Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 41
Fjórar Ford konur
Framhald af bls. 23
af bezt klæddu konum heims.
Þegar hún giftist Johnson hæsta-
réttarlögmanni síðastliðið ár, þá
var mikill spenningur á Beverly
Hills. Jafnvel áður en þau gift-
ust, og hún var að ganga frá
hinu glæsilega húsi, sem nú er
heimili þeirra, þá var varla um
annað talað, því hún fór sannar-
lega ekki eftir því sem tíðkast
þar í borg. Húsgögnin eru aðal-
lega frönsk, og hún átti ómetan-
leg málverk og önnur listaverk.
Nú er Anne Ford Johnson orðin
hin ókrýnda drottning sam-
kvæmislífsins.
Það var hamingjudagur í lífi
hennar, þegar „Rocky“ Converse
(áður eiginkona Cary Cooper)
kynnti hana fyrir honum há-
vaxna, laglega Deane Johnson.
Þegar Henry og Anne skildu,
var sagt í blöðunum að þau hef ðu
elcki getað komið sér saman um
lifnaðarhætti. Anne var mikið
fyrir glæsileg samkvæmi og
falleg föt; Henry var vinnu-
þjarkur og klæddist helzt þægi-
legum fatnaði. Það var sagt að
hún þreytti hann með samkvæm-
islífinu.
Henry Ford var á hættuleg-
um aldri, þegar hann fór að taka
eftir stúlku, sem var alger mót-
setning við Anne. Hún hafði
engan áhuga á fatnaði, var glað-
leg og skemmtileg og hreinrækt-
aður Evrópubúi, mjög hrifin af
Henry og einn kunningi þeirra
sagði að hún eggjaði hann til
þessa og hins, og hældi honum
svo á eftir.
Þetta varð til að hrista við
undirstöðum Ford ættarinnar,
börnunum hans fannst heimilið
hrynja í rúst, Henry fékk skiln-
að, kvæntist aftur, þótt hann
væri bannfærður af kirkjunni.
Það var einkennilegur áhitt-
ingur fyrir Ford, að það skyldi
vera Austin sem hann rakst
svona rækilega á.
Cristina Vettore Austin var
fædd í Feneyjum og alin upp í
Mílanó. Hún var þrjátíu og
þriggja ára, þegar hún hitti
Henry Ford fyrst, í miðdegis-
verðarboði hjá frænda hans í
París. Hún var óforbetranleg-
ur bóhem, eðlileg í framkomu og
nokkuð kærulaus. Hún hafði ver-
ið gift kanadiskum sjóliðsfor-
ingja, en skildi við hann árið
1955. Hún var sögð skemmtileg
og hjartagóð, hafði mikið dálæti
á kraftmiklum bílum, hamborg-
urum og lauk, og skipti sér yfir-
leitt ekki af því sem sagt var um
hana.
Þótt orðrómur væri á kreiki
strax árið 1961, þá hélt Cristina
því alltaf fram að þau væru
„bara vinir“, en Ford fór ekkert
leynt með hrifningu sína á þess-
ari hressilegu ,ljóshærðu stúlku.
Um þetta leyti fór að losna
nokkuð um heimilislífið í Detroit.
Fjölskyldan fór að leggja meira
leið sína í skemmtanalífið í New
York og Evrópu. Þau komust að
því að peningar þeirra opnuðu
allar dyr. Það hafði verið mikið
talað um það hve dýr samkvæm-
in voru, þegar dæturnar, Anne og
Charlotte voru kynntar í sam-
kvæmislífinu, með tveggja ára
millibili, jafnvel þótt noxkrir
Detroitbúar segðu: „Gamli
Ford hafði ekki mikla ánægju af
auðæfum sínum, hvi skyldi þá
Henry II., sem bjargaði fyrir-
tækinu, eiginlega einn og óstudd-
ur, ekki reyna að njóta ein-
hvers?“ Já, það var ekkert vafa-
mál að Ford fjölskyldan hélt sig
- Læknirinn ætlar að líta á hálsinn.
En hann sagSi mér aS fara úr öllu.
y
33. tbi. VIKAN 41