Vikan - 02.04.1969, Síða 16
Margir virðast þeirrar skoð-
unar, að með Pillunni sé fundin
upp sú getnaðarvörn, sem ekki
verði fram úr komizt. Þar sé
komin vörn, sem sé 100% ör-
ugg, snyrtileg, og hliðarverkan-
ir engar, eða í svo litlum mæli,
að varla taki því að minnast á
þær.
Rétt mun það, að pillan er í
sjálfu sér 100% örugg, en ör-
yggi hennar sem getnaðarvarn-
ar er ekki slíkt. Það byggist á
því, að konan getur gleymt að
taka pilluna, sjúkdómar í maga
(kveisa, uppköst) geta eyðilagt
áhrif einnar pillu eða komið
henni burtu úr líkamanum áð-
ur en hún nær að verka, og er
þá ekki að sökum að spyrja.
Einnig eru þess dæmi, að ungl-
ingsstúlkur á gelgjuskeiði hafi
rænt pillum móður sinnar og
látið útlitslíkar töflur í staðinn,
en með allt öðrum verkunum,
svo sem sakkarín.
Enn er unnið að fullkomnun
pillu, sem ekki þarf að taka
nema einu sinni í mánuði, og
því aðeins, að eðlilegar mánað-
arblæðingar geri ekki vart við
sig á réttum tíma. Þessi pilla
hefur ekki verið sett á markað-
inn enn. Á sviði lyfjasölu ríkir
nú meiri varfærni en áður, eft-
ir hið ógurlega Thalidomydmál,
sem illfrægt er orðið. Ýmsir sál-
fræðingar telja þó, að sú pilla
muni ekki ná tilgangi sínum
nema í sambandi við kynmök
utan hjónabands, því mörg hjón
muni ekki tíma að beita þeirri
pillu, er þau grunar að frjóvg-
un hafi átt sér stað, heldur taki
þann kostinn að bíða fram í
fyllingu tímans.
En eitt er öllum verjum, að
einni undanskilinni, sameigin-
legt: Það er konan, sem ber
ábyrgðina. Þessi eina verja, sem
karlmönnum er ætluð, þykir að
vísu tiltölulega örugg, en jafn-
framt er hún hvimleið í með-
förum og lítið snyrtileg. Þess
hefur því verið beðið með
óþreyju, að fram kæmi eitthvað
nýtt í þessum málum — eitt-
hvað, sem karlmaðurinn gæti
notað án óþægilegra hliðarverk-
ana, andlegra eða líkamlegra.
Fundin hefur að vísu verið
pilla handa karlmönnum, sem
sýndi við rannsóknir á rannsókn-
arstofum 100% öryggi, en þær
tilraunir og rannsóknir voru
gerðar við ríkisfangelsi eitt í
Bandaríkjunum, þar sem fang-
arnir höfðu hvorki aðgang að
kvenfólki né öðrum lystisemd-
um. Þegar hins vegar tilraunir
voru gerðar á frjálsum mönn-
um, kom alvarlegur galli í ljós:
Þeir máttu ekki neyta áfengis í
neinni mynd, ekki einu sinni í
mat, þá urðu þeir fárveikir. Því
var sú pilla sett úr leik.
En nú hafa bandarískir vís-
indamenn fundið nýja lausn á
þessum vanda. Það hefur lengi
verið talið, að allt líf og hreyf-
ing I líkamanum stafaði af raf-
orku, og það var á því sviði, sem
ungur rafeðlisfræðingur, Sig-
fried Weeklee að nafni, hóf til-
raunir sínar. Hann reyndi með
rafmagnsstraumi að gera sæðis-
frumur karlmannsins máttvana
eða granda þeim alveg, annað
hvort áður en þær yfirgæfu lík-
ama karlmannsins eða þegar
eftir, sem sagt áður en þær næðu
að frjóvga egg konunnar, eða,
16 VIKAN 14 tbl'