Vikan - 07.08.1969, Síða 2
Colgate f luor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun
Spyrjið tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
Jarðfræðistofnun
Að lokinni tunglferð Banda-
ríkjamanna stendur heimur-
inn í anddyri nýrrar verald-
ar. Á næstu árum má búast
við algerri breytingu á lífs-
sýn og viðhorfi okkar til um-
heimsins. Margir hafa dreg-
ið í efa að geimrannsóknir
séu þess virði, að stórfé sé
varið til þeirra árlega. Slík-
ar raddir hljóta að verða
næsta hjáróma, þegar fram
líða stundir. Afrek á borð við
tunglferðina verður aldrei
metið til fjár, fremur en önn-
ur stórvirki, sem mannsand-
anum hefur tekizt að vinna
bæði fyrr og síðar.
f sambandi við ótrúleg
vísindaafrek stórþjóðanna,
vaknar sú spurning, hvort
smáþjóðir geti á nokkurn hátt
tekið þátt í þróun tækni og
vísinda, eða hvort þær séu
dæmdar til að sitja hjá með
hendur í skauti.
Það er engum vafa bund-
ið, að sérhverri þjóð ber að
reyna eftir mætti að skara
fram úr á einhverju einstöku
sviði og spara ekki fé til að
ná settu marki í þeim efn-
um. Slíkt er nauðsynlegt til
að auka stolt, sjálfstraust og
bjartsýni íbúanna og hvetja
þá til aukinna dáða.
Er líklegt, að fslendingar
geti á nokkru sviði vísinda
skarað fram úr og skapað sér
sérstöðu til að minna um-
heiminn á tilveru sína?
Hér á landi er sannkölluð
paradís jarðfræðinga og
hvergi í veröldinni fyrirfinn-
ast jafnmargar tegundir jarð-
söguleera fyrirbæra á einum
og sama stað. Það liggur því
beinast við að koma á fót
sérstakri jarðfræðistofnun við
Háskóla íslands, eins og
margoft hefur verið bent á.
og vería til hennar miklu fé,
•wo nð hún ee+i eflzt og vax-
ið með skíótum bæt.ti. ,G.Gr.