Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 3

Vikan - 11.09.1969, Side 3
31. árgangur - 37. tölublaS - 11. september 1969 i ÞESSARI VIKU ViS höfum þegar heimsótt tvo sjón- varpsþuli, Sigriði Rögnu Sigurðardóttur og Ásu Finnsdóttur. Þá er aðeins ein af þessum vinsælu stúlkum eftir. Það er Kristín H. Pétursdóttir, sem er bókavörður að mennt. Við segjum nánar frá lífi hennar og starfi í næstu Viku. „Sumarbú í eyðibyggð", nefnist grein um Ofeigsfjörð á Ströndum. Áður var þar blómleg byggð, en nú er fjörðurinn í eyði, að því undanskyldu, að á sumrin fyllist hann af lífi og fjöri. íbúarnir leita þá á gamlar slóðir aðallega til að nytja selinn. „Líkamleg þjálfun er ekki aðal- atriðið", segir Anders geimfari í einkavið- tali við Vikuna. Anders kom hingað til lands fyrir skömmu eins og kunnugt er og hélt m. a. fyrirlestur í Háskóla íslands. Vikunni tókst að fá einkaviðtal við hann að loknum almennum blaðamanna- fundi, og segir hann þar margt frá bernsku sinni og högum, sem ekki hefur komið fram áður. f NÆSTU VIKU „Ég var einvaldsherra", nefnist viðtal við Guðjón Guðmundsson, hreppstjóra og símstöðvarstjóra á Eyri við Ingólfsfjörð. Guðjón er sérstæður persónuleiki og segir með afbrigðum vel frá. í næstu Viku segir hann undan og ofan af ævi sinni, en ærið margt óvenjulegt hefur á daga hans drifið. „Hann var upphafsmaður atómaldar", nefnist grein um Albert Einstein, höfund hinnar frægu afstæðiskenningar. Á þessu ári hefði Einstein orðið níræður, og jafn- framt eru þrjátíu ár liðin, síðan hann sendi Roosevelt hið fræga bréf, sem varð undirstaða Manhattan-áætlunarinnar svonefndu. Hún heitir Jenny Wium þessi litla stúlka og myndin af henni var tekin á dag- heimili kvenfélagsins í Hveragerði ! sumar. Við birtum myndaopnu af börnunum í Hveragerði, þar sem þau sitja inní í rigningunni og dunda sér við alls kyns föndur til að láta sér ekki leiðast. Þessi myndaopna er dæmigerð fyrir þetta leiðinlega rigningasumar, sem góðu heilli er nú senn liðið. í FULLRI ALVÖRU NÝII SMJÖRFJALL? Þegar þessar línur eru hripaðar niður, hefur enn ein hækkun orðið á mjólkurvörum. Nú kostar ein hyrna rúmar fjórtán krónur og kílóið af smjörinu nálgast óðum tvöhundruð króna mark- ið. Það þarf ekki að taka það fram, að slíkar hækkanir á nauðsynjavörum næstum mánaðar- lega koma illa við almenning. Ráðamenn yppta öxlum og segja, að þetta hafi verið vitað fyrir- fram: Mjólkin átti að hækka smátt og smátt eða í áföngum, eins og það heitir á fínu máli. En á þeirri yfirlýsingu, þegar hún var gefin út á sín- um tíma, hefur almenningur alls ekki áttað sig. Það er ekki fyrr en hækkanirnar dynja yfir, sem mönnum verður Ijóst, hversu dýrtíðin hér á landi er orðin geigvænleg. Eftir þessa siðustu hækkun var miða dreift í hús hér í bænum, þar sem húsmæður voru hvattar til að kaupa ekki mjólk, nema fyrir smá- börn og gamalmenni. Slik viðbrögð eru eðlileg. Það hljóta að vera einhver takmörk fyrir því, hvað nauðsynjavörur geta hækkað mikið — og það eftir að samið hefur verið um kaup launa- fólks. Þessi tilgangslausi hringdans verður að taka enda. Erlendis mundu húsmæður fara i kröfugöngu og mótmæla hækkunum, jafnvel þótt þær væru ekki nema helmingurinn á móts við þetta. Ein húsmóðir lét svo ummælt á förnum vegi um daginn: „Nú ættu húsmæður að taka sig saman og neita að kaupa smjör, þangað til nýtt smjörfjall hefur myndazt, og þessir herrar neyðast til að selja það á skaplegu verði." Hvaða gagn væri að hækkunum, ef húsmæð- ur stæðu við orð sín? G. Gr. VIKAN Útgefandl Hllmir hf. Ritstjóri: SigurSur Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. BlaSamaSur: Dagur Þorlelfsson. Útlltsteiknlng: Halldóra Hall- dórsdóttir. Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsinga- stjóri: Jensína Karlsdóttir. — Rltstjórn, auglýslngar, afgrciðsla og dreifing: Sklpholti 33. Simar: 35320 — 35323. Pósthólf: 533. VerS f lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 töIublöS ársfjórB- ungslcga, 900 kr. fyrir 26 tölublöð missirislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaSarlega. Áskriftar- gjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvem- ber, febrúar, maf og ágúst cða mánaðarlega. 37. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.