Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 22
Christina Austin Ford, núverandi eiginkona Henrys Ford II,
Þær eru á forsíðum heimsblaðanna, en þær losna ekki
heldur við slúðurdálkana.
Þær heita: Anne Johnson, Cristina Ford, Charlotte Niar-
chos og Anne Uzielli. Þótt þær beri ekki allar Ford nafnið
nú, eru þær allar tengdar og skyldar Ilenry Ford II., sem
er fyrri maður Anne eldri, núverandi eiginmaður Cristinu
Austin Ford, og faðir Charlotte Niarchos og Anne Uzielli.
Það er auðvitað hin geysilegu auðæi'i fjölskyldunnar, sem
gerir þessum konum kleyft að lifa í slíkum munaði; fjölskyld-
unnar, sem orðin er eins og konungsfjölskylda í Bandaríkj-
unum, engu síður en Kennedv fjölskyldan frá Boston.
Það var „Tin Lizzie“, blikkdósin svokallaða, sem var upp-
hafið af veldi Ford fjölskyldunnar, sem hefir náð ótrúlega
langt á skömmum tíma. Það var afi Ilenrys Fords II. sem
með dugnaði, eljusemi og miklum sparnaði, lagði grund-
völlinn að þessum miklu auðæfum.
Hin fræga T-gerð Fordbílanna var einföld, ódýr og gat
ekið hratt. Ford konurnar eru ekki ódýrar í rekstri, þær eru
glæsilegar og þær aka líka hratt uin heiminn.
Fram að þessu hafa þær ekki sýnt merki þess að þær séu
farnar að þreytast á þessum stöðuga þveitingi milli heims-
álfa, enda eru þær ungar að árum og hafa þægileg farartæki.
Fiórar
Konwr
ÞÆR ERU FJÖRAR, OG MEÐAL FEGURSTU OG
BEZT KLÆDDU KVENNA í HEIMINUM, - ÞAÐ
ER EKKERT VAFAMÁL........
22 VHCAN tbl-