Vikan - 19.06.1969, Page 23
: / /
BHRHAHE8BIRCI
Algengt má nú teljast að börn hafi herbergi
útaf fyrir sig, ýmist sérherbergi eða deili því
með systkinum sínum. Það er æskileg-
ast að börnin hafi aðstæður til að dunda
með leikföng sín og bjástur, auk þess sem þau
sofa þar. Síðan er þau vaxa úr grasi, ætti að
vera þar góð aðstaða til heimanáms og frístunda-
vinnu. Hillur og skápar, sem f fyrstu geyma
leikföng, breytast í bóka og áhaldageymslur.
Brúðuhús geta orðið skemmtilegustu skólbóka-
hillur og brúðuvagn eða brúðuvagga verður
ágætis handavinnuílát. Hér verða sýndar nokkrar
myndir með tillögum um fyrirkomulag í barna-
herbergjum.
A þessari mynd eru skrautlega málaðir kassar
sem ýmist má nota til þess að geyma f leikföng,
raða saman og byggja úr eða sitja á. Takið eftir
pokunum. Þeir gætu verið heppilegir í forstofu
til þess að geyma í húfur, vetlinga eða trefla,
og auðvelt að sauma þá.
Og svo eitt táningaherbergi, sem reynd-
ar er undir súð. Á myndinni sést ekki lítill
fataskápur, sem er við inngang f enda
herbergisins og skrifborð undir glugga.
Börn hafa gaman af að krota og auðvelt er að búa til handa þeim
töflu til þess að tjá sköpunargleði sína. Töflulakk er alltaf hægt að fá
og nota má hurð á leikfangaskáp ef ekki er annað tiltækilegra.
Hér er rúmgott borð til þess að vinna heimaverkefnin við. Undir svefn-
bekk er skúffa fyrir leikföng eða aðrar nauðsynjar. Slík skúffa er kjörin
fyrir bflabraut eða járnbraut, svo þær geti verið fljótlega til taks.
25. tbi. VIKAN 23