Vikan


Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 47
— Lánaðu mér jakkann þinn, Kenneth! Þá kom í ljós, að jakkarnir voru nákvæmlega eins. ☆ Við hverja snertingu hans... Framhald af bls. 29. Honum virtist borgin allt í einu vera full kunnugra andlita. Hvernig ætti hann að dylja hana, hvernig að hindra frek- ari tilviljanir? Og þótt hún væri kolgeggjuð,. og ef hún yrði sett á hæli, hvað gagnaði honum það ef hún yrði áður þekkt sem Janine Siebert? Þá væri hann aftur giftur og gæti ekki gift sig aftur Hvernig ætti að útskýra það fyrir Gaby? Nei, hugsaði hann, það hlýtur að vera til önnur leið. Ég verð að finna aðra leið. Hvað svo sem það kostar. Þegar hann sá að ljósið á her- bergi 5 slokknaði, leit hann á klukkuna. Hún var tuttugu mínútur yfir níu. Hún er farin að sofa, hugsaði hann. En honum skjátlaðist. Þegar hann kom nokkrum mín- útum síðar inn í barinn á Sans- souei, sat hún á einum barstóln- um. Hún hafði krosslagða fætur og var í sama bláa jerseykjóln- um. Hún horfði í átt til hans með augum, sem virtust horfa á fjar- lægt takmark. Ekkert bros lék um andlit hennar. Aðeins hreyf- ingin, er hún strauk hárlokk frá enni sér — þá hreyfingu þekkti hann. Júrgen varð gripinn örvænt- ingu. Hann lét frakkann sinn á fatahengið kinkaði kolli til henn- ar og settist á barstólinn við hlið hennar. Ég mun finna aðra leið, hugs- aði hann. — Hvað má bjóða yð- Ur? spurði barþjónninn. — Stóran whisky,“ svaraði Jurgen. — Kanadiskan. Til helm- inga með vatni, takk. Hann gat ekki alveg séð, hvað Janine drakk, Gin Fizg, eða eitt- hvað því líkt. Áður fyrr hugsaði hann, hefði hún alls ekki farið ein á hótelbar. Áður fyrr. Þessum orðum varð hann að útrýma úr huga sér. Konan, sem hann hafði verið giftur, og konan sem sat við hlið hans, voru aðeins líkar útlits. hyngd, stærð, augnalitur, handa- lag, en annars voru þær tvær 'hismunandi mannverur. Það var kominn tími til að hann gerði sér það ljóst. Þegar hún ætlaði að taka upp hveikjara sinn kveikti hann á gylta kveikjaranum sínum. Jan- iha frá fyrri tíma hafði gefið honum hann í afmælisgjöf. Hin i^pilcx'lÍHiœki blöndiumiTcx'ki nru vörur aílra \a.\J)|,;víi;a ln'isi)\-L»oj(‘nda A. lóhanitsson & Siuiíli h.f. Ilraiiiai’holii 4 i4. tbi. yixAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.