn
einhvers staðar í bakherbergi!
En nú er framleiðslu á Dýr-
lingsþáttunum hætt, að minnsta
kosti í biU, og Kenneth Norris
þarf ekki lengur að fara huldu
höfði.
— Ég er feginn, að þessu skuli
loksins vera lokið, sagði hann í
blaðaviðtali nýlega. — Það dug-
ir ekki að vera skuggi annars
manns til eilifðar.. Ég hef aUtaf
ætlað mér að verða leikari sjálf-
ur og trúi því, að mér muni tak-
ast það. Það var framleiðandi
Dýrlingsins, Bob Bauer, sem
hitti mig fyrir röskum þremur
árum og spurði mig strax, hvort
ég vildi gerast staðgengill Rog-
er Moore.
Ég var alger byrjandi í leik-
listinni þegar þetta var og samn-
ingurinn sem hann bauð mér
tryggði mér góðar tekjur í þrjú
ár. Svo ég þáði boðið.
Roger Moore varð mjög undr-
Framhald á bls. 46.
V..
14. tbi. VIKAN 11