Vikan


Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 21

Vikan - 10.04.1969, Blaðsíða 21
þess að leika inn á eina hljóm- plötuna enn. Ekki er annaS að sjá en að hann hafi kunnað vel við sig í London, því að nú hef- ur hann ákveðið að setjast þar að. Upphaflega ætlaði Duane Eddy að hafa gítarlög á plötu þeirri, sem hann tók upp í London, en umboðsmaður hans benti honum á, að það þýddi lítið fyrir hann að vera alltaf í sama farinu, ef hann ætlaði sér á annað borð að láta eitthvað að sér kveða. „Hvers vegna syng- urffu ekki heldur,“ sagði Umbi við Edda. Þetta fannst gítarleik- aranum Duane Eddy fráleitt. Hann hafði aldrei komið fram sem söngvari, hvað þá sungið á plötu fyrr. En Umbi var ekki af baki dottinn, — honum tókst að telja Edda á að syngja í stað þess að spila — og nú er þessi plata komin út, tveggja laga plata með laginu „Break My Mind“ sem aðalnúmer. Það fylgir sögunni, að Eddi hafi verið mjög taugaóstyrkur, þegar hann söng irm á þessa plötu. Sjálfur segist hann alltaf vera kvíðinn, þegar hann kemur í upptökusal, sem hann hefur ekki komið í áður. „Til allrar lukku“, segir hann, „voru tækni- mennirnir mjög hjálplegir, og það var líka uppörvun, að marg- þekktir músikantar litu inn til þess að gefa mér góð ráð“. Hann bætti því við, að honum fyndist upptökutækni í Englandi standa framar en vestan hafs, og það þótti brezkum gott að heyra. ☆ um vinsældum í flutningi henn- ar. Fyrir skömmu skemmti Sandie um nokkurt skeið á hin- um þekkta og vinsæla skemmti- stað í London „Talk of the Town“, en þangað hafa margir íslendingar án efa komið. Við það tækifæri var Sandie klædd eins og myndin sýnir okkur, en flíkina gerði eiginmaður hennar, Jeffrey Banks, sem er tízku- teiknari. Flíkin er gerð úr fjöðr- um, 7 þúsund að tölu, sem og mynduðu mikinn slóða, sem því miður hefur ekki komizt fyrir á myndinni. Athygli vekur að Sandie er í skóm, en hún er þekkt fyrir þá sérvizku sína, að troða upp berfætt. Slíkt hefur sjálfsagt ekki þótt viðeigandi á jafn fín- um skemmtistað og Talk of the Town! -tr NV HLJOMPLATA FRA HANK MARVIN Þess er skemmst að minnast, er liðsmenn hljómsveitarinnar Move buðu Hank B. Marvin að slást í hópinn sem sólógítarleikari. Lag- ið „Blackberry Way“ var þá í efsta sæti vinsældalistans og og léku í þeirri hljómsveit sam- fellt í 1 ár. Þeir fengu í byrjun ungan söngvara í lið með sér, Harry Webb að nafni. Hann tók síðar upp nafnið Cliff Richard. Fyrsta plata Shadows og Cliff ÞAR FÍR HANN Hér er Dave Munden, trymbill- inn í hljómsveitinni Tremeloes, ásamt unnustu sinni, Andree Wittenberg. Hún er hollenzk og hefur starfað sem gengilbeina í hinum fræga Playboy Club í London. Þau opinberuðu trúlof- un sína fyrir skömmu. ☆ „HVERS VEGNA SYNGURÐU EKKI HELDUR?“ Hver kannast ekki við gítar- leikarann Duane Eddy? Þær eru ekki svo fáar plöturnar, sem hann hefur leikið inn á. Flestir munu kannast við lögin hans, t.d. „Dance with the Guitar Man“. Duane Eddy hefur tíu sinnum fengið svokallaðar gull- plötur, en gullplata er veitt, þegar milljón eintök seljast af hljómplötu. Plöturnar, sem Duane Eddy hefur leikið inn á, hafa samanlagt selzt í þrjátíu og sjö milljónum eintaka! Duane Eddy er Bandaríkjamaður. Ný- lega kom hann til London til Ameríkuferð framundan. En þeir voru gítarleikaralausir, því að Trevor Burton hafði yfirgefið þá, einmitt þegar hljómsveitin var á hátindi frægðar sinnar ... Hank Marvin hefur sjálfsagt brosað að þessu tiltæki því að hann er á allt annarri bylgjulengd í mús- ikinni en þeir sveinar í Move. Hank hyggst nú koma fram sem einleikari og þar með leika inn á hljómplötur. Þótt hann komi ekki lengur fram með Shadows, eru tekjur hans drjúgar. Honum reiknast svo til, að hann hafi um þúsund pund vikulega, en reikn- að yfir í íslenzka peninga, sam- svarar það um einni milljón króna á mánuði! Hank Marvin hóf tónlistarferil sinn átta ára gamall. Þá var hann látinn læra á píanó. Hann minn- ist þess enn, hve honum þótti það leiðinlegt og hvernig hann reyndi að plata kennarann til þess að leyfa sér að hlaupa út, þegar hann langaði að leika sér í fót- bolta. í menntaskóla vaknaði áhugi hans á jazzmúsik. Klarin- ett var eftirlætishljóðfæri hans, en hann hafði ekki efni á að kaupa svo dýrt hljóðfæri. Þá var það, að kennari einn í skólanum vildi selja gamalt banjó fyrir skikkanlegt verð. Hank keypti banjóið. Einn skólafélaganna hafði mikinn áhuga á banjóinu og fékk stundum að kroppa í það. Það var Bruce Welch. Þannig var upphafið að órofa vináttu þeirra, en þeir stofnuðu The Shodows var með Iaginu „Move it“, en fyrsta platan, sem The Shadows stóðu einir að, var með laginu „Apache“. Óhætt er að segja, að Shadows hafi átt mikinn þátt í þeim vinsældum, sem gítarinn hefur öðlazt á undanförnum ár- um. Nú er Hank Marvin að senda frá sér tveggja laga plötu, og eru bæði lögin spiluð, en Hank hefur sem kunnugt er líka fengizt við að syngja. Annað laganna er eft- ir Hank sjálfan en hitt er eftir Jerry Lordan. Hank hefur mikl- ar mætur á Lordan, því að það var einmitt hann sem samdi lag- ið „Apache“ á sínum tíma, lagið, sem gaf Shadows byr undir báða vængi. ☆ 15. tbi. VIICAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.