Vikan


Vikan - 02.04.1969, Síða 25

Vikan - 02.04.1969, Síða 25
Geir og Sylvía systir hans — snemma beygist krókurinn, boltinn þegar kom- inn í spilið. Hallsteinn og frú Ingibjörg ásamt börnum og dótturdóttur. Örn er fyrir framan til vinstri en Geir heldur á Ingibjörgu Klöru, l1/* árs dóttur Syl- víu, en milli foreldranna sitja þau Ingvar og Sylvía, sem er gift kunnum knattspyrnumanni, Ilelga Númasyni í Fram. sjónarsviðinu, en Hallsteinn Hin- riksson er faðir Geirs, sem reyndist sannarlega betri en eng- inn í þessari frumraun sinni. Mér fannst það síður en svo erfið ákvörðun að senda drenginn í leikinn," sagði Hall- steinn sjálfur um þetta. Daginn eftir mátti lesa eftirfarandi í Vísi: Beztu menn liðanna voru þeir Ragnar Jónsson, Birgir Björnsson, Kristján Stefánsson og bráðefnilegur nýliði, enn eitt barna Hallsteins Hinrikssonar, þjálfara PH, Geir Hallsteinsson. Má mikils af honum vænta í framtíðinni....“ .... EN HANN ER OF LÍTILL Geir var talsvert umræddur leikmaður í upphafi. Blöðin gáfu honum hrósyrði fyrir lipurð sína og léttleika... en hann er of lítill, sögðu bæði þau og „sér- fræðingarnir“ á vellinum. Minn- ist ég eins ágæts manns, sem kvað Geir hafa alla möguleika á að verða „stjarna“, ef hann bara væri ekki svona smágerður og lágur í loftinu, það mundi alltaf há honum. En Geir átti eftir að hækka svo um munaði. í dag er hann 185 sentímetrar, og núna, 4 V2 ári eftir að hann lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki, er hann talinn með beztu handknattleiksmönn- um heims. Nýlega kepptu lands- liðsmenn við beztu menn Dana, sem urðu aðrir á síðustu heims- meistarakeppni. Þar var það Geir, sem setti allar helztu „stjörnur" Dana út í horn. Sjón- varpsáhorfendur voru yfir mill- jón og dáðust mjög að Geir. Blöðin voru full af frásögnum af leiknum, sem þau töldu að hlið- hollir dómarar hefðu látið Dani sigra. Þar var Geirs mjög getið, eitt blaðanna fann m.a. út að Geir og franski söngvarinn Yves Montand væru ótrúlega líkir! Já skrifin um Geir voru eins og fjallað væri um filmstjörnu en ekki ungan leikfimikennara norðan af fslandi. Á DYRABJÖLLUNNI: HALLSTEINN Það var einn sólbjartan dag fyrir nokkru að ég lagði leið mína suður í Hafnarfjörð. Það var heldur kuldalegt véður í Reykjavík, en suður í Firði var bezta veður og á læknum fyrir framan heimili Geirs og foreldra hans voru börn í glaðværum leik á skautum. Geir var nýkominn heim úr keppnisförinni, — kvöldið áður kom hann, og settist svo til strax að sjónvarpstækinu til að sjá leikinn við Dani á fréttamynd, sem þar var sýnd. Hann hafði þurft að skilja við félaga sína og halda heim, þar biðu hans hundruð nemenda, - biðu með talsverðri eftirvæntingu að sjá kennara sinn, sem hafði staðið sig svo vel erlendis. Hallsteinn Hinriksson hefur búið lengi að Tjarnarbraut í Hafnarfirði. Hann er þekktur maður og á dyrabjöllunni stend- ur aðeins: Hallsteinn. Það er nóg. Allir þekkja þennan mann, sem hefur ekki aðeins innleitt hand- boltann hér sem keppnisíþrótt, heldur hefur lagt til bezta hand- knattleikslið allra tíma, - - og þrjú börn hans eru í landsliði, — Örn, Ge:r og Sylvía, sem var í hópi Norðurlandameistara kvenna á sínum tíma. VÍSINDALEGA UNNIÐ Geir kemur til dyra, hann hef- ur lokið kennslu snemma þenn- an dag og hefur setið við skriftir. Ég sé skrifað á rúðustrikað verk- efnablað: Tilgangur með sókn- araðgerðum er að fá 50—70% árangur og síðan er sundurliðað hvernig sá árangur á að nást: a) hraða b) snerpu c) stökkkraft. Vísindalega er að unnið í íþrótt- um nú á dögum. Á borði inni í stofunni blasir við gestinum styttan, sem Geir hlaut nýlega fyrir að vera kjörinn „íþrótta- maður ársins 1968“. Sú vegsemd sannar að Geir hefur náð árangri með starfi sínu. 14. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.