Vikan


Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 30

Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 30
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK STJÖRNUSP jBfl Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Afbrýðisemi hefur gert þér erfitt fyrir. Eftir næstu 1 helgi gerast hlutir sem munu hraða áformum þínum. fl Vertu hugrakkur og fylgdu hugmyndum þínum fast eftir. Flanaðu ekki að neinu. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú skemmtir þér á nýstárlegan hátt. Þú verður gagntekinn af ákveðinni persónu; farðu mjög var- lega. Nú reynir á hvað þú vinnur vel, þótt skilyrðin séu erfið. Reyndu að spara. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Sum skyldustörf þín hafa orðið útundan og er nú aðkallandi að þú komir þeim í lag. Fjölskylduvinur veldur þér vonbrigðum. Samverkamenn þínir reyn- ast mjög hjálplegir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Kunningi þinn verður mikið í sviðsljósinu og muntu hagnast af. Það er nauðsynlegt fyrir þig að halda þér vel við efnið, vegna samkeppni. Arangur til- rauna þinna er að koma í ljós. Xj^T Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Láttu þér verða meira úr þessari viku en þeirri síðustu. Tafir á ferðalagi valda þér leiðindum. Láttu ekki smámuni koma þér úr jafnvægi. Breytingar verða á starfi þínu. Heillalitur blár. Ífr* Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Vikan verður hagstæð. Vertu viðbúin öllu, hlutirn- ir eiga eftir að taka á sig óvenjulega mynd. Þú verður að vera snar, ef þú vilt fylgjast með. Gamlir samningar eru að renna út. & Vogarmerkið (24. september — 23. október) Óvarleg orð fara lengra en þú ætlast til. Það er nauðsynlegt að dylja óvildina í garð ákveðinnar persónu. Fylgstu vel með, ef þú ætlar ekki að verða af lestinni. Þér er sýndur mikill trúnaður. & Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Ógætni þín hefur slæman bakreikning. Mál er þú hefur nærri gleymt rifjast óþægilega upp. Láttu ekki þinn hlut, þegar ágjarnar manenskjur eiga hlut að máli. Athafnasemin er farin að bera ávöxt. Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember): fl Ferðalag veldur straumhvörfum í lífi þínu. Vertu ■ einlægari og opinskárri við þá sem eru þér kær- astir. Skyndilegar breytingar krefjast sveigjanleika af þinni hálfu. Þriðjudagur innkaupadagur. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Gagnrýni verður þér nokkuð erfið. Gerðu þér far fil um að fara að reglum. Óvæntar breytingar opna n þér nýja möguleika. Helgin verður vel heppnuð ef R þú undirbýrð hana samvizkusamlega. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Framfarir þínar á ákveðnu sviði vckja athygli á þér. Akveðinn þáttur einkalífsins veldur þér ókæti. Snöggar breytingar færa þér liluti sem þér eru nauðsynlegir. Hafðu bókhaldið í lagi. f$k> Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú færð tilboð sem er bæði tímafrekt og vel borgaö. Traustur samstarfsmenn eru ómetanlegir. Þér er óhætt að vera svolítið eyðslusamur. Undirbúningur garðsins fyrir sumarið er holl tómstundaiðja. 30 VIKAN 15- tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.