Vikan - 02.04.1969, Side 37
— Já, þetta var ágætur mat-
ur.
Frú Sean hló við.
— Það þýðir ekki að reyna
að vera kæruleysisleg. Farðu
bara og líttu í spegilinn.
— Enga heimsku, mamma.
Hann er mikilsmetinn vísinda-
maður, en ég er ekkert.
— Þú hefur aðra eiginleika,
elskan mín, sagði mamma henn-
ar þýðlega.
Og nokkrum dögum síðar stóð
bíllinn hans utan við bókabúð-
ina, þegar lokað var. Hann beið
á gangstéttinni með aðra hönd-
ina á hurðarhúninum.
— Á ég ekki að skutla þér
heim? spurði hann glaðlega.
En hann ók ekki heim, held-
ur fór langan og fáfarinn krók,
og eftir nokkra ferð stöðvaði
hann bílinn. Klukkutíma síðar
hafði hann á sinn rósama og
áreynslulausa hátt gert henni
Ijóst, að hann vildi hitta hana
aftur. hitta hana oft. Það skaut
henni skelk í bringu og hún gat
ekki losnað við beyginn.
Ef þetta hefði nú verið ein-
hver annar en einmitt hann,
hefði hún reynt að slá þessu upp
í grín. En hann var ekki af því
taginu, að hún gerði að gamni
sínu með hann — við hann.
Þau hittust oft eftir þetta.
Minnst tvö kvöld í viku hittust
þau utan við bókabúðina, og
flestar helgar voru þau saman.
Á sunnudögum fóru þau í smá-
ferðir með Micke, en fyrir kom,
að þau fóru eitthvað tvö ein.
— Jústusi er vel við þig, sagði
Micke morgun einn, þegar hann
kom til Ann þar sem hún sat
að morgunverði. ■— Veiztu hvers
vegna? Það er af því, að þú læt-
ur sem hann sé raunverulega til.
— Er hann það ekki?
— Auðvitað er hann það ekki
— og það veiztu vel. En hann
vill, að við látumst en hundsum
hann ekki.
— Hundsum — það var full-
orðinslegt orð úr ekki stærri
munni, sagði Ann og brosti. —
Hvar lærðirðu það?
— Pabbi segir þetta oft. Ekki
lengur, samt. Veiztu, hvað pabbi
sagði í gær? Hann spurði, hvern-
ig mér litist á að þú kæmir og
ættir heima hjá okkur, alltaf.
Hjarta Ann sleppti úr einu
slagi.
— Hvernig litist þér á það?
spurði hún svo.
— Eg veit ekki. Kannski
breytistu.
— Breytist ég?
— Eg vil, að þú verðir hér,
alltaf, sagði hann ákveðinn í
bragði.
Hún þorði ekki að leggja fyrir
hann fleiri spurningar. Hún
hefði efalítið getað rakið úr hon-
um garnirnar um eitt og annað,
sem henni lék forvitni á. En
huesazt gat, að Eric vildi ekki
að hún vissi um þá hluti, og það
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
1 Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.
STAÐLAÐI R/V“ARS
SÉRSMÍÐll I HVERJUM
V' VASKI
4ORASt
BLÖNDUNAR
TÆKI
SKOLVASKAR
ELDHÚSVASKAR
HURÐASI4L
STALVORUR
SMIÐJUBÚÐIN
---- 21222.
VIÐ HATEIGSVEG
14 tbl VIKAN 3