Vikan


Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 36

Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 36
HarÍtiiarkariir JJhhí- & 'Utikurtir H Ö. VILHJÁLMSSDN RÁNARGÖTU >2 SÍMI 19669 V J Framhald af bls. 29 — Þú segir að þér líki vel við þennan unga mann. Þekktirðu hann ekki fyrr en á skipinu? — Nei. En mamma, það er eins gott að ég segi þér það, ég hefi ekki verið neitt ástríðufull undanfarið; ég veit ekki hvort ég verð það aftur. Kannski aldrei. — Hversvegna? Clare hristi höfuðið. — Eg ætla ekki að fara að rifja upp hjóna- líf mitt með Jerry, ekki einu sinni nú, þegar hann hefur gert mér þennan óleik. — Ég reikna með að þessi ungi maður hefði strokið með þér hve- nær sem er? — Jú, en ég óska þess ekki. Þessutan gaf ég Em frænku hátíðlegt loforð um það að flækja mig ekki í nein ástamál næsta ár. Og það hefi ég ekki gert fram að þessu. Það er ákaflega freistandi að verja sig ekki og vera frjáls. Lafði Cherrell sat þögul. — Hvað finnst þér mamma? — Faðir þinn verður að hugsa fyrst og fremst um heiður þinn og fjölskyldunnar. — Ef við reynum ekki að verja okkur, verður þetta aðeins stund- arfyrirbrigði, og allir gleyma því fljótt, en ef við förum út í vörn, verður þetta blaðamatur. Sérðu það fyrir þér: „Nótt í bíl“, og allt þar fram eftir götunum, jafnvel þótt okkur væri trúað. — Ég held, sagði lafði Cherrell, — að hvað sem skeður, endar það alltaf í þeirri einu tilfinningu, sem faðir þinn hefur viðvíkjandi svipuhögginu, ég hefi aldrei vitað hann svo reiðan. Ég held að honum finnist þú verðir að fara í vörn. — Ég myndi aldrei minnast á svipuna fyrir rétti. Það yrði auð- velt fyrir hann að neita því, það voru engin vitni. Dinny fylgdi föður sínum til vinnustofunnar, sem í daglegu tali var kölluð „bragginn“. — Þú þekkir þennan unga mann, Dinny, sagði hershöfðinginn. — Já, og mér líkar vel við hann. Hann er innilega ástfanginn af Clare. — Hvaða rétt hefur hann til þess? — Vertu nú mannlegur, pabbi. — Trúir þú sögur.ni um nóttina í bílnum? — Já, enda heyrði ég Clare gefa Em frænku hátíðlegt loforð. — Það er einkennilegt að þurfa að gefa slík loforð. — Og rangt, ef ég á að segja mína meiningu. — Hvað! — Mér finnst það eina sem máli skiptir sé að losa Clare úr þessu hjónabandi. Hershöfðinginn stóð álútur og hugsandi, léttur roði breiddist yfir kinnbeinin. — Hún hefur sagt þér það sem hún sagði mér, að þessi náungi hafi notað svipuna sína til að berja hana með? Dinny kinkaði kolli. — í gamla daga hefði ég getað skorað hann á hólm fyrir slíkt athæfi. -—• Ég held að það myndi aldrei hvarfla að henni að ljúga að okkur. — Þá trúir þú henni? — Það er gott, pabbi minn, en hver annar trúir henni? Myndir þú gera það, ef þú værir í kviðdóminum? — Ég veit það ekki, sagði hershöfðinginn dauflega. Dinny hristi höfuðið. — Þú myndir ekki gera það. — Lögfræðingar eru mjög snjallir. Ég býst ekki við að Dornford vilji taka þetta að sér. — Hann er ekki við skilnaðarréttinn. Og svo er hún ritari hans. — Ég verð að reyna að tala við þá hjá Kingson, Lawrence hefir tröllatrú á þeim. Faðir Fleur var í því fyrirtæki. — Þá Dinny þagnaði þegar dyrnar opnuðust. — Herra Croom, herra minn. — Þú þarft ekki að fara, Dinny. Ungi maðurinn gekk inn. Hann kinkaði kolli til Dinnyar og gekk svo til hershöfðingjans. — Clare sagði mér að koma, herra. Hershöfðinginn kinkaði kolli, kipraði saman augun og horfði fast á unga manninn, sem ekki hörfaði undan augnaráði hans. 36 VIKAN 33 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.