Vikan


Vikan - 14.08.1969, Síða 34

Vikan - 14.08.1969, Síða 34
Gvaranar svo á, að kynlífið sé ekki til annars en að framleiða börn (það hefur líka löngum þótt góður, kristinn rétttrúnað- ur), því að barnafjöldi gildir í þeirra augum svipað og olía og dollarar hjá svokölluðu sið- menntuðu fólki í sömu heims- álfu. Hjá Gvarönum ríkir föðurrétt- ur, patríarkí. Konan er karl- manninum undirgefin eins og Eva Adam. Þegar May flytur í kofa Rantus, koma systur henn- ar með. Þeim er einnig ætlað að bera honum börn. Þó má hann samkvæmt lögum ættbálksins ekki eiga fleiri konur en fjórar, eins og Múhameð taldi líka há- mark fyrir aðra en sjálfan sig. Brjóti Gvarani þessi lög er hon- um harðlega refsað: rekinn vopn- laus út í frumskóginn. May hefur hins vegar lítil sem engin kvenréttindi. Hætti hún að falla manni sínum í geð getur hann fyrirvaralaust gefið hana einhverjum vini sínum, sem ekki á ennþá fjórar konur. Verði hún ótrú, er Rantu frjálst að drepa hana. En nú, þegar hún gengur með honum til kofans, brosir hún og er hamingjusöm. Veizlu- fólkið, allt niður í sjö ára börn, heldur fagnaðinum áfram af fullum krafti til morguns. * HádegisverSurinn Framhald af bls. 12 borðið einn rétt? Ég er viss um, að yður mundi líða miklu betur þá.“ „7n ég borða bara einn rétt,“ reyndi ég að malda í móinn. 34 VIKAN 33-tbl- Þjónninn kom enn með mat- seðilinn. Hún bandaði honum frá sér og baðaði út höndunum. „Nei, nei, ég borða aldrei neitt um hádegið. Aðeins einn bita, ég vil aldrei meira, og ég fæ mér þennan bita svona til mála- mynda til að fá tækifæri til að tala við fólk. Ég gæti ekki með nokkru móti borðað meira . . . nema ske kynni að þeir hefðu þennan risaspergil. Mér þætti leiðinlegt að fara frá París, án þess að bragða á honum." Mér féll allur ketill í eld. Ég hafði séð hann í búðunum, og ég vissi, að hann var hræðilega dýr. Það hafði oft komið vatn í munninn á mér, þegar ég sá hann. „Frúna langar til að vita, hvort þið hafið þennan risa spergil," sagði ég við þjóninn. Ég reyndi af öllum mætti að fá hann til að segja nei. En sælubros færðist yfir hans breiða, prestlega iandlit. Hann sagði, að þeir hefðu svo sannar- lega spergil, mjúkan og fínan spergil, sem væri hreinasta lost- æti. „Ég er ekki nokkurn skapað- an hlut svöng,“ sagði gestur minn og andvarpaði, „en fyrst þér viljið endilega, þá hef ég ekkert á móti því að fá svolít- inn spergil.“ Ég pantaði hann. „Aítlið þér ekki að fá yður neinn?“ „Nei, ég borða aldrei spergil." „Ég veit, að það er til fólk, sem þykir hann ekki góður. Sannleikurinn er sá, að þér eyði- leggið bragðnæmi yðar með öllu þessu kjötáti.“ Við biðum, á meðan verið var að sjóða spergilinn. Ég var skelf- ingu lostinn. Nú var spurningin ekki lengur, hve mikla peninga ég ætti eftir til að lifa fyrir það sem eftir var mánaðarins, held- ur hvort ég ætti nóg til að borga reikninginn. Það yrði skammar- legt að vanta kannski tíu franka og þurfa að slá sinn eigin gest um þá. Ég gæti aldrei gert það. Ég vissi nákvæmlega hvað ég átti, og yrði reikningurinn hærri, var ég ákveðinn í að stinga hendinni í vasann, reka upp undrunaróp og segja, að pening- unum hefði verið stolið. Auðvit- að kæmist maður í bansetta klípu, ef hún hefði heldur ekki peninga til að greiða reikning- inn. Þá væri ekki annað að gera en skilja úrið sitt eftir og segja, að ég kæmi seinna og borgaði. Spergillinn kom. Hann var feikna stór og mikill, safaríkur og ginnandi. Lyktin af bráðna smjörinu kitlaði nasaholur mín- ar, eins og hinar brunnu fórnir dyggðuðu Semítanna kitluðu nasaholur Jehova. Ég horfði á konufjandann háma græðgislega í sig hvern bitann á fætur öðr- um, og í hæversku minni ræddi ég um, hvernig ástandið væri í harmleiknum í Balkanlöndunum. Liksins var hún búin. „Kaffi?“ spurði ég. „Já, bara ís og kaffi,“ svaraði hún. Ég var orðinn alveg kærulaus núna, svo ég pantaði kaffi fyrir mig og ís og kaffi fyrir hana. „Ég skal segja yður, að það er eitt, sem ég hef óbifanlega trú á,“ sagði hún, á meðan hún var að borða ísinn. „Maður skyldi alltaf standa svo upp frá borð- um, að maður finni, að maður geti borðað svolítið meira.“ „Eruð þér ennþá svangar?" spurði ég veikum rómi. „Ónei. Ég er ekki svöng. Þér vitið, að ég borða ekki hádegis- mat. Ég fæ mér kaffi á morgn- ana og svo kvöldverð. En ég borða aldrei nema einn rétt um hádegið." „Já, einmitt!" Það kom hræðilegt atvik fyr- ir. Á meðan við biðum eftir kaff- inu, kom yfirþjónninn, brosti smeðjulega og var ekkert nema falsið í framan. Hann kom að borðinu til okkar og hélt á körfu með feikna stórum ferskjum í. Liturinn á þeim var eins og þeg- ar saklaus stúlka roðnar. En ferskjuuppskeran gat þó ekki staðið yfir núna? Guð mátti vita, hvað þær kostuðu! É'g fékk að vita það — svolítið seinna, því að gestur minn, sem hélt áfram samræðunum, tók eina ferskjuna og virtist gera það ósjálfrátt. „Sjáið þér nú til,“ sagði hún við mig í umvöndunartón. „Þér hafið raðað í yður ógrynni af kjöti (ræfils, litla kótelettan mín!) — og þér getið því ekki borðað meira. En ég hef bara fengið mér svolítið snarl, og þess vegna nýt ég þess virkilega að fá mér eina ferskju." Reikningurinn kom, og þegar ég greiddi hann, sá ég að ég átti aðeins óveru eina eftir í þjórfé. Hún horfði sem snöggvast á þrjá frankana, sem ég skildi eftir handa þjóninum, og ég vissi, að henni fannst ég vera smásálar- legur. En þegar ég gekk út úr veitingahúsinu, þá átti ég ekki grænan eyri eftir í vasanum til að lifa fyrir það sem eftir var mánaðarins. „Farið að mínum ráðum,“ sagði hún um leið og við tók- umst í hendur að skilnaði. — „Borðið aldrei nema einn rétt um hádegið." „Ég skal gera enn betur,“ svaraði ég. „Ég skal ekkert borða, hvorki í hádegisverð né kvöldverð." „Gárungi," kallaði hún glað- lega um leið og hún hoppaði inn í leigubíl. „Þér eruð nú meiri gárunginn!" En ég hef fengið hefnd að lok- um. É’g held, að ég sé ekki hefni- gjarn maður að eðlisfari. En þegar hinir ódauðlegu guðir taka málið í sínar hendur, þá er það fyrirgefanlegt, að maður virði árangurinn fyrr sér með vel- þóknun. í dag er hún 260 pund! ☆

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.