Vikan - 08.05.1969, Qupperneq 19
í fyrsta sinn hafa Bandaríkja-
menn nú keypt flugvélar utan
Norður-Ameríku í flugher sinn.
Það er brezka flugvélin Handley
Page Jetstream 3M, sem fyrir
valinu varð, og hefur bandaríski
flugherinn pantað 11 vélar í
fyrstu lotu en í samningum er
gert ráð fyrir, að þeim fjölgi
síðar. Þessi vél er tveggja
hreyfla skrúfuþota, heldur lítil,
en sögð geta gegnt margslags
hlutverkum, svo sem herflutn-
ingum, vöruflutningum, sjúkra-
flugi, þjálfun flugliða og ljós-
myndaflugi, svo nokkuð sé nefnt.
176 vélar af þessari gerð hafa
nú verið seldar. ☆
Hiúlhúsin stækka
DRAUMASKÆRi
ALLRAHANDAMANNA
Trúlega er hann ekkert bráð-
ódýr, að minnsta kosti ekki hér,
þessi Austin þriggja lítra. Samt
er hann kallaður almennings-
bíll, og það er vegna þess, að
áður en færibandaframleiðsla á
honum hófst, framleiddi verk-
smiðjan 100 bíla og fékk jafn-
mörgum almennum bílnotendum
til þess að geta byggt endurbæt-
ur á gagnrýni þeirra og reynslu
af bílnum.
Enda er margt í þessum nýja
bíl árangur af reynslu hundrað-
menninganna. Gírkassa og drif-
hlutfalli hefur verið breytt svo
og festingu afturöxuls. Breytt
einangrun hefur dregið úr vind-
þyt og loftventlunum breytt til
að draga enn meira úr hávaða.
Mjög mörgum þótti bíllinn of
léttur í stýri og það hefur verið
lagfært án þess að það skaðaði
nákvæmni í stýrinu. Öðrum
fannst tvöföld, kringlótt ökuljós
gefa betri og jafnari birtu við
akstur í myrkri en ferkantaðar
luktir. Framsætin eru breiðari
og bólstrun var allri breytt. Ef
til vill er þetta góð leið til að
losa nýjar bílagerðir við verstu
barnasjúkdómana. ☆
Hjólhús stækka eins og margt
annað, sem eldist. Það sem við
sjáum hér er 34,5 fermetra
(11,90x2,90 m), stofa, eldhús,
borðstofa, bað, tveggja manna
svefnherbergi og anddyri, fyrir
utan svalir og tröppur með dyra-
palli og skyggni. Hjólhúsið er
gert úr timbri og plastefnum að
mestu leyti, en þrátt fyrir það
mun það heldur þyngra en svo,
að nokkuð þýði að hengja það
aftan í venjulegan fólksbíl. Okk-
ur er jafnvel til efs, að jeppi
dugi. Enda verður ekki betur
séð af myndinni, en húsið sé
þarna á föstum ákveðnum stað,
eða þarf maður kannski að hafa
með sér gangstéttarhellur og
blómaker hvert á land sem er?
☆
Þetta eru nýjar úrvals klippur
brezkar, sagðar hafa sig leikandi
í gegnum hert plast, krossvið og
mörg önnur efni, þeirra á meðal
stál.
Áhaldið er með þremur, skipt-
anlegum blöðum, einu fyrir efni
svo sem hert plast og krossvið,
öðru fyrir hringskurði og beygj-
ur, hinu þriðja fyrir stál og
járn. Skammbyssuhaldið gefur
gott og traust átak og það kvað
vera mjög létt að vinna með
tækinu, hvort heldur verið er
að klippa úr gólfflísum fyrir rör-
um eða klippa til bodýstál í
bílaviðgerðir, svo dæmi sé tek-
ið. Þetta er sannkallað happa-
verkfæri fyrir allrahandamenn.
☆