Vikan


Vikan - 08.05.1969, Qupperneq 41

Vikan - 08.05.1969, Qupperneq 41
VIPP norski hvíldarstóllinn. — Framleiddur á Islandi með einkaleyfi. — Þægilegur hvíldar- og sjónvarpsstóll. — Mjög hentugur til tækifær- isgjafa. — Spyrjið um VIPP stól í næstu húsgagnaverzlun. — Umboðsmenn um allt land. VIPP STÓLL Á HVERT HEIMILI. FRAMLEIÐANDI: ÚLFAR GUÐJÓNSSON HF. - AUÐBREKKU 03 - ICÓPAVOGI - SÍMI 41690 er gift. Eg verð að leita að manni mínum, áður en ég get leyft mér að verða ástfangin. Haller opnaði bíl sinn, settist við stýrið. Karsch var enn að virða fyrir sér það sem gerðist á bílastæðinu. Þegar hann steig inn, sagði hann: — Af stað, læknir, beygið til vinstri, þá verða þau að fara fram hjá, eft- irtektarverður rauður sportbíll, við getum ekki misst af honum. Hann var naumast þagnaður, þegar bíllinn ók hjá. Jurgen sat við stýrið, Gaby þurrkaði af hliðarrúðu sín megin. f aftur- glugganum dinglaði köttur með gul augu. Þegar bílstjórinn steig á bremsurnar, lýstu augu kattar- ins. Hlutirnir verða að vera skemmtilegir, ekki satt? — í myrkrinu taka þau varla eftir þessari eftirför, hélt Karsch áfram. — Ef þau líta við sjá þau aðeins Ijósin hjá okkur, þau munu ekki einu sinni geta gizk- að á, hvaða bíltegund þetta er. Mikil umferð var á veginum milli Riem og Munchen Það var ekki auðvelt að vera fast á eftir sportbílnum. Þegar Júrgen Siebert beygði til vinstri út af Einsteinstræti, og ók gegnum Lauchtenberg- göngin, sagði Karsch með um- hyggju: — Hann fer miðhring- inn. Ef hann velur hraðbrautina þá er útlitið ekki gott. Bíll hans kemst öirugglega tvö hundruð kílómetra, en yðar í mesta lagi hundrað og fimmtíu. Haller svaraði ekki. Hann beindi allri athygli sinni að ljós- kerunum tveimur á undan sér. XIV Að kvöldi þessa föstudags, fór fram símtal milli lögreglustöðv- anna í Múnchen og Berlín. Mál JL 11, Júrgen Siebert. — Hvernig eru horfurnar? spurði Sasse lögregluforingi. — Ekki góðar, svaraði Sch- warzhuber aðstoðarstjóri. — Herra Siebert er horfinn. —- Býr hann ekki lengur á Bayerischen Hof? — Hann hefur ennþá herbergi þar, en hann hefur ekki komið þangað síðustu 36 klukkustund- ir, og auðvitað ekki beðið fyrir nein skilaboð. — Hafið þér leitað í herberg- inu? Já. Fötin hans eru þar, nær- föt, þrátt fyrir það hefur hann tekið litla ferðatösku með sér. — Þetta líkist flótta, ekki satt? sagði Sasse. — Lítur út fyrir, að hann hafi fengið ein- hvers konar aðvörun. Við opnuð- um gröfina í morgun. Hin látna er ekki konan hans. ■— Ef hann er flúinn, sagði Schwarzhuber, — þá getur hann enn ekki verið kominn langt. — Hvers vegna ekki. Vegna þess að ég missti af honum á flugvellinum fyrir hálfri klukkustund .. hann hafði látið bóka sæti fyrir sig ásamt ungfrú Westphal í vélina til Rómar. Honum hlýtur að hafa snúizt hugur á síðustu mínútu. - Og hvernig vitið þér, að hann hafi nokkuð látið sjá sig á flugvellinum? Tilviljun, svaraði aðstoðar- lögreglustjórinn hæversklega. — Gamall kunningi hans sá hann og skiptist á nokkrum orðum við hann .... Sasse gat varla leynt æsing sinni. Þá sleppur hann varla frá okkur, sagði hann, — látið gæta Westphalhússins og hótels hans .... — Það er þegar gert, herra lögreglufulltrúi. -— Fínt. E'g hugsa, að hann muni reyna að komast til út- landa. Austurríki er líldegast ná- lægast, Sviss einnig líklegt. Ger- ið landamæravörðunum viðvart, sendið þeim lýsingu á honum. Það er ekki ólíklegt, að hann hafi fengið sér falsað vegabréf. —- Allt í lagi. Tíu mínútum síðar sendu fjar- ritarnir þessa tilkynningu frá sér: - Leitað er eftir Jurgen Siebert, aldur þrjátíu ár, starf auglýsingastjóri, grannvaxinn, stærð 180, dökkhærður, dökk augu, var siðast klæddur sport- legum Kamelliárafrakka, sást síðast í Munchen.... Hraðamælirinn sýndi sextíu, vísar klukkunnar sýndu tíu mín- útur yfir sjö. Bílljósin lýstu upp vegskilti þorps nokkurs: Kochel. Hingað til hafði allt gengið vel. Rauði sportbillinn var tæpa fimmtíu metra á undan þeim. Hann hafði ekki sloppið þeim úr augsýn á fimmtíu kílómetra þjóðvegarleið. —• Kannizt þér eitthvað við leiðina hérna? spurði dr. Haller. — Nokkurn veginn, svaraði Karsch. — Þegar við erum kom- in gegnum þorpið, er vegurinn brattur fram undan. Frá þorpinu Serpentinen liggur hann upp að Walchensee. — Og svo? Mittelwald kæmi svo lík- legast. Eða Gármisch...... eftir þvi hvaða leið þau fara. Það varð einmanalegt um að litast, eftir að þeir höfðu ekið gegnum Kochel. Umferðin var nú sama sem engin. Haller skrúfaði rúðuna dálítið niður. Lækjarniður heyrðist. Hamraveggir blöstu við. Minnis- 19. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.