Vikan - 08.05.1969, Síða 4
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
SM22-24
3021-32262
LITAVERl
Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfól. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V_____________________________________________________________________>
4 VIIvAN
ER HÆGT AÐ LÆKNA
LAGLEYSU?
Kæri Póstur!
Mig langar til að leggja
fyrir þig dálítið einkenni-
legt vandamál. Þannig er,
að við hjónin erum bæði
mjög músikölsk og höfum
fengizt við að leika á hljóð-
færi, hún á píanó en ég á
fiðlu. Við eigum eina dótt-
ur barna, sem er orðin
fjögurra ára gömul. Hún
hefur gaman af að syngja,
litla skinnið, og syngur í
tíma og ótíma, en gallinn
er aðeins sá, að hún syng-
ur rammfalskt og virðist
ekki geta haldið nokkurri
laglínu. Við höfum reynt
að kenna henni algengustu
barnalögin, en hún getur
alls ekki lært þau rétt. Við
fáum með öðrum orðum
ekki betur séð en að hún
sé með öllu laglaus — og
okkur þykir það skiljan-
lega mjög leiðinlegt.
Nú langar mig til að
spyrja: Getur þetta breytzt
með aldrinum? Geta börn
orðið lagviss, þegar þau
eldast og þroskast eða er
hér um meðfædda eigin-
leika að ræða? Er með
nokkru móti hægt að
lækna fólk, sem er lag-
laust?
Með fyrirfram þakklæti.
Fiðlari.
snemmt að' hai'a áhyggjur
af þessu. Hún getur vel
orðið óperusöngkona.
SOAMES VAKINN
UPP FRÁ DAUÐUM
Kæri Póstur!
Beztu þakkir fyrir fram-
haldið af Forsyte-sögunni.
Að vísu finnst mér sagan
ekki eins skemmtileg síð-
an Soames gamli dó, en við
því er náttúrlega ekkert að
gera. Ég hef ekki enn tek-
ið ástfóstri við nýju per-
sónurnar, en það kemur
vonandi með timanum. Á
meðan hefur maður ánægju
af blessuninni henni Fleur
og gæðapiltinum honum
Mont, sem er nú víst orð-
inn fullorðinn karlmaður
fyrir löngu. En ég hlakka
til að fá að fylgjast með
framhaldinu. Maður var
lengi að kynnast Soames
og hafði litla samúð með
honum framan af. Það tek-
ur sinn tíma að kynnast
sögupersónum engu síður
en lifandi fólki.
En meðal annarra orða:
Hefur þeim ágætu snill-
ingum hjá brezka sjónvarp-
inu ekki dottið í hug að
halda áfram og kvikmynda
líka framhaldið af sögunni,
sem þið eruð að byrja á
núna? Hvernig stendur á
því, að þeir gera það ekki?
Með beztu kveðjum.
Drífa.
P.S. Þau voru góð eftir-
mælin um Soames í Vísi
um daginn.
Við höfum ekki haft
neinar fregnir af því, að
verið sé að undirbúa fram-
hald af Forsyte-sögunni
Þið skuluð alls ekki
dæma blessað barnið lag-
laust strax. Þess eru mörg
dæmi, að börn séu laglaus
fyrst í stað en lagist síðan
smátt og smátt. Tóneyra er
að vísu meðfæddur hæfi-
leiki hjá sumum og þeir
þurfa því ekkert að hafa
fyrir slikum hlutum. En
það má líka þjálfa sig hægt
og hægt og ná góðum ár-
angri. Bezta ráðið fyrir
ykkur er að syngja með
telpunni og reyna að benda
henni fínlega á, þegar hún
fer út af laginu. Því að-
eins getur hún lagað þetta
sjálf, að hún viti um það.
hjá BBC. Hins vegar hler-
uðum við um daginn, að
rithöfundur nokkur í Ame-
ríku væri búinn að vekja
Soames upp frá dauðum og
væri byrjaður að semja
nýtt framhald af sögunni,
sem síðan eigi að kvik-
mynda. Þeir eru ekkert að
tvínóna við hlutina, þarna
í Ameríku!
„ÞVÍ MIÐUR"
Kæri Póstur!
Þú hefur vafalaust orðið
var við það engu síður en
ég, að stundum, þegar mað-
ur hringir í einhverja mik-
19. tbl.