Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 24
24 VIKAN 33-tbI-
THE ROHING
STONES
Eftir nokkurt hlé eru Rolling Stones — eða
Rollingarnir, eins og þeir eru jafnan nefnd-
ir hér — komnir fram á sjónarsviðið. Virð-
ast þeir félagar nú sýnu hressari en nokkru
sinni fyrr og bendir margt til þess, að þeir eigi
enn eftir að láta töluvert að sér kveða. Otal
skakkaföll hafa hrjáð þessa umdeildu hljóm-
sveit á ferli hennar en nú virðist séð fyrir end-
ann á þrengingunum. Tveggja laga plata hljóm-
sveitarinnar með laginu „Honky Tonk Woman"
hefur hvarvetna hlotið miklar vinsældir, tvær
hæggengar hljómplötur eru þegar tilbúnar og
væntanlegar í umferð innan tíðar, hljómleika-
ferðir eru fyrirhugaðar og sitthvað fleira er í
bígerð.
Eins og kunnugt er lézt gítarleikarinn Brian
Jones með sviplegum hætti að heimili sinu
fyrir rúmum mánuði. Hann hafði sagt sig
úr hljómsveitinni skömmu áður, og var ástæð-
an sögð sú, að hann hefði ekki lengur áhuga
á þeirri músik, sem Rollingarnir fengust við.
Mick Jagger sagði við blaðamenn skömmu eft-
ir að Ijóst var, að Brian mundi hætta, að þeir í
hljómsveitinni hefðu lengi vitað, að Brian væri
áhugalaus og hefði litla ánægju af að fást við
þá músik, sem Rollingarnir fluttu. Og hann
bætti við:
— Það kom óhjákvæmilega að því, að við
ræddum málið í alvöru og hreinskilni, og þá
varð okkur Ijóst, að það yrði öllum fyrir beztu,
að Brian hætti. Þessi viðskilnaður fór fram í
mestu vinsemd, og það var hvorki af okkar
hálfu né Brians nokkur vottur gremju eða
beiskju eins og oft vill verða, þegar þannig
stendur á.
Þegar Brian var horfinn úr hljómsveitinni var
félögum hans nokkur vandi á höndum.
Þeir þurftu þegar í stað að fá gítarleikara
í hans stað. Ekki vildu þeir auglýsa eftir gítar-
leikara, því að þá hefðu þeir þurft að hiusta á
hundruð umsækjenda, og það tók alltof langan
tíma og var alltof mikið umstang að þeirra áliti.
Að lokum ákvað Mick Jagger að leita ráða hjá
John Mayall, þeim frábæra bluesleikara. Sagði
Jack, að hann treysti bezt dómgreind Mayalls
í þessum efnum. Mayall benti Rollingunum á
Mick Taylor, sem hafði til skamms tíma leikið
með hljómsveit hans.
— Það rumdi nú bara í John, þegar ég sagði
honum, að okkur langaði til að kynnast Mick,
en ég tók það sem „já" og þar með sem með-
mæli með piltinum.
Ekki vildu Rollingarnir kaupa köttinn í sekkn-
um, og þess vegna nefndu þeir ekki við
hann, þegar þeir settu sig í samband við
hann, að þeir hefðu áhuga á að fá hann (
hljómsveitina. Þeir báðu hann hins vegar að að-
Hinn nýi liðsmaður Rollinganna, Mick Taylor.
4 Marianne Faithfull, heitkona Mikka Jagger. I»au
leika nú systkini í kvikmynd, sem verið er að
taka i Ástralíu.