Vikan


Vikan - 14.08.1969, Side 12

Vikan - 14.08.1969, Side 12
Hádegisverdurinn ÞÁ GERÐIST SKELFILEGT ATVIK. Á MEÐAN VIÐ BIÐUM EFTIR KAFFINU, KOM YFIRÞJÖNNINN, BROSTI SMEÐJULEGA OG HÉLT Á SKÁL, SEM VAR FULL AF STÖRUM FERSKJUM. GAMANSAGA EFTIR SOMERSET MAUGHAM ÉG KOM AUGA Á HANA í leikhúsinu, og sem svar við bendingu hennar fór ég til hennar í hléinu og settist hjá henni. Það var langt síðan ég hafði séð hana síðast, og ef einhver hefði ekki nefnt nafn hennar, hefði ég varla þekkt hana aftur. Hún ávarpaði mig glaðlega: „Það eru mörg ár síðan við hittumst fyrst. Hvað tíminn líður! Við erum engin börn lengur. Munið þér, þegar ég sá yður í fyrsta skipti. Þér buðuð mér í hádegisverð." Hvort ég mundi! Það var fyrir tuttugu ár- um, og ég átti heima í París. Ég bjó í íbúðarkytru, sem sneri út að kirkjugarði, og tekjur mínar voru ekki meiri en svo, að ég rétt skrimti. Hún hafði lesið bók eftir mig og hafði skrifað mér um það. Eg svaraði bréfi hennar og þakkaði henni hjartanlega fyrir hugulsemina. Sðan fékk ég annað bréf frá henni, þar sem hún segir mér, að hún ætli að koma við í París og sér mundi þykja gaman að fá tækifæri til að rabba við mig. En hún kvaðst hafa mjög nauman tíma. Eini tím- inn, sem hún hefði aflögu, væri næstkomandi fimmtu- dag. Morgninum ætlaði hún að eyða í Luxemborgarsafn- inu, en síðan kom hin lokk- andi spurning: hvort ég vildi ekki bjóða henni til hádegis- verðar í Foyot's á eftir? Foyot's er matsölustaður, þar sem franskir þingmenn borða, og þar var allt svo dýrt, að 12 VTKAN það hvarflaði ekki að mér að fara þangað. En hégóma- girnd mín var vakin, og ég var of ungur til að kunna að neita konu um nokkra bón. (Ég get bætt því hér við, að fáir menn læra þetta, fyrr en þeir eru orðnir of gamlir til að það skipti nokkru máli, hvað þeir segja). Ég átti í al- eigu minni áttatíu gull- franka, sem áttu að endast mér út mánuðinn, og óbrot- inn hádegisverður átti ekki að kosta meira en fimmtán. Ef ég léti vera að drekka kaffi næsta hálfan mánuð, ætti ég að komast sæmilega af. Ég svaraði bréfi vinkonu minnar og sagðist skvldi hitta hana í Foyot‘s á fimmtudaginn klukkan hálf eitt. Hún var ekki eins ung og ég hafði búizt við, og hvað útlitið snerti, þá var það fremur tígulegt en aðlaðandi. Hún var sem sagt kona um fertugt. Það er að vísu ynd- islegur aldur, en ekki sá, sem vekur óslökkvandi ástríðu við fyrstu sýn. Og mér fannst hún hafa fleiri hvítar, stórar og reglulegar tennur en nauð- synlegt væri til daglegra ]>arfa. Hún var skrafhreyfin, og þar eð hana virtist langa til að tala um mig, var ég þess albúinn að hlusta á hana með athygli. Mér brá í brún, þegar kom- ið var að matseðlinum, því að verðið var miklu hærra en ég hafði búizt við. En hún róaði mig. „Ég borða aldrei neitt um hádegið,“ sagði hún. „Þetta megið þér ekki segja,“ sagði ég höfðinglega. „Ég borða aldrei meira en einn rétt. Mér finnst fólk borða alltof mikið nú á dög- um. Kannski svolítinn fisk. Skyldu þeir hafa nokkurn lax?“ Ja, laxatíminn var nú ekki lcominn ennþá, og það var enginn lax á matseðlinum. En ég spurði þjóninn, hvort hann væri til. Jú, þeir voru nýbún- ir að íá fallegan lax, þann fyrsta, sem þeim hafði bor- izt. Ég pantaði hann handa gesti mínum. Þjónninn spurði hana, hvort hún vildi fá eitt- hvað, á meðan verið væri að sjóða laxinn. „Nei,“ svaraði hún. „Ég borða aldrei nema einn rétt. Nema ef þér hafið svolítinn kavíar. Ég neita aldrei kaví- a ar. Það kom dálítið á mig. Ég vissi, að ég hafði ekki efni á kavíar, en ég kom mér ekki að því að segja henni það. Ég bað þjóninn fyrir alla muni að koma með kavíar. Handa sjálfum mér valdi ég Ódýr- asta réttinn á matseðlinum, og var það lambakóteletta. „Ég held, að það sé óvitur- legt af yður að borða kjöt,“ sagði hún. „Eg skil ekki, hvernig hægt er að ætlast til þess, að maður geti unnið, eftir að hafa borðað þung- meti eins og lambakótelettur. Ég hef ótrú á að offylla mag- ann.“ Næst á dagskrá var að velja drykkinn. „Ég drekk aldrei neitt með hádegisverðinum,“ sagði hún. „Ekki ég heldur,“ svaraði ég um hæl. „Nema hvítvín,“ hélt hún áfram, eins og ég hefði ekki sagt neitt. „Þessar hvítvíns- tegundir eru svo léttar. Þær eru svo dásamlegar fyrir meltinguna.“ „Hvað vilduð þér fá?“ spurði ég ennþá gestrisinn, en ekki beinlínis ofsaglaður. Hún brosti hýrt og vingjarnlega og lét um leið skína í hvítar tennurnar. „Læknirinn minn bannar mér að drekka annað en kampavín.“ Það mætti segja mér, að ég hafi fölnað lítið eitt. Ég pantaði hálfa flösku. Ég lét þess getið eins og af hend- ingu, að læknirinn minn hefði hins vegar bannað mér stranglega að drekka kampa- vín. „Hvað ætlið þér þá að drekka?“ „Vatn.“ Hún borðaði kavíarinn og luin borðaði laxinn. ILún tal- aði fjörlega um listir, bók- menntir og hljómlist. En ég kveið fyrir reikningnum. Þegar kótelettan mín koim, tók hún mig alvarlega til bæna. „Ég sé, að þér hafið vanið yður á að borða þungmeti um hádegið. Ég er viss um, að það er rangt. Hvers vegna gerið ] )ér ekki eins og ég og Framhald á bls. 34.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.