Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 12
Hádegisverdurinn
ÞÁ GERÐIST SKELFILEGT ATVIK. Á MEÐAN VIÐ BIÐUM EFTIR KAFFINU, KOM YFIRÞJÖNNINN,
BROSTI SMEÐJULEGA OG HÉLT Á SKÁL, SEM VAR FULL AF STÖRUM FERSKJUM.
GAMANSAGA EFTIR SOMERSET MAUGHAM
ÉG KOM AUGA Á HANA í
leikhúsinu, og sem svar við
bendingu hennar fór ég til
hennar í hléinu og settist hjá
henni. Það var langt síðan ég
hafði séð hana síðast, og ef
einhver hefði ekki nefnt nafn
hennar, hefði ég varla þekkt
hana aftur. Hún ávarpaði
mig glaðlega:
„Það eru mörg ár síðan við
hittumst fyrst. Hvað tíminn
líður! Við erum engin börn
lengur. Munið þér, þegar ég
sá yður í fyrsta skipti. Þér
buðuð mér í hádegisverð."
Hvort ég mundi!
Það var fyrir tuttugu ár-
um, og ég átti heima í París.
Ég bjó í íbúðarkytru, sem
sneri út að kirkjugarði, og
tekjur mínar voru ekki meiri
en svo, að ég rétt skrimti.
Hún hafði lesið bók eftir mig
og hafði skrifað mér um það.
Eg svaraði bréfi hennar og
þakkaði henni hjartanlega
fyrir hugulsemina. Sðan fékk
ég annað bréf frá henni, þar
sem hún segir mér, að hún
ætli að koma við í París og
sér mundi þykja gaman að
fá tækifæri til að rabba við
mig. En hún kvaðst hafa
mjög nauman tíma. Eini tím-
inn, sem hún hefði aflögu,
væri næstkomandi fimmtu-
dag. Morgninum ætlaði hún
að eyða í Luxemborgarsafn-
inu, en síðan kom hin lokk-
andi spurning: hvort ég vildi
ekki bjóða henni til hádegis-
verðar í Foyot's á eftir?
Foyot's er matsölustaður, þar
sem franskir þingmenn borða,
og þar var allt svo dýrt, að
12 VTKAN
það hvarflaði ekki að mér að
fara þangað. En hégóma-
girnd mín var vakin, og ég
var of ungur til að kunna að
neita konu um nokkra bón.
(Ég get bætt því hér við, að
fáir menn læra þetta, fyrr en
þeir eru orðnir of gamlir til
að það skipti nokkru máli,
hvað þeir segja). Ég átti í al-
eigu minni áttatíu gull-
franka, sem áttu að endast
mér út mánuðinn, og óbrot-
inn hádegisverður átti ekki
að kosta meira en fimmtán.
Ef ég léti vera að drekka
kaffi næsta hálfan mánuð,
ætti ég að komast sæmilega
af.
Ég svaraði bréfi vinkonu
minnar og sagðist skvldi
hitta hana í Foyot‘s á
fimmtudaginn klukkan hálf
eitt. Hún var ekki eins ung
og ég hafði búizt við, og hvað
útlitið snerti, þá var það
fremur tígulegt en aðlaðandi.
Hún var sem sagt kona um
fertugt. Það er að vísu ynd-
islegur aldur, en ekki sá, sem
vekur óslökkvandi ástríðu
við fyrstu sýn. Og mér fannst
hún hafa fleiri hvítar, stórar
og reglulegar tennur en nauð-
synlegt væri til daglegra
]>arfa. Hún var skrafhreyfin,
og þar eð hana virtist langa
til að tala um mig, var ég
þess albúinn að hlusta á hana
með athygli.
Mér brá í brún, þegar kom-
ið var að matseðlinum, því
að verðið var miklu hærra
en ég hafði búizt við. En hún
róaði mig.
„Ég borða aldrei neitt um
hádegið,“ sagði hún.
„Þetta megið þér ekki
segja,“ sagði ég höfðinglega.
„Ég borða aldrei meira en
einn rétt. Mér finnst fólk
borða alltof mikið nú á dög-
um. Kannski svolítinn fisk.
Skyldu þeir hafa nokkurn
lax?“
Ja, laxatíminn var nú ekki
lcominn ennþá, og það var
enginn lax á matseðlinum. En
ég spurði þjóninn, hvort hann
væri til. Jú, þeir voru nýbún-
ir að íá fallegan lax, þann
fyrsta, sem þeim hafði bor-
izt. Ég pantaði hann handa
gesti mínum. Þjónninn spurði
hana, hvort hún vildi fá eitt-
hvað, á meðan verið væri að
sjóða laxinn.
„Nei,“ svaraði hún. „Ég
borða aldrei nema einn rétt.
Nema ef þér hafið svolítinn
kavíar. Ég neita aldrei kaví-
a
ar.
Það kom dálítið á mig. Ég
vissi, að ég hafði ekki efni á
kavíar, en ég kom mér ekki
að því að segja henni það. Ég
bað þjóninn fyrir alla muni
að koma með kavíar. Handa
sjálfum mér valdi ég Ódýr-
asta réttinn á matseðlinum,
og var það lambakóteletta.
„Ég held, að það sé óvitur-
legt af yður að borða kjöt,“
sagði hún. „Eg skil ekki,
hvernig hægt er að ætlast til
þess, að maður geti unnið,
eftir að hafa borðað þung-
meti eins og lambakótelettur.
Ég hef ótrú á að offylla mag-
ann.“
Næst á dagskrá var að
velja drykkinn.
„Ég drekk aldrei neitt með
hádegisverðinum,“ sagði hún.
„Ekki ég heldur,“ svaraði
ég um hæl.
„Nema hvítvín,“ hélt hún
áfram, eins og ég hefði ekki
sagt neitt. „Þessar hvítvíns-
tegundir eru svo léttar. Þær
eru svo dásamlegar fyrir
meltinguna.“
„Hvað vilduð þér fá?“
spurði ég ennþá gestrisinn, en
ekki beinlínis ofsaglaður. Hún
brosti hýrt og vingjarnlega
og lét um leið skína í hvítar
tennurnar.
„Læknirinn minn bannar
mér að drekka annað en
kampavín.“
Það mætti segja mér, að
ég hafi fölnað lítið eitt. Ég
pantaði hálfa flösku. Ég lét
þess getið eins og af hend-
ingu, að læknirinn minn hefði
hins vegar bannað mér
stranglega að drekka kampa-
vín.
„Hvað ætlið þér þá að
drekka?“
„Vatn.“
Hún borðaði kavíarinn og
luin borðaði laxinn. ILún tal-
aði fjörlega um listir, bók-
menntir og hljómlist. En ég
kveið fyrir reikningnum.
Þegar kótelettan mín koim,
tók hún mig alvarlega til
bæna.
„Ég sé, að þér hafið vanið
yður á að borða þungmeti um
hádegið. Ég er viss um, að
það er rangt. Hvers vegna
gerið ] )ér ekki eins og ég og
Framhald á bls. 34.