Vikan - 19.06.1969, Qupperneq 41
Eva Braun
Framhald af bls. 29.
það til að raula einn af uppá-
haldslögum sínum: „Smoke Gets
in Your Eyes“. En hún lofaði að
hætta reykingum, og hún skolaði
vandlega munn og háls til að
leyna því að hún reykti í laumi.
Eitt kvöldið var Hitler farinn
til herbergja sinna, og hún
kveikti í sígarettu. En hann kom
óvænt til baka. í dauðans ofboði
settist Eva á sígarettuna. Hitler
sýndi engin merki um það að
hann grunaði hana, og fór eftir
fimm mínútur. En logandi sígar-
ettan hafði brennt gat á pils Evu,
undirkjól og buxur, og næstum
Evu sjálfa.
Eva var auðvitað óvefengjan-
lega húsmóðir á Berchtesgaden,
og sem slík klæddist hún glæsi-
legum fatnaði. Hún notaði ekki
varlit, það var „óþýzkt“, en hún
litaði hár sitt, til að gera það
ennþá ljósara.
Það var árátta hjá henni að
safna að sér skóm, sem hún fékk
senda frá Ítalíu. Hún notaði
skóna yfirleitt ekki nema einu
sinni, en þá lét hún senda þá til
móður sinnar, systra og vin-
kvenna. Uppáhaldsilmvatn henn-
ar var „L'air bleu“, og hún rak-
aði burt óþarfa hárvöxt, sem alls
ekki var til siðs í Þýzkalandi;
hún fór í bað tvisvar á dag, not-
aði undirkjóla úr silki með
samstæðum brjóstahöldurum.
Hún notaði aldrei lífstykki, held-
ur silkisokkabönd, sem aðstoðar-
fólk Hitlers útvegaði frá París.
Eva var hrifin af skartgripum.
Hún gerði lauslega upptaln-
ingu á skrautgripum sínum, síð-
ari hluta ársins 1944: „Hringir,
einn stór, annar lítill; armband
með smarögðum umkringdum
demöntum; önnur næla, eins og
fiðrildi að lögun; smaragð-eyrna-
lokkar, næla með demöntum og
rúbínum, eins og margaritublóm
í lögun; demantshringur, dem-
antsnæla; annar hringur; dem-
antsúr; næla með blómsturlagi;
demantshringur; skrautgripir
með Berylsteinum; smaragðsett,
prjónn, armband, hálsmen,
hringur og eyrnalokkar; gullarm-
band sett safírum og demöntum;
næla, hálsmen ....“ Listinn tel-
ur yfir 30 verðmæta skartgripi,
þar að auki komu til loðfeldir,
meðal þeirra einn minkafeldur
og annar úr safalaskinni.
Á þessum árum voru reikning-
ar Evu sendir til aðstoðarmanna
Hitlers, sem sáu um greiðslu.
Hún bað aldrei Hitler um pen-
inga, en þegar honum datt sjálf-
um í hug, átti hann til með að
stinga hundrað marka seðlum í
töskuna hennar.
Hitler og Eva gerðu mikið í
því að láta svo frammi fyrir
starfsfólkinu á Berghof, að þau
væru aðeins góðir vinir. Jafnvel
þótt þau hefðu verið saman alla
nóttina, buðu þau hvort öðru
Liljubindi eru betri.
TRYGGIR ■ ■ ■
■ ■ ■ ■ GÆÐIN
Karlmannaföt
Golden Arm
fyrirliggjandi í
fallegu úrvali á
mjög hagstæðu
verði.
Útsölustaðir;
ANDRÉS
Ármúl 5, sími 83800
Skólavörðustíg 22b,
sími 18250
FATAMIÐSTÖÐIN
Bankastræti 9, sími 18252
HERRAMAÐURINN
Aðalstræti 16, sími 24795
Y____________________y
25. tbi. VIICAN 41