Vikan - 08.05.1969, Side 46
fann fróun í að ljúga að henni,
ljúga upp í opið geðið á henni.
Það var heimskulega aumkunar-
leg hefnd.
Fyrir framan þá stóð myrkt
og kyrrlátt hús, hálffalið bak
við dökk furtrén. Hér uppfrá
var ennþá dálítill snjór, í óreglu-
bundnum hvítum flekkjum, og
upp úr votum jarðvegi skógar-
ins lagði sterka rotnunarlykt.
Haller og Karsch höfðu numið
staðar.
— Ekkert Ijós, muldraði Hall-
er. Honum fannst eins og húsið
væri þjakað af rökkri og óbæri-
legri kyrrð.
— Við skulum læðast að því
ofan frá, lagði Karsch til mál-
anna.
Þeir gengu nokkur skref upp
46 VIKAN 19- tbl-
brekkuna og klifruðu síðan yfir
gaddavírsgirðinguna. Furunál-
arnar undir fótum þeirra voru
hálar af krapi. Karsch skrikaði
fótur og blótaði lágt.
Og þá fyrst kom hann auga á
gatið, sem hann hafði nærri ver-
ið dottin niður um.
— Læknir, sagði hann æstur
og greip um handlegg Hallers,
— lítið á þetta ....
Ferhyrnt gat. Við hlið þess var
þykkt járnlok. Og skófla.
— Eins og einhver hafi hlaup-
ið frá öllu saman, hvíslaði
Karsch.
Þeir beygðu sig niður. Upp um
gatið steig sterk járnfýla. Karsch
lýsti niður með vasaljósi sínu.
-—• Hamingjan góða. Sá, sem
fer þarna niður, á ekki aftur-
kvæmt.
Stephan Haller svaraði ekki.
Háls hans var samanherptur.
Hann starði á skófluna, þunga
hlerann, sem ýtt hafði verið til
hliðar. Sá sem fer þarna niður
—• átti einmitt einhver að fá að
fara þarna niður? Var ekki allt
tilbúið til þess?
Allt í einu fann hann ekki
fyrir neinu nema ótta, ofsalegum
nagandi ótta.
—■ Komið, Karsch, stundi hann
og þaut af stað í áttina að hús-
inu, án þess að gefa gaum að
hálkunni, brakandi greinunum,
hávaðanum af skóhljóði sínu. —
Komið...... flýtið yður ....
Gluggarnir voru dimmir, tóm
augu bak við rifur gluggahler-
anna, og dyrnar, sem hann vildi
inn um, voru læstar. Hann fann
bjölluna og hringdi. Gjallandi
tóm hennar sprengdi húsið nærri
því upp. En enginn hreyfði sig.
Hvar var Siebert, esm hlaut
að hafa verið hér fyrir skammri
stundu? Stephan Haller henti sér
með öllum þunga líkama síns ó
hurðina. Og hvar var Janine?
Góði guð, láttu hurðarfjandann
gefa eftir!
Með háu braki gaf viðarhurð-
in eftir undan sameiginlegum
krafti beggja mannann og
splundraðist inn á við. Stephan
beygði sig og gekk inn á undan
Karsch. Herbergið var gríðar-
stórt og dimmt, þeir urðu að
leita dágóða stund að slökkvar-
anum.
Þeir sáu að þeir stóðu undir
dökku viðarþaki. Á einum
veggnum hékk gömul, gríðarstór
klukka. Pendúll hennar var graf-
kyrr, eins og hér hefði engin
sála verið um margar aldir, sem
staður og stund hefði haft nokkra
þýðingu fyrir.
Augu Stephans Haller hvörfl-
uðu yfir vopnaskápinn, þung-
lamalegt borðið, og gömlu þýzku
stólana.
f einu horninu, stóð kolaofn,
stór, blá ófreskja. Og hjá honum
sá hann kápu Janine liggja á
gólfinu.
- - Karsch. Rödd hans var hás,
nærri óheyranleg. Því kápan lá
ekki aðeins á gólfinu, þeir sáu
báðir að hún huldi eitthvað, eitt-
hvað líflaust.
Það var Karsch, sem lyfti káp-
unni. Og það var Stephan,
sem féll á gólfið við hlið stúlk-
unnar sem þar lá, með Ijóst hár
og náfölt andlit.
—■ Janine, kjökraði hann —
Janine, Janine.
Augu hennar voru opin, horfðu
á hann með augnaráði, sem kom
alókunnugt út úr fölvanum.
—■ Janine! Hann hristi hana
og fann hvernig líkami hennar
gaf eftir án viðnáms.
En hún var þó lifandi, hún
horfði á hann, augnalok henn-
ar titruðu örlítið. Stephan greip
eftir hönd hennar. Hún var jök-
ulköld. Æðasláttur hennar var
veikur, nærri því ófinnanlegur,
en þrátt fyrir það, hún lifði.. .
— Janine! Hvað hefur gerzt?
Varir hennar titruðu, en eng-
inn tónn heyrðist. Hann sá kvöl-
ina í augum hennar.
Þú þarft ekki að tala, Jan-
ine, sagði hann lágt. -— Svaraðu
mér með augunum, ég skil þiv
Hann beygði sig alvag niður
að andliti hennar.
— Finnurðu einhvers staðar
til?
Augu hennar hreyfðust hægt
frá hægri til vinstri, eins og hún
vildi hrista höfuðið. Nei....
Hann greip um hendur henn-
ar.
— Finnurðu þetta?
— Nei, sögðu augu hennar.
Hann sleppti höndum hennar.
Þær féllu máttvana á gólfið.
Hann lyfti vinstri fæti hennar,
Hinar vinsælu
bækur um
Angelique
eftir SERGE og
ANNE GOLON,
fást hjá næsta
bóksala eöa í
næstu blaðasölu.
Angelique
Angelique
og kóngurinn
Angelique
og soldáninn
í heftum.