Vikan - 02.04.1969, Side 19
en fram með kinninni hinum
megin og sveigt út á við að neð-
an.
Neðri mynd:
Einföld og þægileg greiðsla, sem
hentar flestum. Ef hárið er
þunnt er hægt að laga það með
léttu permanenti og góðum hár-
lagningavökva. Burstið hárið
varlega upp frá enninu og túp-
erið allt hárið. Greiðið það síðan
slétt og sveigið út að neðan.
&
Einfaldar hárgreiðslur fyrir ung-
ar stúlkur. Notið 12 rúllur, 3
stórar fyrir hvirfilinn, 2 milli-
stórar fyrir hliðarhár og efst á
hnakka og mjóar neðst í hnakka-
hár. Krullurnar eru burstaðar
úr og allt hárið túperað létt.
Skiptið hárinu í miðju (eða til
hliðar) og sléttið úr hárinu,
beygið það inn á við að neðan.
Neðri mynd:
Hárið þarf að vera stutt fyrir
þessa greiðslu og ef ekki er fall
í því frá náttúrunnar hálfu, er
hægt að bjarga því við með léttu
permanenti. Notið millistórar
rúllur og limband á neðstu
hnakkahárin. Hárið er burstað
og túperað, svo greiðslan verði
nokkuð há. Skiptið öðrum meg-
in. Framhárið er burstað niður
að annarri augnabrúninni og aft-
ur með eyranu. Hliðarhárið hin-
um megin er burstað fram og
beygt út á við.
o
Hárið þarf að vera allt að því
axlarsítt og liðað, annaðhvort
náttúruliðað eða með perman-
enti. Vafið upp á 25 rúllur, 3
stórar í hvirfilhárið, 17 millistór-
ar að framan og til hliðar og 5
mjóar fyrir hnakkahárið. Burst-
ið hárið vandlega fyrir greiðsl-
una. Skiptið í annarri hliðinni
og látið hárið falla niður með
vöngunum. Ennistoppurinn er
burstaðaur niður að annarri
brúninni og í mjúka beygju aft-
ur með eyranu. Hliðarhárið hin-
um megin er burstað fram á við
og hárið beygt út að neðan.
©
Skemmtileg greiðsla fyrir ungar
stúlkur með axlarsítt ár. Hárið
er vafið upp á sama hátt og
greiðslan hér á undan sýnir. Hár-
ið er túperað á hvirflinum og
síðan burstað vel og beygt út að
neðan.
©
Stutt, þægileg og handhæg
greiðsla fyrir þykkt hár. Meðal-
stórar rúllur. Hnakkahár og enn-
istoppur límd niður með lím-
bandi. Túperað allt hárið.
Hnakkahárið er styttra en hlið-
arhárið, sem annaðhvort er hægt
að bursta fram með kinnunum
eða aftur fyrir eynm.
o
Kvenleg hárgreiðsla fyrir axlar-
sítt hár. Hárið er vafið upp á
stórar rúUur og burstað varlega
úr því. Það er ágætt að halda
hárinu frá enninu með bandi
eða spennu. Hárið er túperað létt
að neðan, svo það liggi frjálslega
frá öxlum.
©
Einföld hárgreijðsla fyrlr grá-
sprengt hájr. Notið meðalstrar
rúUur. Burstið hárið og túperið.
Ennistoppurinn er burstaður vel
fram á enniö, hnakkahárið
burstað beint niður, hUðarhárið
burstað frá gagnaugunum fram
yfir eyrun og látið enda svo í
mjúkum boga aftur með eyrun-
um.
:
ililliiil
:-'í 'V.ý
.
mmm
\ :
i
■
■ ' ■.
.' 'V:;' i:V
I
:::V .V:-'.vv: