Vikan


Vikan - 14.08.1969, Side 11

Vikan - 14.08.1969, Side 11
höfðu verulegan áhuga og ánægju af að vinna ullina. Við gerum okkur því góðar vonir með að þetta týnist ekki niður, að ungu kon- urnar haldi áfram. —- Og trémunirnir, eftirlíkingar af húsmunum, eru þeir líka fram- leiddir hér á landi? — Já, það er maður sem rennir þetta sérstaklega fyrir okkur. En það sem háir okkur svolítið er að karlmennirnir eru ekki nógu dug- legir að vinna að þessum málum. En þeim fjölgar nú heldur í fé- laginu, svo að við gerum okkur vonir um að það standi til bóta með þá. Talið berst nú að stofnun félagsins, tildrögum hennar og sögu þess síðan. Gerði farast svo orð: — Félagið heitir Heimilisiðnaðarfélag íslands. Félagsmenn eru áhugafólk um heimilisiðnað, og félaginu er ætlað að vinna að vernd- un og eflingu þjóðlegs íslenzks heimilisiðnaðar. Það var stofnað 1913. Til að vinna að stefnumálum sínum hefur félagið gegnum ár- in gengizt fyrir námskeiðum, haldið sýningar víðs vegar um land, og síðan var sett á stofn verzlunin Islenzkur heimilisiðnaður. Hún var stofnuð 1951, og byrjaði í samvinnu við Ferðaskrifstofu ríkis- ins. Sú samvinna varði í sex ár, en ósk félagsins hefur alltaf verið ins. En ósk félagsins hefur alltaf verið sú að geta staðið á eigin fótum, svo að stofnuð var smásöluverzlun á Laufásvegi sex árum síðar. Hún var fyrst í heldur lélegu og litlu húsnæði, síðan var það lagfært og stækkað, og svo núna var opnuð verzlun í Hafnarstræti 3, fimmtánda júní, þannig að nú rekur félagið þessar tvær verzl- anir. Þar vinna um tíu manns, nú yfir sumarmánuðina. Stefán Jónsson arkitekt er formaður félagsins, í aðalstjórn eru Arnheiður Jónsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Sigrún Stefánsdótt- ir, Sólveig Búadó.ttir, Guðrún Jónasdóttir. Fyrsti formaður félagsins var Jón Þórarinsson fræðslumálastjóri. Af þeim sem ég þekki til í félaginu og hafa lagt hvað mest af mörkum til starfsemi þess myndi ég vilja nefna frú Sigrúnu Stefánsdóttur, sem byrjaði Framhald á bls. 30. Hildur Biering (til vinstri) og Kristín Ingólfsdóttir sýna nýjustu gerðirnar af herðaslám. Annað er heklað, hitt prjónað. | Frú Hulda Stefánsdóttir hefur lengi starfað af miklum dugnaði í Heimilis- iðnaðarfélaginu og nú spinnur hún á rokk tvær stundir á dag, milli tvö og fjögur, á loftinu í Hafnarstræti 3. Áður kenndi hún tóvinnu í hús- mæðraskólanum á Blönduósi, þegar hún var þar skólastjóri. — Hér ræðir hún við einn viðskiptavininn, og til hægri er Hanna Ragnarsdóttir að vefa brekáns- teppi.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.