Vikan


Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 3

Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 3
31. árgangur - 33. tölublaS - 15. ágúst 1969 i ÞESSARI VIKU „Smekkurinn breytist með kynslóð hverri" segir Gerður Hjörleifsdóttir í viðtali við Vikuna. Hún veitir forstöðu nýrri verzlun, sem Heimilisiðnaðarfélag íslands rekur i Hafnarstræti, en þangað hafa erlendir ferðamenn flykkzt í sumar. Þau kynntust að eigin sögn á ósköp venjulegan og órómantiskan hátt — á Hótel Sögu. Og giftu sig síðan í febrúarmánuði siðastliðnum. Vikan heimsótti á dögunum Sigriði Rögnu Sigurðardóttur, sjónvarpsþul og kennara, og eiginmann hennar, Hákon Olafsson, verkfræðing. Við segjum frá heimsókninni í máii og myndum á bls. 18 og 19. Ástir frumstæðra þjóða heitir nýr greina- flokkur, sem hefst í þessu blaði. í fyrsta þættinum segir frá Paragvæ, sem er eitt frumstæðasta og fátækasta ríki í heims. Þar þykja pyndingar sjálfsagður liður við hjónavígslur. Ef brúðhjónin standast prófið, hafa þau sýnt og sannað, að þau séu fólk til að glíma við erfiðleika lífsins. VIKAN ( NÆSTU VIKU Hinn nýi forseti Frakklands, Pompidou, hefur verið mikið í kastljósinu að undanförnu. Og ekki hefur hin fagra kona hans vakið minni athygli. í næsta blaði bregðum við upp svipmynd af frönsku forsetahjónunum. Utgáfa á íslenzkum hljómplötum hefur alltaf verið nokkur, en farið ört vaxandi á síðustu árum. En hvernig verður hin íslenzka hljómplata til? í næsta blaði rekjum við sögu einnar íslenzkrar plötu, allt frá því að hugmyndin að henni fæðist, og þar til hún er sett á markaðinn. „Ég lifi heldur ómerkilegu lífi", sagði Bing Crosby í einkaviðtali við Vikuna, þegar hann kom hingað í siðasta mánuði til að veiða lax. Vikunni tókst eftir mikið stímabrak að fá langt og ítarlegt viðtal við Bing Crosby, þar sem hann rekur frægðarferil sinn í stuttu máli, segir frá lífinu í Hollywood og vinum sínum þar og ýmsu öðru. í FULLRI ALVÖRU Eitt af því bezta í fari nútimans er stöðugt vaxandi raunsæi, tilhneiging til að skyggnast undir yfirborð hlutanna og láta ekki glepjast af fagurgala og lýðskrumi. Fréttamiðlar, blöð, útvarp og sjónvarp, gera sér æ betur Ijóst, að hlutverk þeirra er fyrst og fremst að flytja sann- ar og hlutlausar fréttir. Aukin menntun og víð- sýni gerir almenningi kleift að draga sjálfur ályktanir, ef hann aðeins fær staðgóðar upplýs- ingar, sem óhætt er að treysta. Það er hætt við, að stjórnmálamönnum reyn- ist erfitt nú á dögum að stunda starf sitt á sama hátt og gert hefur verið hér á landi til skamms tima: Haga seglum eftir vindi; leggja höfuð- áherzlu á að túlka málin sjálfum sér og flokki sínum í hag í stað þess að segja sannleikann umbúðalaust. Almenningur sér í gegnum mold- viðri sýndarmennsku og blekkinga, enda trúa menn ekki í blindni á sína menn og sinn flokk eins og áður. Stærsta blað landsins hefur í allt sumar hamr- að á þvf í forystugreinum sínum, að tekizt hafi að sigrast á efnahagsörðugleikunum og hættan sé liðin hjá. Þetta er að sjálfsögðu sagt til að sýna fram á, að stefna stjórnarinnar hafi verið rétt og lofi snilli núverandi ráðamanna og snar- ræði á hættunnar stund. En skyldi þetta vera rétt? Síldin hefur brugð- izt gjörsamlega, og sáralítið hefur verið unnið við byggingarframkvæmdir. Verzlunarmenn segja, að kaupgeta almennings hafi síður en svo aukizt, þótt ofurlítil hækkun hafi komið til. Mikil óvissa er því enn ríkjandi og allra veðra von. Senn tekur að hausta, og margir bera kvíð- boga fyrir erfiðum vetri. Þess vegna trúa menn varlega digurbarkalegum skrifum og hóli um eigið ágæti. G.Gr. VIKAN Útgefandi Hilmir hf. Ritstjóri: SigurSur Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útli tsteikning: Halldóra Hall- dórsdóttir. Drcifing: Óskar Karlsson. Auglýsinga- stjóri: Jensina Karlsdóttir. — Kitstjórn, auglýsingar, afgrciðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar: 35330 — 35333. Pósthólf: 533. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarvcrð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórð- ungslega, 900 kr. fyrir 36 tölublöð missirislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftar- gjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru; Nóvem- bcr, febrúar, maí og ágúst eða mánaðarlega. 33. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.