Vikan


Vikan - 19.06.1969, Síða 34

Vikan - 19.06.1969, Síða 34
Öruggari en nokkur önnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búln að tæma vélina. Ké RAFHA-HAKA 500 er sérstak- lega hljóðeinangruð. — Getur staðið hvar sem er án þess að valda hávaða. RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full- komnura þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi, þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Ullarþvottur 30° 2. Viðkvæmur þvottur 40° 3. Nylon, Non-Iron 90° 4. Non-Iron 90° 5. Suðuþvottur 100° 6. Heitþvottur 60° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° 8. Heitþvottur 90° 9. Litaður hör 60° 10. Stífþvottur 40° 11. Bleiuþvottur 100° 12. Gerviefnaþvottur 40° Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. HIIAR ER ÖRKIN HANS NÓA? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Siðast er dregið var hlaut verðlaunin: Borghildur Magnúsdóttir, Eskihlíð 10A, Iteykjavík. Vlnninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. Nafn Hetmili Örkln er á bls. 25 svo dásamlegt. Vesalings frú — ég man ekki hvað hún heitir, — hún með kúlumagann. Sú verður ergileg þegar hún fréttir að ég hafi verið á undan. Bill horfði á hana, út undan sér, og steig á bensíngjöfina. Bill sagði henni síðar, að þetta hefði verið lengsta nótt í lífi hans. Hillis læknir sagði líka að hún hefði gert hann svolítið skelkaðan, hún sem var hreystin uppmáluð: En Maggie sjálf mundi aðeins eftir morgninum, þeirri dásamlegu leti, sem lagðist yfir hana, og tilfinning- unni um að hún hefði leyst verk sitt af hendi, og enginn ætlaðist til neins af henni núna. Og svo var barnið þarna, hraustleg lítil stúlka. Hún var líkust Indíána, svo rauð og hrukk- ótt, með svart hár niður á axlir. Það- an kom brjóstsviðinn .... hugsaði Maggie og mundi eftir spádómi frú Williston. Bill kom með blóm og konfekt- kassa, og margar kveðjur, en síð- degis heyrði hún greinilega fliss í stelpum, sem komu eftir ganginum. Það var Janet með vinkonu sinni, og rétt á eftir komu aðrar tvær vin- konur, sem voru eins og samsæris- menn, skemmtu sér vel yfir því hvernig þær höfðu farið á bak við starfsfólkið. Þær sögðu Maggie hvernig þær hefðu farið að, og ætl- uðu að springa af hlátri, meðan þær sögðu frá. — Þær tóku miðana tvo, og svo stóðum við Peg við stigann, og spurðum hvar útidyrnar væru. Þær héldu að við værum að fara út. — Peg, skömmin þín! — Og svo kom læknirinn, sem spurði: — Hvað vantar ykkur stúlkur mínar? Og aft- ur kafnaði allt í flissi, og loksins þögnuðu þaar. — Fáið ykkur konfekt, sagði Maggie, og rétti þeim kassann. Þær voru grafalvarlegar, þegar þær fengu sér mola, toguðu í hárið á sér, fluttu skólatöskurnar úr einni hendi [ aðra, og vissu ekkert hvað þær áttu að segja. — Láttu pabba þinn bjóða þér út að borða [ kvöld, Janet, þið getið farið á kínverska veitingahúsið. — Ekki til að meina, sagði Janet, — ég er búin að undirbúa matinn, við eigum svo mikið svínakjöt, manstu? — Jæja, hafðu það eins og þú vilt. — Hvernig líður þér? spurði Jan- et. — Prýðilega. — Þú lítur Ijómandi út, frú Salem, sagði ein telpan og þær tóku allar undir í kór. Eftir þeirri fræðslu sem unglingar fengu nú, áttu þær allar eftir að læra sitt hvað um barnsburð, hugsaði Maggie; en svona andspæn- is veruleikanum, voru þær hálf feimnar, eins og þær hefðu það á tilfinningunni að ekki stæði allt ( bókunum, eða á kvikmyndatjaldinu. — Ja, hérna, hvað gengur á? Yf- irhjúkrunarkonan stakk höfðinu inn um dyragættina. — Það er ekki leyfi- legt að koma svona margar [ heim- sókn klukkan sjö í morgun. Komið þið nú, telpur mínar. Maggie leit undrandi á Janet. 34 VIKAN tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.