Vikan - 08.05.1969, Síða 25
IIÉR KAPPAKSHISHETJIR FYRRITÍMA
n/7en Annakin, sá, er gerði kvik-
■{ myndina „Vér flughetjur
|\\ fyrri tíma“, sem sýnd var í
Líu Nýja bíói ekki alls fyrir
löngu, hefur nú um eins árs skeið
unnið að gerð annarrar myndar
í svipuðum dúr. Ætti þetta að
gleðja mjög alla þá, sem sáu
flughetjurnar, því að sú mynd
var sannarlega í sérflokki sem
gamanmynd. Fjallaði hún um
kappflug frá London til Parísar
á þeim tíma, þegar flugvélar
voru enn á bernskuskeiði.
Hin nýja kvikmynd Annakins
nefnist „Monte Carlo or Bust“
og gerist á öðrum áratugnum.
Myndin fjallar um kappakstur,
og er ekið frá Svíþjóð til Monte
Carlo. Eins og í myndinni um
flughetjurnar taka leikarar frá
mörgum þjóðum þátt í þessari
mynd. Nægir hér að nefna Tony
Curtis, Terry Thomas, Susan
Hampshire (Fleur í Sögu For-
syteættarinnar), Gert Frobe og
Dudley Moore.
Annakin segir, að hann hafi
fengið hugmyndina að þessari
mynd, er hann kynntist náunga
einum, sem hafði mikið yndi af
kappakstri og hafði einmitt tek-
ið þátt í svona keppni á öðrum
áratugnum. Þá var kappakstur-
inn til Monte Carlo mikill við-
burður, eins og hann er raunar
enn, en keppnisreglur og fyrir-
komulag var þá með öðrum
hætti. Þá voru það ekki bíla-
verksmiðjurnar, sem sendu kepp-
endur til leiks og greiddu kostn-
að þeirra heldur var það einka-
framtakið og „sannur íþrótta-
andi“, sem öllu réði. Enginn gat
sagt neitt við því, þótt svindlað
væri, en keppendurnir voru bara
misjafnlega útsjónarsamir í þeim
efnum, og þegar allt kom til alls
svindluðu allir meira eða minna!
Annakin hafði nýlokið við að
gera kvikmynd um bíla, „Fast
Lady“, og hafði lýst því yfir, að
hann mundi ekki taka sama efn-
ið fyrir tvisvar í röð. En hann
stóðst ekki freistinguna, þegar
hann heyrði hinar spaugilegu
sögur um Monte Carlo kappakst-
urinn í þá gömlu góðu daga. —
Mörg atriðin í myndinni eru ein-
mitt byggð á atvikum, sem raun-
verulega hafa gerzt.
Bílarnir, sem taka þátt í keppn-
inni í myndinni, eru frá árunum
1927 til 1929. Ástæðan fyrir því,
að eldri árgerðir voru ekki not-
aðar, var sú, að það var fyrst
með tilkomu umræddra árgerða,
að bílarnir gátu látið gamminn 5
Framhald á bls. 36.
Silill
wmm
fíimiii sií:;;
Allir að ýta! Tony Curtis viff stýrið. Susan Hampshire lengst
til hægri. Tony Curtis og Susan Hampshire vega salt á foss-
brúninni.
Einn keppenda styttir sér leið og tekur sér far með bílinn í
skíðalyftunni.
Gert Frobe |
(við stýrið) og
Peer Schmidt
eru fulltrúar
Þýzkalands í
keppninni og
aka auðvitað í
Mercedes-
Benz.
fi «. ■* V' >.1. .
19. tbi. VIKAN 25