Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 28

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 28
DAGBOKARBROT EVU BRAUIM Eva Braun var dæmigerð Itínar- stúlka, en hún barð- ist fyrir því að verða viðurkennd „fyrsta kona Þriðja Ríkis- ins“ Árið 1929 var Eva Braun ráðin bókhaldari hjá þekktum ljós- myndara í Miinchen, Heinrich Hoffmann, sem var náinn vinur Adolfs Hitler. Eva var 17 ára og nýlega útskrifuð úr klaustur- skóla. Nokkru eftir að Eva fór að vinna á ljósmyndastofu Hoff- manns, sá hún Adolf Hitler 1 fyrsta sinn. Siðar lýsir hún þessu atviki fyrir Ilse systur sinni: — Ég var að vinna eftir lok- unartíma, við að raða skjölum, og þurfti að fara upp í stiga til að ná upp í efstu hilluna á skápn- um, þar sem skjölin voru geymd. Þá kom húsbóndi minn inn, og í fylgd með honum var maður með afskaplega hlægilegt yfirvara- skegg, í ljósum frakka með hatt í hendinni. Þeir settust báðir í þeim enda herbergisins sem fjærstur var. Ég reyndi að virða manninn fyrir mér, án þess að líta beinlínis við, og fann að hann hafði augun á fótleggjum mínum. .. . Ég hafði einmitt þennan dag, jafnað faldinn á pilsinu mínu, og ég fann til óþæginda, vegna þess að ég hafði það á tilfinningunni að faldurinn væri ekki jafn. Hoffmann kynnti okkur, þegar ég kom niður á gólfið: — Herra „Úlfur“ (það var dulnefni Hitl- ers þá), þetta er litla fröken Eva. Svo sagði hann:— Verið nú svo góð, fröken Braun, að sækja fyr- ir okkur bjór og pylsur. . . — Ég var að deyja af sulti, heldur hún áfram, — en ég rétt nartaði í pylsuna, fyrir kurteis- is sakir. Hitler, sem er miðaldra maður, sló mér gullhamra. Ég minnist þess að hann leit varla af mér, en ég afþakkaði boð hans um að aka mér heim í Mercedes- bílnum. En áður en ég fór, tók Hoffmann mig til hliðar og spurði: Vitið þér hver þessi herramaður er? Og þegar ég svaraði neitandi, sagði hann: — 'Þetta er Hitler! Adolf Hitler! Eva flýtti sér heim og spurði föður sinn, Fritz Braun, kenn- ara, hver þessi Hitler væri. Fað- ir hennar svaraði og gretti sig um leið: — Hitler? Hann er fá- bjáni, sem heldur að hann sé al- vitur, og ætlar að breyta öllum heiminum.. . . I hvert sinn sem Hitler kom á myndastofu Hoffmanns, spurði hann eftir fröken Braun. Hann hneigði sig fyrir henni, færði henni blóm og stundum sælgæti. Það var samt ekki fyrr en ár- ið 1930 að áhugi Hitlers á Evu Braun varð alvarlegri. Stundum fóru þau í leikhús eða óperu, og þá oft í fylgd með einhverjum af hjálparmönnum hans. Hitler fylgdi henni alltaf heim fyrir miðnætti og bannaði allt rudda- legt tal í viðurvist hennar. Eva gerði ýmislegt til að ganga í augun á Hitler. Þegar hún átti von á hon- um, segir Henny Hoffmann, dótt- ir húsbónda Evu, — þá átti hún það til að stinga vasaklút í brjóstahaldara sinn, til að sýnast brjóstastærri, og það virtist ganga í augun á honum. . . . Árið 1933 varð Hitler kanslari Þýzkalands. Viku síðar hélt Eva upp á tuttugasta og fyrsta af- mælisdag sinn. Þá fékk hún fyrstu skrautgripina frá Hitler; hring, eyrnalokka og brjóstnælu sett tourmalinsteinum. Eva vildi að Hitler kvæntist sér, en hann sagði að það væri ómögulegt. Honum fannst hann sjálfur vera eitthvað í líkingu við páfann, ekkert mætti trufla hann frá heilagri skyldu. Faðir Evu mótmælti sambandi þeirra, og 7. september, árið 1935, skrifaði hann mótmælabréf til foringjans: Yðar hágöfgi! Mér finnst ég vera l mjög óþægilegri aðstöðu, þar sem ég finn mig knúinn til að ónáða yður með einkamálum .... Nú hefur fjölskylda mín tvístrazt, þar sem dœtur mínar tvœr, Eva og Gretl, eru fluttar í íbúð, sem þér hafið látið þeim í té, og ég, sem er höfuð fjöl- skyldunnar, fékk að vita þetta, þegar það var ákveðið. Ég hefi alltaf verið því mótfallinn að Eva hefir komið seint heim, löngu eftir lokunartíma fyrir- tækisins, sem hún vinnur við. Mitt álit er að stúlka sem vinn- ur allan daginn, sé í þörf fyrir hvíld í faðmi fjölskyldunnar á kvöldin, til að geta haldið góðri heilsu. Ég veit að ég er að berj- ast, fyrir sjónarmiðum, sem því miður virðast ekki vera í tízku lengur. Að minu áliti á umhyggja foreldra og réttur barna til að búa í foreldrahúsum þar til þau giftast að vera óumdeilanlegur. Þetta snertir heiður minn. Þess- utan sakna ég dóttur minnar mjög mikið. Ég vœri yðar hágöfgi mjög þakklátur, ef þér vilduð sýna þessu skilning og veita mér að- stoð, og ég bið yður að ala ekki á sjálfstœðislöngun dóttur minn- ar, þótt hún sé orðin tuttugu og eins árs. Ég bið yður að ráð- leggja henni að snúa aftur heim til fjölskyldu sinnar. Virðingarfyllst, Fritz Braun. Braun bað Hoffmann að færa foringjanum þetta bréf, svo það færi ekki á milli mála að það kæmist í hendur hans persónu- lega. Þess í stað fékk Hoffmann Evu bréfið og hún reif það í tætlur. En Fritz Braun hafði tek- ið afrit af bréfinu. Árið 1935 fór Eva að halda dagbók. í fyrstu köflunum er hún óánægð með þá leynd sem alltaf einkenndi samband henn- ar og Hitlers: 6. febrúar 1935. Ég er nýlega orðin tuttugu og þriggja ára, en hvort þetta er ánægjuefni, er önnur saga. Ef ég aðeins ætti lítinn hund, þá væri ég ekki svona einmana. En það er víst að ætlast til of mikils. Frú Schaub kom með blóm og skeyti. (Frú Schaub var eig- inkona Júliusar Schaub, sem var aðstoðaryfirforingi hjá Hitler, svo þessar sendingar voru frá Hitler). Skrifstofan mín er eins og blómabúð, og ilmur blómanna minnir á jarðarför....... 18. febrúar 1935. I gær kom hann alveg óvænt, og við áttum dásamlegt kvöld. En það bezta er að hann hefir i huga að láta mig hætta við starf mitt.... og láta mig hafa lítið einbýlishús. Ég þori varla að hugsa um þetta, það er alltof dásamlegt.... Ég þarf þá ekki að vera búðarstúlka lengur. Góði guð, láttu þetta verða að veru- leika innan skamms.... 28 VIKAN 25- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.