Vikan


Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 46

Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 46
Eftir að hafa átt vingott við Jane Asher í fjöldamörg ár, kom Paul McCartney mjög á óvart með að giftast bandarískri stúlku, Lindu Eastman, fráskilinni með 5 ára dóttur. En það er þó I rauninni ekkert undarlegt, því Bítlarnir koma alltaf á óvart. Paul og Linda eiga nú von á fyrsta samciginlega afkvæmi sinu: Paul McCartney, Jr.? Sá orðrómur er nú á kreiki, að Diana Ross muni innan tíðar segja skilið við vinkonur sínar í Supremes, Cindy Birdsong og Mary Wilson. Fékk þessi orðrómur byr undir báða vængi nýlega, þegar fröken Ross kom fram í sjónvarpsþætti vestan hafs án hinna. Að því er sögusagnir herma hyggjast þær Cindy og Mary ekki leggja árar í bát, þrátt fyrir þetta, heldur verða sér úti um annað „þriðja hjól“ í tríóið í stað Díönu. Það fylgir þessum orðrómi, að Díana hyggi gott til að geta ráðið sjálf sínum málum, meðfram sökum þess, að hún hefur fengið ótal tilboð um að koma fram í kvikmyndum. Ekki er að efa, að Díana Ross mun spjara sig sem einsöngvari, og sjálfsagt fær hún þannig -betra tækifæri til að láta hæfileika sína njóta sín. Á hitt er líka að líta, að margir munu sakna tríós- ins Supremes, því að ekki er víst að það muni bera sitt barr þegar Diana Ross er farin. Hingað til hafa Supremes sannarlega borið nafn með réttu. Supremes merkir „Hinar æðstu, hinar beztu . . “ ☆ V________________________________________________________________7 Rolling Stones Framhald af bls. 25. Um gítarleik Mikka segir Mick Jagger: — Stíll hans er töluvert frá- brugðin stíl Brians. Hann er fyrst og fremst blues-leikari en hefur líka áhuga á rokki, en þetta kemur einmitt vel heim við þá músik, sem við flyt|um. Ráðning Mick Taylor þykir gefa vísbendingu um, að nú hyggist Rollingarnir fara á kreik og koma fram á hljómleikum. A. m. k. hefði ekki verið þörf á að ráða fasta gít- arleikara, ef svo væri ekki. Mun ráðgert, að Rollingarnir haldi hljóm- leika víðs vegar um Bretland í september, en síðan munu þeir að líkindum ferðast um önnur Evrópu- lönd en halda síðan til Bandaríkj- anna. I júlíbyrjun sl. komu Rollingarn- ir fram á útihljómleikum, sem haldnir voru í Hyde Park í London. Að sögn þeirra, sem reyndu að kasta tölu á áheyrendaskarann, munu um tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns hafa sótt þessa hljómleika, en auk Rollinganna komu fram ýmsar aðrar þekktar og vinsælar hljómsveitir. Ekki varð goðunum meint af útiverunni með því að þeim var komið fyrir á palli, sem var hátt yfir höfðum áheyr- enda. Þessi óvenjulega samkoma fór fram með hinn'i mestu spekt, og áttu laganna verðir rólegan dag í garðinum, en þeim til aðstoðar við löggæzluna voru hinir frægu mótorhjólakappar og töffarar, „Hell's Angels". Þóttu „englarnir" standa vel í stykkinu en auk lög- gæzlunnar sáu þeir um sjúkrahjálp og höfðu við það ærinn starfa. Var ófáum áheyrenda ofraun að standa tímum saman í steikjandi sólarhit- anum, en „englarnir" veittu þeim aðhlynningu, sem lognuðust út af í sólinni. Eins og nærri má geta ætlaði allt vitlaust að verða, þegar Rollingarnir birtust á skörinni. Það leið nokkur tími, þar til Mick Jagg- er hafði tekizt að róa mannfjöld- ann. — Slappið af — og hlustið, sagði hann, og þá þögnuðu allir. Síðan minntist hann Brian Johns alvarlegur í bragði. Það var ekki laust við, að þessi harðsoðni töff- ari væri eilítið hrærður, þegar hann las upp Ijóð eftir Shelley í minn- ingu Brians. Dauðaþögn rikti á meðan. Að lestrinum loknum slepptu Rollingarnir lausum 3.500 fiðrildum — og voru flest þeirra á sveimi um hljómsveitarpallinn og mannhafið í þær 75 mínútur, sem Rollingarnir voru á pallinum. Við þetta tækifæri fluttu þeir flest þeirra laaa, sem þeir hafa gert vin- sæl á ferli sinum, m. a. „Jumpinq Jack Flash" og „Satisfaction". Síð- asta lagið, sem þeir fluttu, var „Svmpathy for The Devil". Hopp- uðu þá inn á sviðið nokkrir Afrí- kanskir bumbusláttarmenn í lit- skrúðugum klæðum, en í broddi fylkingar var gosi af sama kynþætti með stríðsmálningu í framan. Var hann ímynd hins vonda. Dansaði skarinn um sviðið við fögnuð við- staddra, en við þetta færðust Roll- ingarnir í aukana, og hrifningin náði hámarki. Rollingarnir eru að sjálfsögðu hressir yfir þeim góðu viðtökum, sem nýjasta tveggja laga plata þeirra hefur fengið. Lögin á plöt- unni, „Honky Tonk Woman" og „You Can't Always Get What You Want", eru bæði eftir Mick Jagger og Keith Richard. Nýgræðingurinn Mick Taylor leikur með í báðum lögunum, en þau voru unnin að nýju eftir að hann kom í hljóm- sveitina. Þótt báðum lögunum sé gert jafn hátt undir höfði á plöt- unni (þau eru bæði auglýst sem „A-síðu" lög) heyrist „Honky Tonk Woman" oftar, a. m. k. í óskalaga- þáttunum hér. Hitt lagið er þó engu tilkomuminna, en þar kemur m. a. við sögu sextíu manna kór plús lúðrar, sem gjalla hátt, þegar dreg- ur nær lokum lagsins. Þessi plata kom út í byrjun júlí, en um svipað leyti kom út hæg- geng plata, „Big Hits", þar sem er að finna vinsælustu lögin, sem Rollingarnir hafa látið frá sér fara á undanförnum árum. Mun mörg- um ugglaust þykja mikil búbót að slíkri plötu. Þá hafa Rollingarnir unnið að tveimur hæggengum plöt- um, og mun sú fyrri koma á mark- aðinn í september en hin síðari um næstu jól. Lögin á þessum plötum eru öll í lengra lagi eða um fjórar til fimm mínútur hvert. Verða því að líkindum tíu lög á hvorri plötu. Þegar Mick Jagger var að því spurður, hvort þessar plötur væru frábrugðnar öðrum hæggengum plötum hljómsveitarinnar, sagði hann: — Við höfum það fyrir sið að endurtaka aldrei það, sem við höf- um áður gert. Ef svo væri, værum við sífellt að hjakka í sama farinu. Lögin á þessum plötum eru í nokk- uð öðrum dúr en önnur lög, sem við höfum látið frá okkur fara. Mick var einnig spurður að þvi, hver af þeim hæggengu plötum, sem hljómsveitin hefði látið frá sér fara, væri honum mest að skapi. — Bezt þykir mér sú plata, sem við sendum síðast frá okkur. Og lélegust er platan með heitinu „Be- tween the Buttons". — Hvað var það, sem þér líkaði ekki við hana? var spurt. — Öll lögin voru léleg. Ég man varla eftir að hafa unnið að henni. Éq hlýt að hafa verið eitthvað mið- ur mín þá. Þá var Mick að því spurður, hvaða tveggja laga plötur hljóm- sveitarinnar honum þættu beztar. Hann sagði: — „Come On" (það var fyrsta olata hljómsveitarinnar) og „I Wanna Be Your Man", en aðrar ^lötur eru líka ágætar. Þetta þvðir þó ekki, að ég spili þær á hverjum degi mér til ánægjuauka! Þegar rætt er um hljómplötur 46 VIKAN **•tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.