Vikan - 02.04.1969, Síða 32
EÁRÞORRKA HEIMILANNA
TIIiVALIN TÆKIFÆRISGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Ekkert fæst nema leggja eitthvað í sölurnar. Þú
þarft að taka örlagaríka ákvörðun. Heppni þín leyf-
ir nokkra bjartsýni. Þú getur unnið störf þín að
miklu leyti hjálparlaust.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Tillaga frá viðskiptavini setur þig í nokkurn vanda.
Mikils er um vert að þú kunnir þér hóf og látir
ekki óvænt atvik koma þér úr jafnvægi. Stundvísi
er erkióvinur þinn.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert mjög traustur í sessi og getur leyft þér ýmis-
legt sem aðrir geta ekki. Af óvæntum ástæðum
missirðu af mannfagnaði er þú ætlar þér eindregið
að sækja. Ráða verður leitað hjá þér.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf):
Ef þú bregður fljótt við, muntu afla þér nokkurs
fjár. Þú getur vænzt hagstæðrar útkomu í mikil-
vægu máli. Mikils er um vert að þú gætir heils-
unnar vel og sóir ekki þreki þínu.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þolinmæði reynist mjög áríðandi. Trúðu ekki mörg-
um fyrir áætlunum þínum, það veikir stöðu þína.
Þú stendur í vafasömum viðskiptum. í nágrenni þitt
bætist persóna sem þér er mikill fengur í.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú færð loks tækifæri til að bæta fjárhaginn, en
hætt er við að þér þyki of miklu til kostað. Áætl-
anir þínar mæta mikilli andstöðu, svo þú ættir að
láta af þeim að sinni.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Mistök á vinnustað gætu haft afdrifaríkar afleið-
ingar. Vinur þinn er hafður fyrir rangri sök og ætt-
irðu ekki að hlusta þegjandi á. Þú átt fáar hvíldar-
stundir, en notaðu þær vel.
&
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Hugur þinn snýst mikið um mál, sem þér er afar
mikilsvert. Á einn eða annan hátt mun stutt ferða-
lag færa þig nær settu marki. Kvöldin verða róleg,
nema föstudagskvöldið, þá færðu óboðinn gest.
Bogamarmsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Farðu gætilega í sakirnar, áætlanir þínar standast
ekki nema að litlu levti. Gættu þess að skilja ekki
við þig hluti sem þér er annt um. Óvæntar tafir á
ferðalagi verða til góðs.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Annríki vikunnar verður í hápunkti á fimmtudag.
Þú átt skemmtilegt stefnumót á veitingastofu. Gættu
þess að láta fjölskylduna ekki misskilja þig, vilj-
andi, Heillatala er fjórir.
—~ ! — -^.1— r Qé
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þér verður lítið úr verki fyrir sjálfan þig, má þar
að nokkru kenna sjálfsvanmati um. Þú undirbýrð
umfangsmikla skemmtun í samráði við félaga þína.
Umferðarerfiðleikar tefja þig.
FiskamerkiB (20. febrúar — 20. marz);
Breytingar í umhverfi þínu er vel þess virði að þeim
sé gaumur gefinn. Þú færð góða gesti sem dvelja
lengi með þér. Eldri maður léttir af þér þungri
byrði. Þú eignast nýjan félaga.
!
32 VIKAN
14. tbl.