Vikan - 19.06.1969, Síða 9
r
ég hefði átt um tvo kosti
að velja, annaðhvort að
láta hann frá mér nýfædd-
an, í nokkra mánuði og fá
hann aftur, eða fá að hafa
hann lítinn og láta hann
svo frá mér fyrir fullt og
allt seinna og af tvennu
illu hefði ég heldur kosið
að fá hann seinna og hafa
hann alltaf síðan.
(Þessi draumur er
tveggja ára gamall og son-
ur minn er tveggja og hálfs
árs).
Hinn draumurinn er
næstum nýr.
Mér finnst ég liggja uppi
í rúminu mínu í hvítu
brúðarskarti, og við hlið
mér og fyrir ofan (ekki í
brúðkaupsfötum) barns-
faðir minn, sem þó ekki er
í verunni barnsfaðir minn,
heldur maður sem ég
kynntist í sumar. Hann
kyssir mig á kinnina, og
fannst mér þessi koss túlka
allt, ég get varla lýst því,
einlæga ást, blíðu, traust,
og bar allt. Þá vaknaði ég.
Fvrirfram þökk fyrir
ráðinnguna, ef hún kemur.
Mér bætli afar vænt um
að fá ráðningu á fyrri
draumnum, því að ég hef
alið þann ótta með mér,
sem aðrir segja tóma vit-
leysu, að hann tákni að
drengurinn lifi bara fram
að fermingu.
Virðingarfyllst,
B.P.
Skip er yfirleitt góður
fyrirboði í draumi, táknar
oft uppfylling heitra óska,
en hinsvegar getur þýðing-
in verið nokkuð hreytileg
eftir því hvemig draumur-
inn er í nánari atriðum.
Gamalt íslenzkt máltæki
hljóðar svo: „Á böl veit ef
barn dreymir, nema svein-
harn sé og sjálfur eigi.“
Eftir þessu ætti það ekki
að vera fyrir neinu slæmu
að þig dreymdi son þinn.
Það að þú þóttist einnig
sjá son þinn eldri en hann
er, gæti verið honum fyrir
einhverjum erfiðleikum
eða lasleika, en ekkert
bendir til að þetta boði
dauðsfall, að því er við
bezt vitum.
Hinn draumurinn ætti að
vera heldur góðs viti, boða
sættir við einhvern, sem
þér hefur mislikað við, og
jafnvel einhvern efnaliags-
Iegan ávinning. En í þín-
um sporum myndum við
ekki gera okkur neinar
vonir með manninn, sem
þig dreymdi að kyssti þig.
DRENGURINN
FRÁ DYSJUM
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig
að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi fyrir
stuttu og fannst nokkuð
merkilegur.
Mig dreymdi að til mín
kæmi lítill strákur sendur
til mín frá bæ sem heitir
Dysjar, til að biðja mig að
ráða draum. Mér fannst
þetta hálfskrýtið, en hugs-
aði með mér að fólkið þar
hefði frétt að ég gæti ráðið
drauma. Ég spurði strák-
inn hvernig draumurinn
hefði verið, og fékk það
svar, að allir fánar í heimi
hefðu verið dregnir að hún
í einni þyrpingu, og var
það mjög stór breiða. Eg
þurfti ekki að hugsa mig
lengi um og sagði: „Stríð
og friður eða friður og
stríð.“
Svo var draumurinn bú-
inn.
Trúlega boðar þessi
draumur einhver meiri-
háttar tíðindi, líklega af
betra taginu. Drengnrinn
sem þig dreymdi má vel
við því búast að verða ein-
hverntíma aðnjótandi mik-
illar vegsemdar af hálfu
erlendra aðila, líklegast þá
alþjóðasamtaka.
SVAR TIL ELLU
Að svo miklu Ieyti sem
draumur þessi saman-
stendur ekki af hreinum
órum, þá virðist hann ekki
benda til þess að neitt verði
úr frekari kynnum ykkar
við strákana. Hinsvegar
gætuð þið átt von á ein-
hverjum ávinningi á öðr-
um sviðum.
*
[r íiép annt om lennurnar?
há er hezta ráflið að Þrífa
bær vel:
Þegar þú burstar tennurnar með venjuleg-
um bursta, hreinsar þú munninn tiltölulega
hægt. Þú burstar tanngarðana beturað utan-
veröu en innan. Framtennurnar betur en
jaxlana.
í hreinskilni sagt: Þú hefur fljótaskrift á
burstuninni.
Þegar þú færð þér Ronson rafmagnstann-
bursta, er engin fljótaskrift. Burstinn fer 11
þúsund sinnum upp og niður á mínútu.
Hann er með nettan haus og mjótt skaft.
Hann nær auðveldlega til jaxlana og milli
tannanna. Leifturhraðar hreyfingr hans gera
það sem gera þarf. IHann nemur burt matar-
leifarog óhreinindi. Fágar gierunginn. Styrk-
ir tannholdið.
Spurðu bara tannlækninn þinn.
Ef þú ert einn af þeim, sem heldur að
þú fáir rafmagnshögg í tunguna, er þér
óhætt að kasta af þér áhyggjunum. Bursta-
skaftið er úr plasti, sem leiðir ekki rafmagn,
og þar að auki er straumurinn af rafhlöð-
unum svo veikur, að þú fyndir varla fyrir
honum.
En nógu sterkur fyrir Ronson tannburstann.
EINKAUMBOÐ:
I. Guðmundsson i Co. hf.
25. tbi. VIKAN 9