Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 5
BATNANDI MANNI
ER BEZT AÐ LIFA
Árið 1964 var maður að nafni
Richard Sjoblad dæmdur til lífs-
tíðar þrælkunarvinnu í ríkinu
Oregon í Bandaríkjunum. Dóm-
arinn lýsti því yfir um leið, að
sakborningurinn væri einhver
siðlausasta mannvera, sem hann
hefði nokkru sinni kynnzt.
Sjoblad hafði margt misjafnt
á samvizkunni, síðast vopnað rán
og nauðgun. En þegar rimla-
hurðin skall í lás að baki hon-
um og algjör einangrun blasti
við, tók hann upp á því að reyna
að drepa tímann með því að
stunda félagsfræðinám í gegnum
bréfaskóla.
Nú er Richard Sjoblad 32 ára
gamall og lauk fyrir skemmstu
burtfararprófi frá háskólanum í
Portland. Hann hefur verið náð-
aður og er í þann veginn að
hefja starf sem félagsfræðingur
hjá sjálfu ríkinu.
Því miður er það næsta fá-
gætt, að innilokun hafi svo góð
áhrif á afbrotamenn eins og
þessi saga sýnir, enda heldur
Sjoblad því fram, að fangelsis-
vist forherði glæpamenn, þótt
hann hafi sjálfur tekið sinna-
skiptum og orðið nýr maður eft-
ir betrunarvist sina.
ERU SÍURNAR
GAGNSLAUSAR?
í sænska læknaritinu „Lákar-
tidningen“ segir frá því, að
rannsókn, sem nýlega var gerð
við háskóla í Stokkhólmi, hafi
sT>n+. að síur í sígarettum dragi
ekki alltaf úr skaðlegum verk-
unum tóbaksins. I reyknum frá
sumum sígarettum með síu er
jafnvel meiih tjara og meir,a
nikótín en í síulausum sígarett-
um.
$ korn
• ÓPERA: Leikur, þar sem
maður, sem fær rýting í bakið,
syngur í staðinn fyrir að detta
dauður niður.
• LÆKNIR: Maður, sem tekur
lífinu létt, þ. e. a. s. lífi annarra.
0 UPPÞVOTTUR: Bezta ráðið
til að halda eiginmanninum frá
eldhúsinu.
0 RIJMBA: Listin að kveðja,
án þess að nota hendurnar.
0 SAMVIZKA: Innri rödd, sem
segir, að einhver sé á gægjum.
0 EINKARITARI: Stúlka, sem
fær borgað fyrir að læra á rit-
vél, á meðan hún er að leita sér
að eiginmanni.
0 SNOBB: Maður, sem vill að-
eins umgangast þá, sem ekki
vilja umgangast hann.
ÖÐRUVÍSI MÉR ÁÐUR BRÁ.
Þessi mynd er af Sukarno,
fyrrum Indónesíuforseta, sem
nú er í stofufangelsi og hefur
verið sviptur öllum völdum.
Með honum er hin japanska
Ratna Dewi, en þau kynntust á
bar nokkrum í Tokyo. Sú var
tíðin, að Sukarno var einn mesti
glaumgosi og kvennamaður í
Austur-Asíu, en nú er hann
innilokaður og undir stöðugu
eftirliti lækna og sálfræðinga.
Einu heimsóknirnar sem hann
fær eru frá sautján ára gömlum
syni hans, Guntur. Hann heim-
sækir föður sinn reglulega og
virðist vera eina manneskjan,
sem lætur sér annt um hinn
fallna forseta.
Hin fagra Ratna Dewi lætur
skila til Sukarnos öðru hverju,
að hún sé að hugsa um að koma
til hans, en hún hefur enn ekki
látið verða af því. Sumar konur
geta verið skelfing lengi að
hugsa.
0 STÓRBORG: Staður, þar
sem tekur hálftíma að finna
bílastæði, þar sem bíllinn má
standa í kortér.
0 WHISKY: Vinsælasta meðal-
ið, sem ekki dugar við kvefi.
KAFAÐ EFTIR GULLI OG GIMSTEINUM.
f allt sumar hefur
áhugakafarinn
Christopher Oldfield
kafað daglega niður
á þrjátíu metra dýpi
við Blasketteyjar,
rétt fyrir utan
strönd frlands. Old-
field og félagar
hans leita að skip-
inu Santa Maria de
la Rose, sem á sín-
um tíma var flagg-
skip spænska flot-
ans, en sökk á þess-
um slóðum árið 1588.
Sagt er, að um borð
hafi verið álitleg
peningafúlga, auk
gulls, silfurs, eðal-
steina og ýmissa
annarra dýrgripa.
-ú
# visur vikunnar
Nú faðmar sólin fjöllin blá
og fæstir standast töfra þá:
jafnt trúað fólk með tekjuskatt
og táningar sem aka hratt.
Og útúr bænum ekur hver
sem útisportið valdi sér,
slíkt dýr og fuglar óttast enn
og önnum kafnir sveitamenn.
Að unna sinni æskuslóð
var aldrei líkt og nú í móð
þar girnist nú hvern rima og reit
þeir ríku, er forðum voru á sveit.
33. tbi. VIKAN 5